Fréttablaðið - 30.03.2010, Page 8
8 30. mars 2010 ÞRIÐJUDAGUR
Fyrirtæki leita bæði til skipafélaga og flugfélaga
til að senda vörur til og frá landinu.
Til að senda peninga, þá tala þau við okkur.
Kjartan Geirsson, erlend viðskipti.
Það er minna mál að skipta um
banka en þú heldur.
Kynntu þér málið á mp.is eða
hafðu samband í síma 540 3200.
Borgartúni 26 · Ármúla 13a
Varfærni, einfalt þjónustuframboð og
örugg vinnubrögð skipta öllu máli fyrir
fólk og fyrirtæki.
Þannig á banki að vera.
Gjaldeyrisreikningar
Erlend viðskipti
Innheimtuþjónusta
Fyrirtækjaráðgjöf
Netbanki & þjónustuver
Kreditkort
Ávöxtun innlána
Veltureikningur
Fjármögnun
Ábyrgðir
sumarferdir.is
Í dag er spáð 23°C
hita á Tenerife
1 Hvað heitir stærsti hluthaf-
inn í DV?
2 Hvaða hljómsveit sigraði í
Músíktilraunum?
3 Hver vann sinn sjöunda Ís-
landsmeistaratitil í badminton
á sunnudag?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 38
SJÁVARÚTVEGUR Enn ríkir óvissa
um afgreiðslu skipasmíðastöðv-
arinnar ASMAR í Chile á tveim-
ur öflugum skipum til Ísfélagsins
í Vestmannaeyjum. Stöðin stór-
skemmdist í jarðskjálfta 27. febrú-
ar. Forsvarsmenn ASMAR halda
því fram að þeir séu ekki bundnir
af smíðasamningum skipanna þar
sem fyrirsjáanlegar vanefndir á
afhendingu skipanna eru til komn-
ar vegna náttúruhamfara.
„Skipasmíðastöðin ber fyrir
sig „force majeure“-ákvæðinu í
samningnum og þar stendur málið
núna,“ segir Stefán Friðriksson,
framkvæmdastjóri Ísfélagsins.
„Satt best að segja vitum við ekki
hvert framhaldið verður og bíðum
svara að utan um hvað þeir ætla
að gera. Mér skilst að þeir ætli að
klára nýja varðskipið Landhelgis-
gæslunnar, svo það sama getur átt
við um okkar skip.“
Stefán segir ljóst að fyrirtækið
verði ekki fyrir fjárhagslegu tjóni
vegna tafa eða skemmda. Ísfélagið
hefur ekki samið um sölu á öðrum
skipum fyrirtækisins vegna endur-
nýjunar skipakostsins. Þess vegna
muni framvinda málsins, hver sem
hún verður, ekki hafa nein áhrif á
rekstur Ísfélagsins.
Kaupverð skipanna tveggja var
um fjórir milljarðar króna við
undirskrift, samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins. Gengisþróun eftir
hrun hefur nær tvöfaldað þá upp-
hæð. Ísfélagið hefur þegar greitt
kaupverð skipanna að hluta. Smíði
annars skipsins er langt komin
og var það væntanlegt til lands-
ins seint á þessu ári. Áætlað var
að seinna skipið kæmi til landsins
fyrri hluta árs 2011.
Ef tafir verða fram úr hófi er ein
af mögulegum leiðum Ísfélagsins
að segja sig frá samningnum. „Við
vonum hins vegar að þeir komist af
stað og ljúki smíði skipanna,“ segir
Stefán og bætir við að vel komi til
greina að selja annað skipið vegna
þeirra hækkana sem gengisþróun
síðustu mánaða hefur valdið.
Björgvin Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri BP-skipa hf., sem
er umboðsaðili ASMAR á Íslandi,
segir að verið sé að meta skemmd-
irnar í stöðinni, sem hafi verið
gríðarlegar. Hann telur meiri líkur
en minni á því að íslensku skipin
verði kláruð í stöðinni.
svavar@frettabladid.is
Ísfélagið bíður eftir
svörum frá Chile
Forsvarsmenn skipasmíðastöðvarinnar ASMAR í Chile geta engin svör gefið um
afhendingu tveggja skipa til uppsjávarveiða til Ísfélagsins í Vestmannaeyjum.
Tafirnar hafa ekki áhrif á rekstur Ísfélagsins, segir framkvæmdastjóri.
STÓRGLÆSILEG SKIP Skipin eru hönnuð af Rolls Royce í Noregi. Þau eru 71,1 metri að lengd og burðargeta er rúmlega tvö þús-
und tonn í tíu kælitönkum. Skipin eru útbúin til nóta- og flottrollsveiða. MYND/HÉÐINN HF.
REYKJAVÍK Forsvarsmenn velferðarsviðs Reykja-
víkurborgar hittu fulltrúa Fjölskylduhjálpar
Íslands að máli í gær og fóru yfir mannréttinda-
stefnu borgarinnar. Sérstaklega var rætt um að
mismuna ekki fólki á grundvelli þjóðernis, í ljósi
frétta um að Íslendingar nutu forgangs í síðustu
matarúthlutun hjálparinnar.
„Ásgerður útskýrði mál sitt og það stendur
ekki til að beita svona vinnubrögðum, að mis-
muna fólki,“ segir Stella Víðisdóttir, sem er
sviðsstjóri velferðarsviðs.
Jórunn Frímannsdóttir, formaður velferð-
arráðs, segir ekkert nema gott um fundinn að
segja: „Þau eru samstarfsfús og munu vonandi
gera þetta á réttan hátt hér eftir.“
Eins og fram hefur komið í viðtali við fram-
kvæmdastjóra Fjölskylduhjálparinnar hér í blað-
inu nutu Íslendingar forgangs þegar matvælum
var dreift til nauðstaddra á miðvikudag.
Framkvæmdastjórinn, Ásgerður Jóna Flosa-
dóttir, sagði þá að hún hefði tekið „alla Íslend-
ingana fram fyrir“ og beðið útlendinga að bíða.
Matthías Imsland, stjórnarformaður Fjöl-
skylduhjálparinnar, var spurður hvort endur-
skoða þyrfti verklag Fjölskylduhjálparinnar.
Hann sagðist ekki hafa kynnt sér viðtalið við
Ásgerði og telur um einhvern misskilning milli
hennar og blaðamanns að ræða. „Menn spá ekk-
ert í þjóðerni hjá Fjölskylduhjálpinni,“ segir
hann.
Ekki hefur náðst í forsvarsmann Mæðra-
styrksnefndar, en Hjálparstarf kirkjunnar hefur
reglur sem banna mismunun á grundvelli þjóð-
ernis. - kóþ
Velferðarsvið fundaði með framkvæmdastjóra Fjölskylduhjálparinnar í gær vegna forgangs Íslendinga:
Ekki stendur til að mismuna fólkinu
MATTHÍAS
IMSLAND
JÓRUNN FRÍ-
MANNSDÓTTIR
STELLA K.
VÍÐISDÓTTIR
VÍSINDI Fornleifafræðingar í Kali-
forníu hafa friðlýst lendingarstað
geimfarsins Apollo 11 sem flutti
fyrstu mennina til tunglsins árið
1969. Það er gert vegna þess að
búist er við að ekki líði alltof lang-
ur tími þar til ferðamenn stíga þar
fæti.
Friðunin er grundvölluð á sam-
þykkt Sameinuðu þjóðanna frá
árinu 1967 um að allir manngerð-
ir hlutir á tunglinu tilheyri þeirri
þjóð sem sendi þá þangað. Aðeins
tvær þjóðir hafa sent þangað geim-
för, Bandaríkjamenn og Rússar
sem sendu þangað ómönnuð fjar-
stýrð geimför. Talið er að á tungl-
inu séu um 100 tonn af alls konar
dóti. Þar á meðal er Hasselblad-
myndavélin sem Neil Arm strong
notaði til þess að taka mynd af
félaga sínum, Buzz Aldrin. - ót
Bannað að hrufla við fótspori:
Lendingarstað-
urinn friðlýstur
Óvönduð vinna er hættuleg
Brunamálastofnun varar við óvönd-
uðum vinnubrögðum við slökkvikerfi
í eldhúsháfum. Borist hafa kvartanir
um að aðilar sem ekki hafi kunnáttu
til að taka út slík slökkvikerfi hafi þó
boðist til þess. „Þessi kerfi eru mjög
sérhæfð og ekki á færi annarra en
sérhæfðra þjónustuaðila að viðhalda
þeim,“ segir á vef stofnunarinnar.
BRUNAVARNIR
VEISTU SVARIÐ?
Tóku hitamyndir af gosinu
Vísindamenn frá Íslenskum orkurann-
sóknum (ÍSOR) tóku hitamyndir af
gosinu á Fimmvörðuhálsi síðastliðinn
föstudag. Nutu þeir aðstoðar Björg-
unarsveitar Hafnarfjarðar. „Tilgangur
ferðarinnar var að afla bergsýna af
gosefnum, mæla viðnám og hita í
nýju hrauni og í gosstrókum,“ segir
á vef ÍSOR, en ferðin er sögð hafa
heppnast vel í alla staði.
JARÐHRÆRINGAR