Fréttablaðið - 07.04.2010, Side 23
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
BOLUNGARVÍKURGÖNG verða opnuð fyrir almenning um
miðjan júlí. Göngin verða 8,7 metra breið og 5,1 km að lengd.
Einnig er verið að byggja um 310 metra langa steinsteypta veg-
skála, 3 km langa vegi og tvær 15 metra langar steinsteyptar brýr.
„Við skiljum yfirleitt eitthvað
íslenskt eftir í ísskápnum handa
fólkinu ef það lendir seint að
kvöldi, eins og flatkökur, hangi-
kjöt og skyr og stundum leiðbein-
ingar með svo fólk viti hvað það
er að borða,“ segir Ingrid sem
hefur stundað íbúðaskipti undan-
farin ár. Hún segir þennan ferða-
máta sérstaklega fjölskylduvæn-
an og fara vel með veskið.
„Við höfum gert þetta átta
sinnum undanfarin ár og höfum
meðal annars farið til San Frans-
isco, Ástralíu, Sviss, Spánar og
Toronto í Kanada. Þessi ferða-
máti hefur í rauninni gert okkur
kleift að ferðast um allan heim-
inn án þess það kosti mikið,
nema flugfarið. Það er líka svo
skemmtilegt að búa ekki í túr-
istahverfi og hitta nágrannana
meðan maður slær garðinn eða
tæmir sundlaugina fyrir íbúa
hússins. Við lentum til dæmis í
því í Toronto að nágrannarnir
slógu upp götupartíi til að bjóða
okkur velkomin í hverfið.“
Á vefsíðum sem halda utan um
íbúðaskipti er yfirleitt hægt að
skrá inn hvaða lönd eru á óska-
listanum að heimsækja og hve-
nær. Ingrid hefur hins vegar
haldið öllum möguleikum opnum
og oftar en ekki látið tilvilj-
un ráða hvert fjölskyldan fer í
frí eftir því hvaða tilboð berst í
gegnum síðuna.
„Við höfum ekki skipt oftar
en einu sinni við sama fólkið og
látum það ráðast hvert við förum.
Við ferðumst alltaf öll saman,
fjölskyldan, en börnin okkar eru
15 og 17 ára í dag. Við segjum
stundum að þetta sé eins og á sex
stjörnu hóteli því þarna er allt til
alls. Hægt að vakna þegar maður
vill og þarf ekki að mæta í morg-
unmat fyrir klukkan níu. Yfir-
leitt má ganga í allt á heimilinu,
leikföng fyrir krakkana, hjól og
fleira. Bíllinn er yfirleitt innifal-
inn líka sem er mjög þægilegt því
það kostar sitt að leigja bíl.“
Aðspurð hvort ekki sé óþægi-
legt að vita af ókunnugum inni
á heimili fjölskyldunnar segist
Ingrid aldrei hafa lent í vandræð-
um með skiptin. Þvert á móti sé
gott að vita af einhverjum í hús-
inu og oft hafi tekist ágætis kynni
með fjölskyldu hennar og fólkinu
sem gistir í húsinu þeirra.
„Við erum enn í sambandi við
fólkið sem við skiptum við í San
Fransisco. Þau lentu í miklu rign-
ingarsumri hér á Íslandi en voru
hæstánægð með það því það rign-
ir aldrei þar. Mér finnst þetta
frábær leið til að ferðast og til að
kynnast fólki og ólíkum siðum í
hverju landi.“ heida@frettabladid.is
Má vakna þegar ég vil
Ingrid Kuhlman, framkvæmdastjóri Þekkingarmiðlunar, hefur ferðast um allan heim með fjölskylduna en
hún stundar svokölluð íbúðaskipti gegnum vefsíðuna www.intervac.com
Ingrid Kuhlman, framkvæmdastjóri Þekkingarmiðlunar, segir íbúðaskipti vera bæði hagkvæman og fjölskylduvænan ferðamáta.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
s
g Mjódd
UPPLÝSINGAR O
Nýtt námskeið
hefst 9. apríl n.k.
Ryðfríir neysluvatnshitarar, hitöld (element),
hitastillar, hitastýringar, rafhitarar til húshitunar
og flest annað til rafhitunar.
Við hjá Rafhitun erum sérfræðingar í öllu sem við
kemur rafhitun. Við bjóðum einungis úrvals tæki
sem hafa sannað sig með áralangri reynslu.
íslensk
framleiðsla
í 20 ár
Rafhitarar fyrir heita potta
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki