Fréttablaðið - 27.04.2010, Blaðsíða 17
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
Guðbjörg Jónsdóttir hefur ásamt
Margréti Knútsdóttur staðið fyrir
hlaupanámskeiðum í Reykjanes-
bæ frá árinu 2007, þar sem þátt-
takendur læra meðal annars rétta
hlaupatækni. Guðbjörg fékk sjálf
hlaupabakteríuna fyrir um sex-
tán árum og hleypur nú allt árið
um hring.
„Þetta hófst nú bara allt einn
góðan veðurdag þegar ég sá fólk
með vasadiskó á hlaupum út um
gluggann heima hjá mér og lang-
aði líka að prófa. Ég fór að hlaupa
með kunningjakonu minni, ánetj-
aðist þessu eiginlega og í kjöl-
farið setti ég mér það markmið
að hlaupa Reykjavíkurmaraþon-
ið árið 1995,“ minnist Guðbjörg,
sem náði settu marki. Hljóp tíu
kílómetra í Reykjavíkurmaraþon-
inu, hefur gert það nánast árlega
eftir það og hleypur nú allan árs-
ins hring.
Beðin um að lýsa því í hverju
aðdráttarafl íþróttarinnar sé
helst fólgið, segir Guðbjörg hlaup
framkalla einstaka vellíðunartil-
finningu. „Þetta er næstum eins
og að fá sér nammi. Yndislegt
meðan á því stendur og eftir á er
maður endurnærður og uppfullur
af orku. Það er þessi vellíðunar-
tilfinning sem togar mann til sín,“
útskýrir hún.
Guðbjörg segist vilja að sem
flestir upplifi ánægjuna sem
fylgir þessari íþrótt og hafi hún
af þeim sökum farið að halda
hlaupa námskeið með Margréti
fyrir íbúa Reykjanesbæjar. „Ætli
við séum ekki búnar að kenna yfir
200 manns frá upphafi. Ekkert lát
virðist ætla að vera á aðsókn og
sem dæmi um það komust færri
að en vildu á síðasta námskeið sem
við fórum af stað með nú á dög-
unum.“
Mikið er lagt upp úr réttri tækni
á hlaupanámskeiðunum að sögn
Guðbjargar og meðal annars er
stuðst við aðferðir sem þekkjast
víða í Afríku. „Við kennum fólki að
hlaupa með kviðinn spenntan og
gætum þess að fara ekki of hratt
yfir. Eiginlega erum við frekar
að skokka heldur en að hlaupa til
að ofreyna ekki líkamanum og ná
fram þessari vellíðan. Það er svo
mikilvægt að hlusta á líkamann og
við teljum okkur nokkuð skynsam-
ar í þeim efnum,“ segir Guðbjörg.
roald@frettabladid.is
Eins og að borða nammi
Guðbjörg Jónsdóttir kennari hefur verið haldin ólæknandi hlaupabakteríu um nokkurra ára skeið og seg-
ir hlaup nánast ávanabindandi sökum þeirrar einstöku vellíðunartilfinningar sem íþróttin veiti.
Guðbjörg til hægri, Margrét fyrir miðju og Eygló Anna Tómasdóttir í Reykjavíkurmaraþoninu 2008. Guðbjörg hefur tekið þátt í
maraþoninu nánast árlega síðan 1995 og stefnir ótrauð á þátttöku í ár. MYND/ÚR EINKASAFNI
VÍSINDI Á VORDÖGUM er árleg kynning á vís-
indastarfi Landspítala. Hún hefst föstudaginn 4. maí.
Haldnir verða fyrirlestrar, tilkynnt um heiðursvísinda-
mann ársins, ungan vísindamann ársins og úthlutað
styrkjum úr Vísindasjóði Landspítala.
– Lifið heil Lægra
verð
í Lyfju
www.lyfja.is
Gildir til 30. apríl
15% verðlækkun
LAMISIL ONCE
2.393 kr. 2.034 kr.
15% verðlækkun
VECTAVIR frunsuáburður
1.697 kr. 1.442 kr.
Viltu breyta mataræðinu
til batnaðar? ....en veist ekki hvar þú átt að byrja?
www.heilsuhusid.is
INGA KRISTJÁNSDÓTTIR næringarþerapisti D.E.T.
leiðir ykkur í allan sannleikann um hversu auðvelt
það er í raun að breyta mataræðinu til batnaðar.
Farið verður með einföldum hætti yfir:
• Hvaða óæskilegum mat við getum skipt út.
• Hvaða fita er óholl og hver er lífsnauðsynleg.
• Hvernig við getum komið jafnvægi á blóðsykurinn
og öðlast meiri orku vellíðan og heilbrigði.
Í lok fyrirlestrar fáið þið leiðbeiningar um val á
heilsufæði. Innifalið í námskeiði er mappa með
uppskriftum og fróðleik. Verð aðeins kr. 4.400.-
Inga tekur á móti fólki í einkaráðgjöf alla daga.
Nánari upplýsingar og skráning í
síma 8995020 eða á eig@heima.is
Þriðjudaginn 4. maí í Heilsuhúsinu Lágmúla
Kl. 19:30 - 22:00
Patti.is
Landsins mesta úrval af sófasettum
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Opið : Mánud. - Föstud. frá 9 til 18 og Laugard. frá 11 til 16
Kynn
ingar
tilboð
Horn
sófi 2
H2man-8183 sett 3+1+1
Láttu þér líða vel í sófa frá Patta
299.9
00 kr