Fréttablaðið - 27.04.2010, Side 43
ÞRIÐJUDAGUR 27. apríl 2010 27
LAGERHRE
INSUNTim
bursala
Framlengju
m lagerhre
insun til 30
. apríl
BYKO Brei
dd
Nýjar
vörurt.d. pallaefni60%afsláttur
Allt
að
Pallaefni –
Burðarvið
ur - Vatns
klæðning -
Panill - By
ggingatimb
ur
Massaran
duba palla
efni - Garð
borð – Blóm
aker - Fug
lahús o. fl.
HANDBOLTI Valsmenn tryggðu sér
farseðilinn eftir 30-26 sigur gegn
Akureyri í gær en framlengingu
þurfti til að gera út um hvort liðið
færi í úrslitarimmuna í N1-deild
karla.
Ljóst var að bæði lið voru vel
undirbúin fyrir þennan slag og
fylgdust liðin að allan fyrri hálf-
leikinn. Það var fín stemning í
Vodafone-höllinni í gær en þó var
ekki setið í öllum sætum stúkunn-
ar þetta kvöldið.
Leikurinn var hraður og
skemmtilegur en Valsmenn voru
óheppnir snemma leiks er stór-
skytta þeirra Fannar Þór Frið-
geirsson þurfti að yfirgefa völlinn
eftir baráttu í vörninni. Kallað var
eftir lækni því að sauma þurfti
vörina á honum.
Eftir fimmtán mínútna leik
misstu gestirnir tvo leikmenn útaf
og Valsmenn því tveimur fleiri.
Þeir nýttu liðsmuninn vel og voru
skynsamir í sókninni. En norðan-
menn voru seigir og leystu vel úr
þessari stöðu.
Elvar Friðriksson kom ferskur
inn í sóknina hjá heimamönnum
og stimplaði sig strax inn í leikinn
með tveimur sleggjum. Arnór Þór
Gunnarsson fór mikinn í liði Vals í
fyrrihálfleiknum með fimm mörk
og Hlynur Morthens góður í mark-
inu með 9 skot varin fyrir hlé.
Oddur Grétarsson í liði gest-
anna var heitur hinum megin með
sex mörk í fyrri hálfleik.Gestirnir
leiddu í hálfleik, 14-15.
Fannar Þór var mættur aftur út
á völlinn með Valsmönnum í síð-
ari hálfleik og fjörið hélt áfram.
Stemningin lifnaði loks almenni-
lega við í húsinu og spennustigið
fór hækkandi.
Þegar síðari hálfleikur var
hálfnaður voru Valsmenn komnir
í góða stöðu, náðu þriggja marka
forystu og leiddu leikinn. Gestirn-
ir frá Akureyri gáfu þó lítið eftir
og fylgdu þeim fast á eftir.
Síðustu mínútur leiksins voru
æsispennandi. Akureyringar náðu
að jafna og allt gat gerst. Orri
Freyr Gíslason, línumaður heima-
manna, skoraði gríðarlega mikil-
vægt mark er mínúta var eftir.
Rúnar Sigtryggsson, þjálfari
gestanna, tók leikhlé í kjölfar-
ið og lagði línurnar fyrir lið sitt.
Dæmið gekk frábærlega upp hjá
þeim og endaði með því að Jón-
atan Þór Magnússon stóð einn og
óvaldaður á línunni, hann skoraði
og tryggði sínum mönnum fram-
lengingu.
Fannar Þór, leikmaður Vals, tók
leikinn í sínar hendur og skoraði
tvö mörk fyrir heimamenn, annað
þeirra úr víti. Akureyringar fundu
ekki leiðina framhjá Morthens
í markinu og staðan eftir fyrri
hluta framlengingar 28-26.
Hlynur Morthens gjörsamlega
lokaði rammanum í seinni hlut-
anum og skoruðu gestirnir ekki
mark. Sigfús Páll og Fannar Þór
skoruðu svo hvor sitt markið og
gulltryggðu sigur heimamanna.
Elvar Friðriksson var marka-
hæstur í liði heimamanna með átta
mörk en í liði gestanna var það
Oddur Grétarsson með níu mörk.
Hlynur Morthens varði lykilvörsl-
ur fyrir heimamenn undir lokin og
endaði 19 skot varin.
Valsarar mæta Haukum í úrslit-
um um Íslandsmeistaratitilinn.
- rog
Valsmenn mæta Haukum annað árið í röð í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn:
Fannar Þór kláraði Akureyri
FLOTTUR Í FRAMLENGINGUNNI Fannar Þór Friðgeirsson var góður á úrslitastundu í
oddaleiknum á móti Akureyri í gær. Hér fær hann óblíðar móttökur.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Iceland Express-deild karla
Fjórði úrslitaleikur um titilinn
Snæfell-Keflavík 73-82 (34-40)
Stig Snæfells: Jeb Ivey 22 (7 stoðs.), Hlynur Bær
ingsson 20 (9 fráköst), Jón Ólafur Jónsson 10,
Sigurður Á. Þorvaldsson 9, Emil Þór Jóhannsson
5, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 4, Martins Berkis 3.
Stig Keflavíkur: Uruele Igbavboa 20 (11 fráköst,
5 stoðsendingar), Sigurður Gunnar Þorsteinsson
18, Hörður Axel Vilhjálmsson 15, Nick Bradford
15 (6 fráköst, 6 stoðs.), Þröstur Leó Jóhannsson
6, Sverrir Þór Sverrisson 6 (11 stoðsendingar), Jón
Nordal Hafsteinsson 2.
Oddaleikurinn um Íslandsmeistaratitilinn fer
fram í Toyota-höllinni í Keflavík klukkan 19.15 á
fimmtudagskvöldið.
N1-deild karla í handbolta
Oddaleikur um sæti í lokaúrslitum
Valur-Akureyri 30-26 (14-15, 26-26)
Mörk Vals (skot): Elvar Friðriksson 8 (15/1),
Fannar Þór Friðgeirsson 7/1 (17/1), Arnór Þór
Gunnarsson 7/4 (12/6), Sigfús Páll Sigurðsson 3
(5), Jón Björgvin Pétursson 1 (1), Orri Freyr Gísla
son 1 (1), Gunnar Ingi Jóhannsson 1 (1), Baldvin
Þorsteinsson 1 (3), Sigurður Eggertsson 1 (7).
Varin skot: Hlynur Morthens 19 skot varin. Ingvar
Guðmundsson 2 varin víti.
Hraðaupphlaup: 6 (Arnór, Gunnar, Jón, Baldvin,
Elvar, Orri)
Fiskuð víti: 8 (Sigfús Páll 3, Orri 2, Sigurður 2,
Baldvin)
Utan vallar: 8 mín.
Mörk Akureyrar (skot): Oddur Grétarsson 9/5
(10/6), Heimir Örn Árnason 6 (12), Guðmundur
Hólmar Helgason 3 (7), Hörður Fannar Sigþórs
son 2 (3), Jónatan Þór Magnússon 2 (7/1), Árni
Þór Sigtryggsson 2 (9), Hreinn Þór Hauksson 1
(1), Geir Guðmundsson 1 (1).
Varin skot: Hörður Flóki Ólafsson 1 skot varið.
Hafþór Einarsson 15/3 skot varin.
Hraðaupphlaup: 2 (Oddur, Árni)
Fiskuð víti: 7 (Hörður 3, Heimir 2, Oddur,
Hreinn)
Utan vallar: 6 mín.
Haukar og Valur mætast í fyrsta úrslitaleiknum
á Ásvöllum á föstudagskvöldið klukkan 20.00 en
leikur tvö er síðan á sunnudaginn klukkan 16.00
í Vodafonehöllinni. Það lið sem fyrr vinnur þrjá
leiki verður Íslandsmeistari.
ÚRSLITN Í GÆR
HANDBOLTI „Þessar rimmur við
Akureyri hér í úrslitakeppninni
eru einhverjar þær skemmtileg-
ustu sem ég farið í á ævinni,“
sagði Óskar Bjarki Óskarsson,
þjálfari Vals, eftir sigur liðsins
gegn Akureyri í gær.
„Þeir eru algjörir stríðsmenn
og Heimir Árnason var magn-
aður þarna hjá þeim ásamt Oddi
Grétarssyni sem er einn efnileg-
asti ef ekki bara sá efnilegasti á
landinu. Þeir spila líka góða vörn
og voru erfiðir. En ég var mjög
ánægður með framlenginguna
því þar sýndum við úr hverju við
erum gerðir og kláruðum þetta,“
bætti Óskar við en Valsmenn
mæta Haukum í úrslitarimm-
unni.
„Ég er búinn að gefa það út að
þetta er mitt síðasta ár með Val
og ætla að gefa meira en allt til
að reyna vinna þennan titil. Nú
erum við með alla heila, annað
en í fyrra, og við getum ekki
keypt einhvern Nick Bradford
ef við lendum í meiðslum. Von-
andi getum við veitt þeim harða
keppni. Við ætlum að fara í þetta
til að klára þá, það er alveg á
hreinu,“ sagði Óskar. - rog
Óskar Bjarni Óskarsson:
Ætlum í þetta
til að klára þá
AFTUR Í ÚRSLIT Óskar Bjarni Óskarsson.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM