Fréttablaðið - 19.04.2010, Page 17
FASTEIGNIR.IS
19. APRÍL 201016. TBL.
Fasteignasalan Miklaborg hefur til sölu fallegt
270 fm einbýlishús með tvöföldum bílskúr við
Sunnuflöt í Garðabæ.
E ignin skiptist í forstofu, snyrtingu, hol, stofu, borðstofu, eldhús, þvottahús, sjónvarpshol, þrjú herbergi, fataherbergi, tölvukrók og bað-
herbergi. Húsið er teiknað af Kjartani Sveinssyni
arkitekt, er með gott útsýni og fallega lóð.
Komið er inn í flísalagða forstofu með skápum.
Snyrtingin er flísalögð og það er holið einnig. Stof-
urnar eru sérlega rúmgóðar og er fallegt Drápuhlíð-
argrjót á vegg í stofu. Útgangur út á pall í vesturátt
frá stofunni. Eldhúsið er með flísalögðu gólfi með
efri og neðri skápum og flísum á milli. Í eldhúsinu er
bæði háfur og góður borðkrókur. Inn af eldhúsinu er
þvottahús með útgangi út á baklóð. Gengið er úr hol-
inu upp í rúmgott sjónvarpshol með flísalögðu gólfi
og arni. Svalir eru út af stofunni til suðurs og eru
þær mjög sólríkar. Herbergin eru þrjú og mögulegt
að fjölga þeim. Eru tvö þeirra með korklögðu gólfi og
skápum og eitt parketlagt og með fataherbergi inn af
og tölvukrók.
Þak hússins er nýlegt og óregonfura í öllum glugg-
um. Húsið er tilbúið til afhendingar samkvæmt sam-
komulagi.
Útsýni og sólríkar svalir
Húsið er teiknað af Kjartani Sveinssyni arkitekt.
MÁVAHRAUN 25 - HAFNF.
OPIÐ HÚS Í DAG KL. 18-19
Opið
hús
HOLTSBÚÐ - GARÐABÆ
Vorum að fá í einkasölu einbýlishús á einni
hæð ásamt góðum bílskúr, samtals 160
fm. Frábær staðsetning. Stofa, borðst., 3
góð herbergi, baðherb., sauna. Góð suður
verönd og garður. Stutt í skóla og þjónustu.
Miklir stækkunarmöguleikar. Skipti ath.
Verð 39,8 millj.
Á þessum vinsæla stað, einbýlishús á
einni hæð ásamt stórum bílskúr, samtals
186 fm. Stofa, borðst., 5-6 herb, eldhús,
þvottahús, baðherb., gestasnyrting. Flísar
og parket. Góð hellulögð s-verönd. Laust.
Skipti á minni eign ath. Verð 42,8 millj.
Einb.
Einb.