Fréttablaðið - 30.03.2010, Qupperneq 50
34 30. mars 2010 ÞRIÐJUDAGUR
sport@frettabladid.is
Enska úrvalsdeildin;
Manchester City-Wigan 3-0
1-0 Carlos Tévez (72.), 2-0 Carlos Tévez (74.), 3-0
Carlos Tévez (84.)
STAÐA EFSTU OG NEÐSTU LIÐA
Man. United 32 23 3 6 76-25 72
Chelsea 32 22 5 5 82-29 71
Arsenal 32 21 5 6 74-34 68
Tottenham 31 17 7 7 57-29 58
Man. City 31 15 11 5 58-39 56
Liverpool 32 16 6 10 53-32 54
Aston Villa 31 13 12 6 43-32 51
Everton 32 13 10 9 50-42 49
------------------------------------------------------------
Wigan 32 8 7 17 29-62 31
West Ham 32 6 9 17 38-55 27
Hull City 31 6 9 16 31-64 27
Burnley 32 6 6 20 31-65 24
Portsmouth 32 6 4 22 28-60 13
Iceland Express karla
Snæfell-Grindavík 110-93 (55-57)
Stig Snæfells: Sean Burton 24 (11 stoðs.), Hlynur
Bæringsson 23 (14 fráköst, 5 stoðs., 3 varin skot),
Jón Ólafur Jónsson 20, Sigurður Þorvaldsson 18
(8 fráköst, 5 stoðs.), Pálmi Freyr Sigurgeirsson 10,
Martins Berkis 8, Emil Þór Jóhannsson 5, Sveinn
Arnar Davíðsson 2.
Stig Grindavíkur: Páll Axel Vilbergsson 28,
Darrell Flake 24 (7 frák.), Brenton Birmingham 12
(7 frák. 5 stoðs.), Guðlaugur Eyjólfsson 10, Ómar
Örn Sævarsson 10, Arnar Freyr Jónsson 5 (10
stoðs.), Þorleifur Ólafsson 4.
Njarðvík-Stjarnan 91-95 (37-52)
Stig Njarðvíkur: Magnús Þór Gunnarsson 19,
Nick Bradford 15 (7 fráköst, 8 stoðs.), Jóhann Árni
Ólafsson 14, Friðrik E. Stefánsson 11 (8 fráköst,
7 stoðsendingar), Guðmundur Jónsson 9, Hjörtur
Hrafn Einarsson 9 (7 fráköst), Páll Kristinsson 6,
Kristján Rúnar Sigurðsson 6, Egill Jónasson 2.
Stig Stjörnunnar: Justin Shouse 27 (12 stoðs.),
Djorde Pantelic 21 (9 fráköst, 4 varin), Jovan
Zdravevski 13, Kjartan Kjartansson 10, Fannar
Freyr Helgason 9 (7 frák.), Guðjón Lárusson 7,
Magnús Helgas. 5 (7 frák.), Ólafur Sigurðsson 3.
Iceland Express kvenna
Hamar-KR 69-81 (30-42)
Stig Hamars: Koren Schram 19, Julia Demirer 15
(11 fráköst), Guðbjörg Sverrisdóttir 8, Kristrún Sig
urjónsdóttir 8 (6 stoðsendingar), Íris Ásgeirsdóttir
8, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 6, Fanney Lind
Guðmundsdóttir 3, Hafrún Hálfdánardóttir 2.
Stig KR: Margrét Kara Sturludóttir 19 (4 fráköst,
10 stoðsendingar), Jenny Pfeiffer-Finora 15,
Signý Hermannsdóttir 13 (13 fráköst, 4 varin
skot), Unnur Tara Jónsdóttir 12 (7 fráköst), Hildur
Sigurðardóttir 11 (19 fráköst, 6 stoðsendingar),
Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir 9, Helga Einarsdóttir
2.
ÚRSLITN Í GÆR
FÓTBOLTI Átta liða úrslit Meist-
aradeildarinnar í fótbolta hefj-
ast í kvöld með leikjum Bayern
München og Manchester United í
München og uppgjöri frönsku lið-
anna Lyon og Bordeaux. Leikirn-
ir hefjast nú klukkutíma fyrr eða
klukkan 18.45.
Manchester United hefur verið
á miklu skriði að undanförnu með
fimm sigra og 14-1 í markatölu
út úr síðustu fimm leikjum en á
sama tíma hafa tvö deildartöp
Bayern í röð kostað liðið toppsæt-
ið heima fyrir.
„Rooney hefur verið frábær
fyrir þá en hvað gerist hjá þeim
ef hann klikkar? Þeir eru nánast
eins manns lið og okkar varn-
armenn munu reyna að trufla
hann allar 180 mínúturnar,“ sagði
Arjen Robben sem hefur skorað
mörg mikilvæg mörk fyrir Bay-
ern að undanförnu. Alex Fergu-
son, stjóri United, hvíldi bæði
Rooney og Rio Ferdinand en þeir
eru klárir í slaginn í kvöld.
Manchester United hefur
aðeins náð að vinna einn af sjö
leikjum sínum á móti Bayern og
það var þegar félagið tryggði sér
sigur í Meistaradeildinni 1999
með tveimur mörkum í uppbót-
artíma. „Þessi tölfræði kemur
mér svolítið á óvart en þetta hafa
alltaf verið jafnir leikir og það
er alltaf erfitt að mæta þýsk-
um liðum,“ sagði Ryan Giggs hjá
United sem hefur spilað flesta
þessa leiki liðanna. - óój
Meistaradeildin í kvöld:
Hvað gerist ef
Rooney klikkar?
17 MÖRK Í SÍÐUSTU 13 LEIKJUM Wayne
Rooney er klár. MYND/NORDIC IMAGES/GETTY
> Óheppnin eltir Veigar Pál
Þetta var ekki góð helgi fyrir íslenska lands-
liðið því auk þess að landsliðsfyrirliðinn
Hermann Hreiðarsson sleit hásin þá
meiddist Veigar Páll Gunnarsson
illa á vinstri ökkla eftir aðeins tólf
mínútna leik á móti Aelesund í
norsku úrvalsdeildinni. Liðbandið er
skaddað og búist er við því að Veig-
ar Páll verði frá í fjórar til sex vikur.
Veigar Páll byrjaði tímabilið vel
með Stabæk og lagði upp tvö mörk
í fyrsta leiknum áður en hann varð
að yfirgefa völlinn vegna meiðsla.
KÖRFUBOLTI Það hefði nánast ekki
skipti neinu máli hvað Grindavík
hefði gert í Fjárhúsinu í gær, þeir
hefðu líklega alltaf tapað. Skotsýn-
ing Snæfells var með slíkum ólík-
indum að ekkert lið hefði unnið
Snæfell í þessum ham.
Það gerði Grindavík heldur ekki
í gær því Snæfell vann, 110-93.
Snæfell var með 60 prósent þriggja
stiga nýtingu í leiknum. Hittu úr 19
af 32 þriggja stiga skotum sínum.
Til samanburðar var liðið með
49 prósent tveggja stiga nýtingu.
Það þýðir einfaldlega að liðið hitti
betur eftir því sem það var lengra
frá körfunni.
Grindavík átti alls ekkert slæm-
an dag. Sóknarleikur liðsins fínn
og 93 stig hefðu á venjulegum degi
líklega dugað til sigurs. Það var
bara ekkert sem gat stöðvað Snæ-
fell í gær en liðið er afar líklegt til
stórafreka í vetur.
Sendum sterkt lið í sumarfrí
„Við vorum ofboðslega vel stemmd-
ir og búnir að kafa djúpt í fræðin
fyrir leikinn. Við vorum ekki sáttir
við okkar leik á föstudag þó svo við
hefðum verið fáránlega sáttir við
sigurinn. Ég er ótrúlega ánægð-
ur með strákana því við erum að
senda afar sterkt lið í sumarfrí,“
sagði skælbrosandi þjálfari Snæ-
fells, Ingi Þór Steinþórsson, eftir
leik en hann er að gera frábæra
hluti með liðið. Það er þegar búið
að vinna bikarinn og ætlar sér alla
leið og vinna Íslandsmeistaratitil-
inn líka.
„Það eru allir að stefna að sama
hlutnum og menn verða að hafa
trú á sínu liði. Við erum stoltir
af okkur. Erum ríkjandi bikar-
meistarar, komnir í undanúrslit
og ætlum okkur að gera einhverja
hluti. Við erum alls ekkert hætt-
ir.“
Friðrik Ragnarsson, þjálfari
Grindavíkur, var að vonum niður-
lútur eftir leik en gat þó ekki boðið
upp á neinar afsakanir.
Töpuðum fyrir betra liði
„Við töpuðum einfaldlega fyrir
betra liði hér í dag. Það er ekkert
hægt að neita því. Ég held ég hafi
sjaldan eða aldrei séð aðra eins
skotsýningu og þeir settu upp hér í
dag. Við vorum gjörsamlega skotn-
ir í kaf,“ sagði Friðrik.
„Við vorum alveg gíraðir í leik-
inn, skoruðum nóg ég hefði þegið
93 stig fyrir leik. Þeir skora 110
stig og eru með 60 prósent þriggja
stiga nýtingu. Þetta er bara dóna-
legt.“
Grindavík var spáð titlinum
fyrir mót en liðið hefur ekki stað-
ið undir væntingum og stendur
uppi titlalaust og úr leik í átta liða
úrslitum. Hvað vantar upp á hjá
liðinu?
„Það er varnarleikur. Við erum
með flott sóknarlið en ef við ætlum
okkur stærri hluti þá verðum við
að fara að spila almennilegan varn-
arleik. Við erum ekki nógu gott
varnarlið,“ sagði Friðrik. Hann er
samningslaus og sagðist ekki vita
hvort hann yrði áfram með liðið.
henry@frettabladid.is
Skotsýning hjá Snæfelli
Snæfell skaut Grindavík í bólakaf í Fjárhúsinu í Stykkishólmi í gær og tryggði
sig inn í undanúrslit Iceland Express-deildar karla. Snæfellsliðið hitti úr 19 af 32
þriggja stiga skotum sínum og sópaði Grindavík í sumarfrí.
SÆTIÐ Í UNDANÚRSLTIUM TRYGGT Hlynur Bæringsson, fyrirliði Snæfells, var með 23
stig og 14 fráköst í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
„Við kunnum vel við okkur hérna í apabúrinu,“ sagði
Margrét Kara Sturludóttir sem var stigahæst hjá KR
þegar liðið lagði Hamar að velli í Hveragerði. KR er
ósigrað í blómabænum og sigur liðsins í gær var
öruggur, úrslitin 69-81.
Eftir jafnan fyrsta leikhluta tók KR völdin í öðrum og
lét þau aldrei af hendi. Staðan í einvíginu um
Íslandsmeistaratitilinn er því jöfn 1-1 en þrjá
leiki þarf til að vinna titilinn. Liðin mætast að
nýju annað kvöld í DHL-höllinni.
„Einu tapleikirnir okkar í vetur eru á heima-
velli sem er sérkennilegt. Kannski skiptir
heimavöllurinn engu fyrir okkur, við verðum
bara að spila okkar leik til að þetta gangi
upp. Við vorum yfirspenntar í fyrsta leiknum á
föstudaginn en komum núna yfirvegaðar til leiks.
Okkar leikáætlun gekk upp.“
En hvað var Margrét ánægðust með í leiknum? „Samheldnina og vörn-
ina. Þegar það er til staðar getum við allt,“ sagði Margrét Kara sem
skoraði 19 stig fyrir KR og var með 10 stoðsendingar í Hveragerði í
gær. Signý Hermannsdóttir átti einnig góðan leik með 13 stig og jafn
mörg fráköst. Annars var allt lið KR að finna sig vel í þessum leik.
KR er búið að vinna heimavallarréttinn til baka og Ágúst
Björgvinsson, þjálfari Hamars, var skiljanlega ekki sáttur. „Við
komum ekki nægilega hungraðar og einbeittar í þennan
leik,“ sagði Ágúst og ljóst að hans lið þarf að vinna aftur í
Vesturbænum. „Okkur hefur gengið vel þar en við vinnum
ekki svona gott lið eins og KR með þessu hugarfari eins
og við sýndum.“
Hann segir liðið hafa verið langt frá sínu besta. „Það er
ýmislegt sem við þurfum að laga fyrir næsta leik. Liðið sem
vildi þetta meira vann í dag,“ sagði Ágúst Björgvinsson eftir
leik.
- egm
KR-INGURINN MARGRÉT KARA STURLUDÓTTIR: KR-KONUR UNNU Í HVERAGERÐI OG JÖFNUÐU EINVÍGIÐ
Með samheldni og svona varnarleik getum við allt
KÖRFUBOLTI Justin Shouse átti frá-
bæran leik þegar Stjarnan vann
95-91 sigur á Njarðvík í Ljóna-
gryfjunni í gærkvöldi og tryggði
sér með því oddaleik á heimavelli
á fimmtudagskvöldið. Justin var
með 27 stig og 12 stoðsending-
ar og sá til þess að sóknarleikur
Stjörnumanna gekk miklu betur
en í fyrsta leiknum þar sem liðið
skoraði aðeins 64 stig og tapaði 28
boltum.
Stjarnan var þó nærri búið
að missa niður 17 stiga forskot í
þriðja leikhluta en tókst að svara
spretti heimamanna og forða sér
frá sumarfríi.
„Við höfum tekið stuðnings-
mennina okkar í rússíbanaferðir
í leikjum okkar í vetur og þetta
var því kannski dæmigerður leik-
ur fyrir okkar lið en okkur tókst
að hanga á forustunni og tryggja
okkur oddaleik á fimmtudaginn,“
sagði Justin í viðtalið á Stöð Sport
eftir leikinn.
„Ég tapaði tíu boltum í
síðasta leik þannig að ég
þurfti að einbeita mér
að því að passa boltann
í kvöld. Teitur kom með
nýja hluti inn sem opn-
uðu fyrir okkur betri
svæði til að vinna
með og breyting-
arnar hans hjálp-
uðu okkur mikið
og þá sérstaklega
í fyrri hálfleikn-
um,“ sagði Just-
in en Stjarnan
komst í 16-4 og
var 52-37 yfir í hálfleik. Njarð-
víkingunum tókst hins vegar að
jafna leikinn í þriðja leikhluta en
endurkoman kostaði mikið þrek
og Stjörnumenn voru sterkari í
lokaleikhlutanum.
„Við fórum illa að ráði okkar í
fyrsta leiknum. Menn voru staðir
og og það var eitthvað úrslita-
keppnisstress í mönnum.
Það var engu breytt, við
vorum með sömu leik-
kerfi en við gerð-
um hlutina miklu
betur. Núna er
þetta aftur á
byrjunarreit. Við
notum vikuna vel
og mætum flottir á
fimmtudaginn,“ sagði
Teitur Örlygsson,
þjálfari Stjörnunnar,
við Stöð 2 Sport. - óój
Justin Shouse var frábær þegar Stjarnan vann í Njarðvík og tryggði sér oddaleik:
Stjarnan ekki á leið í sumarfrí
Í STUÐI Stjörnu-
maðurinn Justin
Shouse. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM