Fréttablaðið - 05.05.2010, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 5. maí 2010 13
Prestastefna er biskupi til ráðu-neytis í kenningarlegum efnum
og kölluð saman á hverju ári. Á
Prestastefnunni í Vídalínskirkju
27.-29. apríl 2010 var lögð fram
tillaga fjölmargra presta og guð-
fræðinga við lagafrumvarp dóms-
og mannréttindamálaráðherra um
ein hjúskaparlög á Íslandi. Til-
lagan var svohljóðandi: „Presta-
stefna haldin í Vídalínskirkju 27.-
29. apríl 2010 lýsir yfir stuðningi
við lagafrumvarp dóms- og mann-
réttindamálaráðherra um ein hjú-
skaparlög á Íslandi. Prestastefna
telur íslensku þjóðkirkjuna í stakk
búna til að stíga þetta skref með
ríkisvaldinu í ljósi ítarlegrar guð-
fræðilegrar umfjöllunar síðustu
ára á kirkjulegum vettvangi um
kirkju, kynhneigð og hjónaband.“
Prestastefnan samþykkti með
naumum meirihluta að vísa mál-
inu til biskups og kenningarnefnd-
ar en taka ekki efnislega afstöðu
til tillögunnar í atkvæðagreiðslu.
Prestastefna hafnaði ekki tillög-
unni og flutningsmennirnir drógu
hana ekki til baka. Það er því hlut-
verk biskups og kenningarnefnd-
ar að taka afstöðu til frumvarps-
ins um ein hjúskaparlög á Íslandi
á grundvelli tillagna og umræðu á
Prestastefnu. Við undirrituð sem
erum prestar, guðfræðingar og
djáknar í íslensku Þjóðkirkjunni
og kristnum fríkirkjum á Íslandi
viljum árétta stuðning okkar við
þetta frumvarp og ósk okkar um
að íslenska þjóðkirkjan taki að sér
að gefa saman pör af sama kyni í
hjónaband.
Ríkisstjórn Íslands einsetti
sér í stjórnmálasáttmála 10. maí
2009 að vinna að setningu einna
hjúskaparlaga á kjörtímabil-
inu. Málið nýtur stuðnings þing-
manna úr öllum flokkum og flokk-
ar í stjórnarandstöðu hafa líka
lýst stuðningi við málið í flokks-
samþykktum. Það er því traust-
ur þingmeirihluti fyrir einum
hjúskaparlögum á Alþingi. Með
frumvarpi dómsmálaráðherra um
breytingar á hjúskaparlögum og
fleiri lögum og um brottfall laga
um staðfesta samvist (ein hjúskap-
arlög) sem lagt hefur verið fyrir
Alþingi á 138. löggjafarþingi vill
þingið leggja áherslu á jafnan rétt
einstaklinga til að ganga í hjóna-
band óháð kyni eða kynhneigð og
vísar til sambærilegrar einföld-
unar á hjúskaparlögum í Hollandi,
Belgíu, Spáni, Kanada, Noregi og
í Svíþjóð. Samkvæmt frumvarp-
inu er gert ráð fyrir því að lögin
taki gildi 27. júní næstkomandi og
eftir það gefist trúfélögum kostur
á að vígslumenn þeirra taki að sér
að gifta pör af sama kyni.
Sænska kirkjan hefur þegar
samþykkt að gefa samkynhneigð
pör saman í hjónaband. Við teljum
mikilvægt að þjóðkirkjan fylgi því
fordæmi, hafi áfram vígsluvald og
stuðli þannig að áframhaldandi
samfylgd kirkju og þjóðar í hjú-
skaparmálum. Við höfum opnað
heimasíðuna www.einhjuskapar-
log.is með frekari upplýsingum
um þetta mikilvæga baráttumál.
Við teljum að á grundvelli þeirr-
ar vönduðu guðfræðiumræðu
sem farið hefur fram á kirkjuleg-
um vettvangi um kynhneigð og
hjónaband á undanförnum fjórtán
árum sé ekkert því til fyrirstöðu
að vígslumönnum verði heimil-
að að gefa saman samkynhneigð
pör í hjónaband og að þjóðkirkjan
feti þannig í fótspor systurkirkna
sinna.
1. Sr. Aðalsteinn Þorvaldsson, sóknar-
prestur Setbergsprestakalli
2. Sr. Arna Grétarsdóttir, sérþjónustu-
prestur, Noregi
3. Dr. Arnfríður Guðmundsdóttir, próf-
essor og prestur, Háskóla Íslands
4. Sr. Auður Inga Einarsdóttir, sérþjón-
ustuprestur, heimilisprestur á Grund
5. Sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir, eme-
rita, Kópavogi
6. Sr. Ágúst Einarsson, sérþjónustu-
prestur, Svíþjóð
7. Ármann Hákon Gunnarsson, djákni,
Garðasókn
8. Sr. Ása Björk Ólafsdóttir, prestur,
Reykjavík
9. Sr. Baldur Kristjánsson, sóknarprest-
ur, Þorlákshafnarprestakalli
10. Sr. Bjarni Karlsson, sóknarprestur,
Laugarnesprestakalli
11. Sr. Bragi Skúlason, sérþjónustu-
prestur, Landspítala- Háskólasjúkra-
húsi
12. Sr. Bolli Pétur Bollason, sóknar-
prestur, Laufásprestakalli
13. Bryndís Valbjarnardóttir, guðfræð-
ingur og útfararstjóri, Reykjavík
14. Sr. Carlos Ari Ferrer, prestur og
kennari, Reykjavík
15. Sr. Cecil Haraldsson, sóknarprestur
Seyðisfjarðarprestakalli
16. Sr. Dalla Þórðardóttir, prófastur,
Húnavatns- og Skagafjarðarpróf-
astdæmi
17. Sr. Einar Eyjólfsson, prestur Fríkirkj-
unnar í Hafnarfirði
18. Sr. Elína Hrund Kristjánsdóttir,
sóknarprestur, Reykhólaprestakalli
19. Sr. Guðbjörg Arnardóttir, sóknar-
prestur, Oddaprestakalli
20. Sr. Guðmundur Örn Jónsson, prest-
ur, Vestmannaeyjaprestakalli
21. Sr. Guðný Hallgrímsdóttir, sér-
þjónustuprestur, prestur fatlaðra,
Reykjavík
22. Sr. Guðrún Karlsdóttir, prestur,
Grafarvogsprestakalli
23. Sr. Gunnar Rúnar Matthíasson,
sérþjónustuprestur, Landspítala
- Háskólasjúkrahúsi
24. Gunnar Einar Steingrímsson,
djákni, Grafarvogssókn
25. Gunnbjörg Óladóttir, guðfræðingur
og doktorsnemi, Reykjavík
26. Sr. Gylfi Jónsson, héraðsprestur
Þingeyjarprófastdæmi
27. Sr. Hans Guðberg Alfreðsson,
prestur, Garðaprestakalli
28. Dr. Haukur Ingi Jónasson, lektor og
prestur, Háskóla Íslands
29. Sr. Hildur Eir Bolladóttir, prestur,
Laugarnesprestakalli
30. Dr. Hjalti Hugason, prófessor og
prestur, guðfræðideild Háskóla
Íslands
31. Sr. Hólmgrímur E. Bragason, hér-
aðsprestur, Austfjarðaprófastdæmi
32. Hróbjartur Árnason, lektor og
guðfræðingur, Háskóla Íslands
33. Sr. Ingileif Malmberg, sérþjón-
ustuprestur Landspítala - Háskóla-
sjúkrahúsi
34. Sr. Ingólfur Hartvigsson, sóknar-
prestur Kirkjubæjarprestakalli
35. Sr. Íris Kristjánsdóttir, sóknarprest-
ur, Hjallaprestakalli
36. Jóhanna Magnúsdóttir, guðfræð-
ingur og aðstoðarskólastjóri
37. Sr. Jón Ásgeir Sigurvinsson,
guðfræðingur og doktorsnemi,
Borgarnesi
38. Sr. Jón Helgi Þórarinsson, sóknar-
prestur, Langholtsprestakalli
39. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir, sóknar-
prestur Garðaprestakalli
40. Sr. Jóna Lovísa Jónsdóttir, skóla-
prestur og framkvæmdastjóri Æsku-
lýðssambands Þjóðkirkjunnar.
41. Karítas Kristjánsdóttir, guðfræðing-
ur, Kirkjubæjarklaustri
42. Sr. Karl Valgarður Matthíasson
vímuvarnaprestur Þjóðkirkjunnar
43. Sr. Kjartan Örn Sigurbjörnsson,
sérþjónustuprestur Landspítala
- Háskólasjúkrahúsi
44. Sr. Kristinn Jens Sigurþórsson,
sóknarprestur, Saurbæjarprestakalli
45. Kristín Sigríður Garðarsdóttir,
djákni og áfengisráðgjafi, Kópavogi
46. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir, hér-
aðsprestur Kjalarnesprófastdæmi
47. Sr. Lára G. Oddsdóttir, sóknarprest-
ur, Valþjófsstaðarprestakalli
48. Sr. Lena Rós Matthíasdóttir, prest-
ur Grafarvogsprestakalli
49. Sr. Magnús Erlingsson, sóknar-
prestur, Ísafjarðarprestakalli
50. Margrét Ólöf Magnúsdóttir, djákni,
Árbæjarsókn
51. Ninna Sif Svavarsdóttir guðfræð-
ingur og doktorsnemi, Hveragerði
52. Sr. Óskar Hafsteinn Óskarsson,
prestur Selfossprestakalli
53. Rósa Kristjánsdóttir, djákni Land-
spítala - Háskólasjúkrahúsi
54. Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir,
prestur, Reykjavík
55. Sr. Pétur Þorsteinsson, prestur
Óháða safnaðarins í Reykjavík
56. Sr. Sigfinnur Þorleifsson, sérþjón-
ustuprestur Landspítala - Háskóla-
sjúkrahúsi
57. Sr. Sigfús Kristjánsson, prestur,
Hjallaprestakalli
58. Sr. Sjöfn Mueller Thor, sóknarprest-
ur, Reykhólaprestakalli
59. Dr. Sigríður Guðmarsdóttir, sóknar-
prestur, Grafarholtsprestakalli
60. Sr. Sigríður Gunnarsdóttir, sóknar-
prestur, Sauðárkróksprestakalli
61. Sr. Sigríður Kristín Helgadóttir,
prestur Fríkirkjunnar í Hafnarfirði
62. Sr. Sigríður Óladóttir, sóknarprest-
ur Hólmavíkurprestakalli
63. Sr. Sigrún Óskarsdóttir, prestur,
Árbæjarprestakalli
64. Sr. Sigurður Grétar Helgason,
sóknarprestur Seltjarnarnespresta-
kalli
65. Dr. Sigurður Árni Þórðarson, prest-
ur Nesprestakalli
66. Sr. Skúli Sigurður Ólafsson, sókn-
arprestur, Keflavíkurprestakalli
67. Sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir,
sóknarprestur, Möðruvallapresta-
kalli
68. Dr. Sólveig Anna Bóasdóttir,
dósent og guðfræðingur, Háskóla
Íslands
69. Svala Sigríður Thomsen, djákni á
Grund
70. Sr. Svanhildur Blöndal, prestur á
Hrafnistu í Reykjavík og á Vífils-
stöðum
71. Sveinbjörg Pálsdóttir, guðfræðingur
og stjórnsýsluráðgjafi, Reykjavík
72. Sr. Svavar Alfreð Jónsson, sóknar-
prestur, Akureyrarprestakalli
73. Sr. Toshiki Toma, sérþjónustuprest-
ur, prestur innflytjenda
74. Sr. Ursula Árnadóttir, sóknarprest-
ur, Skagastrandarprestakalli
75. Valgerður Hjartardóttir, djákni,
hjúkrunar- og ráðgjafarþjónustunni
Karítas
76. Sr. Vigfús Bjarni Albertsson,
sérþjónustuprestur Landspítala
- Háskólasjúkrahúsi
77. Sr. Vigfús Þór Árnason, sóknar-
prestur, Grafarvogsprestakalli
78. Sr. Yrsa Þórðardóttir, prestur,
Digranesprestakalli
79. Sr. Þór Hauksson, sóknarprestur,
Árbæjarprestakalli
80. Sr. Þórhallur Heimisson, sóknar-
prestur, Hafnarfjarðarprestakalli
81. Sr. Þórir Stephensen, fyrrverandi
dómkirkjuprestur.
82. Sr. Örn Bárður Jónsson, sóknar-
prestur, Nesprestakalli
Við teljum [...] ekkert því til fyrirstöðu
að vígslumönnum verði heimilað
að gefa saman samkynhneigð pör í
hjónaband og að þjóðkirkjan feti
þannig í fótspor systurkirkna sinna.
Við styðjum ein hjúskaparlög á Íslandi
Hjúskaparlög
Áttatíu og tveir prestar
og guðfræðingar
Hilton Reykjavik Nordica
Föstudaginn 7. maí 2010 kl. 08.30–12.00
Ráðstefnustjóri: Ólafur Ísleifsson, lektor við
viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík
08.00–08.30 Skráning og afhending gagna
08.30–08.40 Ráðstefnan sett
Ólafur Ísleifsson ráðstefnustjóri
08.40–09.10 Innri starfshættir og eftirlit í fjármálafyrirtækjum
með hliðsjón af störfum regluvörslu
Kristinn Arnar Stefánsson, regluvörður Íslandsbanka
09.10–09.40 Hugleiðingar um siðferðileg álitamál fyrir innri
endurskoðendur
Ketill B. Magnússon, viðskiptasérfræðingur hjá HR
09.40–10.10 Frumvarp til nýrra laga um fjármálafyrirtæki
– nýjar heimildir og nýjar áherslur hjá FME
Gunnar Þ. Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins
10.10–10.30 Kaffi
10.30–11.00 Umgjörð menntunar – Er þörf á breyttum áherslum?
Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík
11.00–11.30 Hlutverk stjórnar og stjórnarhættir fyrirtækja – tímamót
Ragnar Önundarson, varaformaður stjórnar og formaður
endurskoðunarnefndar Lífeyrissjóðs verslunarmanna
11.30–12.00 Siðblinda
Nanna Briem geðlæknir
12.00 Ráðstefnuslit
Ráðstefnugjald: 14.500 kr.
Námsmat: Ráðstefnan gefur 4 endurmenntunareiningar
hjá FIE, IIA og FLE.
Ráðstefnan er opin félagsmönnum
FIE, FLE og öðrum þeim sem áhuga hafa.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku til fie@fie.is
ekki síðar en kl. 16.00 þann 6. maí nk.
Innri endurskoðunardagurinn 2010