Fréttablaðið - 30.03.2010, Blaðsíða 42
26 30. mars 2010 ÞRIÐJUDAGUR
BAKÞANKAR
Hólmfríður
Helga
Sigurðardóttir
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Hann spyr hvort
hann megi
koma inn og
horfa á leikinn.
Það er eitt-
hvað ólag á
loftnetinu niðri
hjá honum!
Úff! Hann aftur?
Ég hef aldrei verið
hrifinn af honum!
Og svo er hann í
Milan-treyju!
Líst iiiiilllla á það!
Þú verður að
strauja þessa
skyrtu.
Meinarðu ég,
persónulega?
Mamma, ég
er tónlist-
armaður,
ég get ekki
straujað!
Þess háttar verk
eiga að lenda
á heiladauðum
vitleysingum
sem eiga ekki
annað skilið.
Eins og ég,
til dæmis?
Það sagði
ég ekki.
En fyrst þú ert
byrjuð, geturðu
ekki saumað
þessa tölu á?
Hvers vegna ertu
ekki að gæta Lóu?
Mamma
er með
hana.
Hepp-
inn.
Já, þá gefst mér
tími til að sinna
öðrum hlutum...
... eins og ÞESSU! Þú sem sagt gætir litlu systur
þinnar en stríðir stóru systur?
Ég setti ekki
þessar reglur, ég
fylgi þeim bara.
Talibanar femínista
FYRIR nokkru hitti ég afganska kvenrétt-
indakonu sem hafði verið valin úr hópi fólks
til að nema við Jafnréttisskólann í Háskóla
Íslands. Margt sem hún komst í tæri við
hér var henni fullkomlega framandi, svo
sem galtómar og hættulausar götur, sem
og námskeið um kynferðisleg réttindi, sem
yrði seint kennt við Háskólann í Kabúl.
Í GRUNNINN eru baráttumálin hér og þar
þó þau sömu þegar kemur að jafnréttismál-
um. Ísland mælist á meðal fremstu landa á
því sviði, en Afganistan skrapar botninn, og
var sú afganska því ekki í vafa um að hún
gæti nýtt sér þekkinguna héðan þegar hún
kæmi heim.
SJÁLF hafði hún líka ýmsu að miðla. Til
að mynda hafði hún átt þátt í því að koma
kynjaðri fjárlagagerð á koppinn í Afgan-
istan, sem þýðir að taka á tillit til
beggja kynja á öllum stigum fjárlaga-
gerðar í landinu. Hún lýsti fyrir mér
hversu mikilvægt þetta er fyrir ríkis-
stjórn sem stendur frammi fyrir því að
reisa land úr rústum. Aðkoma kvenna
að öllum sviðum þjóðfélagsins sé lykil-
atriði til þess að árangur náist, öllum
til heilla, ekki bara konum.
RÍKISSTJÓRNIN okkar er líka búin
að ákveða að skeyta þessu kynj-
aða við sína fjárlagagerð og ætlar að
kynna fyrstu skrefin í þá átt á næsta
ári. Þegar ég fylgdist með viðbrögðunum
við þeirri ákvörðun rifjuðust orð þessarar
merkilegu konu upp fyrir mér. Og ég fór að
furða mig á að Ísland hafi komist svo hátt á
þennan eftirsóknarverða topplista yfir þau
lönd sem státa af hvað mestu jafnrétti.
ALLAR þær aðgerðir sem miða að því að
minnka kynjamisrétti virðast nefnilega
hleypa illu blóði í karla og kerlingar sem
hata femínista eins og skrattann sjálf-
an. Frasarnir um ofríki jafnréttisfasista
og talibana femínista heyrast víða. Ekki
bara í nafnlausum kommentakerfum held-
ur líka úr munni ólíklegasta fólks, svo sem
blíðlyndra fjölskyldufeðra sem breytast í
eldspúandi, blótandi og bölvandi skrímsli
þegar þetta fallega orð „jafnrétti“ ber á
góma.
ÞETTA fólk virðist óttast að hvatinn að baki
jafnréttisbaráttunni sé að hrifsa öll völd og
áhrif frá körlum og færa þau í hendurnar á
konum. Næsta skref verði að fella í lög að
allir karlar skuli pissa sitjandi og hætta að
lesa blaðið á klóinu. En hver hefur áhuga á
svoleiðis samfélagi?
HVERS vegna ekki að anda rólega og kynna
sér málin? Kynjuð fjárlagagerð er víst
nefnilega nokkuð góð aðferð til að ná fram
aukinni hagkvæmni, skilvirkni og sann-
girni í samfélaginu. Getur einhver verið á
móti því?
Allt fyrir baðherbergið
Bæjarlind 6, Kópavogi, sími 517 6067. Opið mán. - fös. 10 -18, laugard.
11-16.
68.455
DekaCryl 7
Innimálning. 10 lítrar
4.990kr.Deka Meistaralakk 40 Akrýllakk. 1 líter
1.495kr.
MAKO pensill
50mm
490kr.
MAKO rúlla 25 cm
450kr.
MAKO málningarlímband
25mm - 50m
445kr.
FRÁ FÉLAGI ELDRI BORGARA
Í REYKJAVÍK OG NÁGRENNI
Félagsskírteinin og afsláttarbók Landssambands eldri borgara 2010 hafa verið send
félagsmönnum. Í afsláttarbókinni eru talin upp þau fyrirtæki og þær stofnanir um
land allt sem veita eldri borgurum 5-20% afslátt af vörum og þjónustu. Þeir sem
eru sextíu ára og eldri geta orðið félagsmenn.
Nánari upplýsingar um félagsstarfi ð eru í Félagstíðindum eldri borgara í Reykja-
vík sem send eru félagsmönnum án endurgjalds og á vefsíðunni www.feb.is.
Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki