Fréttablaðið - 30.03.2010, Síða 4
4 30. mars 2010 ÞRIÐJUDAGUR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is
GENGIÐ 29.03.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
228,2144
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
127,94 128,56
191,55 192,49
172,47 173,43
172,47 173,43
21,334 21,460
17,620 17,724
1,3825 1,3905
194,24 195,40
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
Ekki haft eftir Gunnari
Það er ekki rétt sem fram kom á
baksíðu Fréttablaðsins í gær að
Gunnar Andersen, forstjóri Fjármála-
eftirlitsins, hefði látið þau ummæli
falla um Jónas Fr. Jónsson, forvera
sinn í embætti, að hann væri gunga
og klappstýra bankanna. Þau ummæli
hafði blaðið Euromoney eftir ónafn-
greindum embættismanni.
LEIÐRÉTTING
DETTUR ÞÚ
Í LUKKUPOTTINN
Útivistarleikur
Homeblest & Maryland
Ef þú kaupir Homeblest eða
Maryland kexpakka gætir þú unnið
glæsilegan vinning.
3 x 50.000 kr. úttektir
48 x 15.000 kr. úttektir
frá Útilífi, Intersport eða Markinu.
Leynist vinningur í
pakkanum þínum!
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
40
48
1
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
19°
11°
13°
8°
13°
11°
4°
9°
20°
10°
20°
17°
23°
2°
12°
14°
4°
Á MORGUN
5-13m/s, hvassast SA-til.
FIMMTUDAGUR
5-10 m/s.
0
0
-2
-4
-5
-3
-2
-3
-7
-6
10
-1
8
7
7
6
5
10
10
13
7
10
0
-3
-5
-4
-6
-2
-2
-4
-6
-4
LITLAR
BREYTINGAR Það
verða litlar breyt-
ingar út vikuna,
áfram norðlægar
áttir ríkjandi, bjart-
viðri syðra en él
norðan- og austan-
lands. Það verður
áfram frost um
nánast allt land en
það dregur heldur
úr vindi á morgun.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
HEILBRIGÐISMÁL Samfélagsgeð-
teymi tekur formlega til starfa nú
um mánaðamótin. Um er að ræða
þverfaglegt teymi geðheilbrigð-
isstarfsmanna og tilheyrir það
geðsviði Landspítalans. Markmið
teymisins er að minnka þörf á inn-
lögnum og tryggja góðan stuðning
og eftirfylgd. Þungamiðjan í þjón-
ustunni er vitjanir í heimahús og
að virkja fólk til þátttöku í sam-
félaginu. Beiðnir um aðstoð eru
þegar teknar að berast.
„Við erum sannfærð um að
þjónusta sem þessi eykur lífs-
gæði þeirra sem þurfa á henni að
halda,“ segir Magnús Haraldsson
geðlæknir, sem starfar í teyminu.
„Teymið er stofnað því það er mat
manna að við þurfum að efla sam-
félagsgeðþjónustu við þá sem þjást
af alvarlegum geðröskunum og eru
í tíðum innlögnum á geðdeildir, svo
og aðstandendur þeirra. Teymið er
viðbót við þau úrræði sem göngu-
deildir geðsviðs veita og við geð-
teymi sem fyrir eru á vegum Vel-
ferðarsviðs og Heilsugæslu.
„Þetta er ekki sparnaðarúrræði
þar sem verið er að veita ódýrari
þjónustu fyrir dýrari, heldur er
einungis verið að svara þörfinni úti
í samfélaginu og breyta áherslum.
Við erum enn langt á eftir öðrum
þjóðum í þessu efni, sem sum hver
hafa þróað þjónustu af þessu tagi
í þrjátíu ár.“
Spurð hvort vissa sé fyrir því að
fólk vilji að fagfólk fylgi því eftir
inn á heimili þess segir Guðbjörg
Sveinsdóttir teymisstjóri að lang-
flestir vilji fá stuðning til þess að
auka lífsgæði sín, getu og færni til
að virka sem best í samfélaginu.
„Eitt af meginhlutverkum okkar
er að tengja fólkið við þann stuðn-
ing sem er fyrir hendi úti í sam-
félaginu, hvort sem það er hjá
velferðarsviði eða frjálsum félaga-
samtökum og þá að sleppa hend-
inni af fólki. Við erum ekki að gera
þetta fyrir fólkið heldur með því,
og aðstoða það við að ná tökum á
daglegu lífi sínu. Ég hef ekki hitt
neinn sem ekki vill það. En þessa
samvinnu þarf fyrst og fremst að
byggja á trausti. Aðstandendum er
einnig boðin aðstoð og þeir eru oft
ekki síður í þörf fyrir hana.“
Þegar beiðni berst teyminu er
hún tekin fyrir á fundi, að sögn
Guðbjargar. Sé tekin ákvörðun
um aðkomu að málinu er haft sam-
band við þann sem sendir beiðn-
ina og síðan heimsækir fagfólk úr
teyminu þann sem á aðstoð þarf að
halda. Viðkomandi er gerð grein
fyrir starfseminni og boðin aðstoð.
jss@frettabladid.is
SAMFÉLAGSGEÐTEYMIÐ Þau eru hluti af hópnum frá vinstri: María Einisdóttir
staðgengill framkvæmdastjóra geðsviðs LSH, Úlfheiður Kaðlín Ingvarsdóttir sjúkraliði,
Guðbjörg Sveinsdóttir geðhjúkrunarfræðingur, Magnús Haraldsson geðlæknir og
Auður Árnadóttir sjúkraliði. FRETTABLADID/STEFÁN
Hjálpa geðsjúkum að
ná tökum á lífi sínu
Nýtt geðteymi sem heyrir undir geðsvið Landspítala tekur til starfa nú um
mánaðamótin. Hlutverk þess verður að aðstoða fólk sem þjáist af geðröskunum
og aðstandendur þeirra. Ekki sparnaðarúrræði, segir starfsfólk teymisins.
KÍNA, AP Fjórir yfirmenn ástr-
alska fyrirtækisins Rio Tinto
í Kína fengu sjö til fjórtán ára
fangelsi fyrir að þiggja mútur
og aðra spillingu, sem kínversk-
ur dómstóll segir að hafi valdið
kínverskum stáliðnaði alvarlegu
tjóni.
Meðal hinna dæmdu er Ástr-
alinn Stern Hu, sem fékk tíu ára
fangelsi. Áströlsk stjórnvöld hafa
mótmælt dómnum, segja hann
alltof harðan.
Hinir þrír eru Kínverjar og
fengu þeir sjö, átta og fjórtán ára
fangelsisdóma.
Fyrirtækið Rio Tinto er með
starfsemi víða um heim, meðal
annars í álframleiðslu hér á landi.
- gb
Yfirmenn Rio Tinto dæmdir:
Sakfelldir fyrir
mútuþægni
ÁSTRALAR MÓTMÆLA Ræðismaður
Ástralíu í Kína ræðir við fjölmiðla.
NORDICPHOTOS/AFP
MENNTUN Sölvi Sveinsson hefur
verið ráðinn skólastjóri Landa-
kotsskóla. Hann segir stefnuna að
fjölga nemend-
um skólans úr
120 í 170 haustið
2011. Það verði
gert með kynn-
ingarátaki í
góðri samvinnu
við foreldra.
„Skólinn
stendur á göml-
um grunni og
hann nýtur sér-
stöðu, þar er til dæmis meiri
tungumálakennsla en í öðrum
skólum, meiri áhersla á íslensku
og stærðfræði og góð aðstaða
til listakennslu,“ segir Sölvi.
Hann var skólastjóri Verslun-
arskóla Íslands 2005 til 2008 og
skólastjóri Fjölbrautaskólans við
Ármúla frá 1997 til 2005. - sbt
Nýr stjóri hjá Landakotsskóla:
Vill fjölga nem-
endum skólans
SÖLVI SVEINSSON
FME veitir starfsleyfi
Arctica Finance hefur fengið starfsleyfi
hjá Fjármálaeftirlitinu (FME). Fyrirtæk-
ið sinnir óháðri fyrirtækjaráðgjöf.
„Reynsla okkar sýnir að eftirspurn er
eftir ráðgjöf í tengslum við fjárhags-
lega endurskipulagningu fyrirtækja,“
er í tilkynningu haft eftir Stefáni
Þór Bjarnasyni, framkvæmdastjóra
fyrirtækisins.
FJÁRMÁLAFYRIRTÆKI
Sóttu grænlenskan sjómann
Þyrla Landhelgisgæslu Íslands sótti í
gærkvöldi slasaðan sjómann um borð
í grænlenskan togara um 20 sjómílur
frá landi. Maðurinn hafði misst
framan af fingri og taldi læknir þörf
á að koma honum sem fyrst undir
læknishendur.
LÖGREGLUMÁL
UTANRÍKISMÁL Óþolandi og óviðeigandi er í
samskiptum vinaríkja að til séu leyniskýrsl-
ur um íslenska stjórnmálamenn og ekki síður
að þær séu varðveittar með þeim hætti að þær
leki ítrekað í fjölmiðla.
Svo segir utanríkisráðherra, Össur Skarp-
héðinsson, um bandarískar skýrslur sem birt-
ust um hann, Jóhönnu Sigurðardóttir forsæt-
isráðherra og Albert Jónsson sendiherra á vef
Wikileaks í gær.
„Þetta er í annað skipti sem þetta gerist og
það þýðir að menn hafa varann á sér í sam-
skiptum við utanríkisþjónustur sem haga sér
með þessum hætti,“ segir Össur.
Æðsti yfirmaður bandaríska sendiráðsins á
Íslandi hafi verið boðaður á
fund með ráðuneytisstjóra
utanríkisráðuneytisins þar
sem þessu var mótmælt.
Fulltrúi Bandaríkja-
manna hafi ekki getað skýrt
lekann, en svo virðist sem
upplýsingarnar hafi ekki
komið úr sendiráðinu við
Laufásveg.
„Þetta er alveg með ein-
dæmum, ekki síst í ljósi
þess að skýrslur sem menn vilja fá birtar, um
nafngreinda Íslendinga, þær fást ekki birtar,“
segir hann og vísar þar til beiðni ráðuneyt-
isins um að Bandaríkjamenn leyfi fjölskyldu
Halldórs Laxness að sjá leyniskjöl um hann.
Í Wikileaks-skjölunum segir að Albert Jóns-
son, þáverandi sendiherra í Washington, hafi
mótmælt því sem hann hafi talið ófullnægj-
andi útskýringar Bandaríkjamanna á fanga-
flugi CIA í íslenskri landhelgi. Samt hafi hann
unnið að því með bandarískum diplómötum að
gera lítið úr fangafluginu opinberlega.
Um þetta segir Össur: „Ég geri ráð fyrir því
að Albert Jónsson, aðalræðismaður okkar í
Færeyjum, hafi ekki gert neitt sem hann var
ekki beðinn um af þáverandi yfirboðurum
sínum, og hafi því ekki brotið nein fyrirmæli.“
- kóþ
Utanríkisráðherra telur ekki að þáverandi sendiherra Íslands í Washington hafi brotið fyrirmæli:
Skýrslur Bandaríkjamanna óþolandi
ÖSSUR SKARP-
HÉÐINSSON