Fréttablaðið - 05.05.2010, Síða 13

Fréttablaðið - 05.05.2010, Síða 13
MIÐVIKUDAGUR 5. maí 2010 13 Prestastefna er biskupi til ráðu-neytis í kenningarlegum efnum og kölluð saman á hverju ári. Á Prestastefnunni í Vídalínskirkju 27.-29. apríl 2010 var lögð fram tillaga fjölmargra presta og guð- fræðinga við lagafrumvarp dóms- og mannréttindamálaráðherra um ein hjúskaparlög á Íslandi. Til- lagan var svohljóðandi: „Presta- stefna haldin í Vídalínskirkju 27.- 29. apríl 2010 lýsir yfir stuðningi við lagafrumvarp dóms- og mann- réttindamálaráðherra um ein hjú- skaparlög á Íslandi. Prestastefna telur íslensku þjóðkirkjuna í stakk búna til að stíga þetta skref með ríkisvaldinu í ljósi ítarlegrar guð- fræðilegrar umfjöllunar síðustu ára á kirkjulegum vettvangi um kirkju, kynhneigð og hjónaband.“ Prestastefnan samþykkti með naumum meirihluta að vísa mál- inu til biskups og kenningarnefnd- ar en taka ekki efnislega afstöðu til tillögunnar í atkvæðagreiðslu. Prestastefna hafnaði ekki tillög- unni og flutningsmennirnir drógu hana ekki til baka. Það er því hlut- verk biskups og kenningarnefnd- ar að taka afstöðu til frumvarps- ins um ein hjúskaparlög á Íslandi á grundvelli tillagna og umræðu á Prestastefnu. Við undirrituð sem erum prestar, guðfræðingar og djáknar í íslensku Þjóðkirkjunni og kristnum fríkirkjum á Íslandi viljum árétta stuðning okkar við þetta frumvarp og ósk okkar um að íslenska þjóðkirkjan taki að sér að gefa saman pör af sama kyni í hjónaband. Ríkisstjórn Íslands einsetti sér í stjórnmálasáttmála 10. maí 2009 að vinna að setningu einna hjúskaparlaga á kjörtímabil- inu. Málið nýtur stuðnings þing- manna úr öllum flokkum og flokk- ar í stjórnarandstöðu hafa líka lýst stuðningi við málið í flokks- samþykktum. Það er því traust- ur þingmeirihluti fyrir einum hjúskaparlögum á Alþingi. Með frumvarpi dómsmálaráðherra um breytingar á hjúskaparlögum og fleiri lögum og um brottfall laga um staðfesta samvist (ein hjúskap- arlög) sem lagt hefur verið fyrir Alþingi á 138. löggjafarþingi vill þingið leggja áherslu á jafnan rétt einstaklinga til að ganga í hjóna- band óháð kyni eða kynhneigð og vísar til sambærilegrar einföld- unar á hjúskaparlögum í Hollandi, Belgíu, Spáni, Kanada, Noregi og í Svíþjóð. Samkvæmt frumvarp- inu er gert ráð fyrir því að lögin taki gildi 27. júní næstkomandi og eftir það gefist trúfélögum kostur á að vígslumenn þeirra taki að sér að gifta pör af sama kyni. Sænska kirkjan hefur þegar samþykkt að gefa samkynhneigð pör saman í hjónaband. Við teljum mikilvægt að þjóðkirkjan fylgi því fordæmi, hafi áfram vígsluvald og stuðli þannig að áframhaldandi samfylgd kirkju og þjóðar í hjú- skaparmálum. Við höfum opnað heimasíðuna www.einhjuskapar- log.is með frekari upplýsingum um þetta mikilvæga baráttumál. Við teljum að á grundvelli þeirr- ar vönduðu guðfræðiumræðu sem farið hefur fram á kirkjuleg- um vettvangi um kynhneigð og hjónaband á undanförnum fjórtán árum sé ekkert því til fyrirstöðu að vígslumönnum verði heimil- að að gefa saman samkynhneigð pör í hjónaband og að þjóðkirkjan feti þannig í fótspor systurkirkna sinna. 1. Sr. Aðalsteinn Þorvaldsson, sóknar- prestur Setbergsprestakalli 2. Sr. Arna Grétarsdóttir, sérþjónustu- prestur, Noregi 3. Dr. Arnfríður Guðmundsdóttir, próf- essor og prestur, Háskóla Íslands 4. Sr. Auður Inga Einarsdóttir, sérþjón- ustuprestur, heimilisprestur á Grund 5. Sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir, eme- rita, Kópavogi 6. Sr. Ágúst Einarsson, sérþjónustu- prestur, Svíþjóð 7. Ármann Hákon Gunnarsson, djákni, Garðasókn 8. Sr. Ása Björk Ólafsdóttir, prestur, Reykjavík 9. Sr. Baldur Kristjánsson, sóknarprest- ur, Þorlákshafnarprestakalli 10. Sr. Bjarni Karlsson, sóknarprestur, Laugarnesprestakalli 11. Sr. Bragi Skúlason, sérþjónustu- prestur, Landspítala- Háskólasjúkra- húsi 12. Sr. Bolli Pétur Bollason, sóknar- prestur, Laufásprestakalli 13. Bryndís Valbjarnardóttir, guðfræð- ingur og útfararstjóri, Reykjavík 14. Sr. Carlos Ari Ferrer, prestur og kennari, Reykjavík 15. Sr. Cecil Haraldsson, sóknarprestur Seyðisfjarðarprestakalli 16. Sr. Dalla Þórðardóttir, prófastur, Húnavatns- og Skagafjarðarpróf- astdæmi 17. Sr. Einar Eyjólfsson, prestur Fríkirkj- unnar í Hafnarfirði 18. Sr. Elína Hrund Kristjánsdóttir, sóknarprestur, Reykhólaprestakalli 19. Sr. Guðbjörg Arnardóttir, sóknar- prestur, Oddaprestakalli 20. Sr. Guðmundur Örn Jónsson, prest- ur, Vestmannaeyjaprestakalli 21. Sr. Guðný Hallgrímsdóttir, sér- þjónustuprestur, prestur fatlaðra, Reykjavík 22. Sr. Guðrún Karlsdóttir, prestur, Grafarvogsprestakalli 23. Sr. Gunnar Rúnar Matthíasson, sérþjónustuprestur, Landspítala - Háskólasjúkrahúsi 24. Gunnar Einar Steingrímsson, djákni, Grafarvogssókn 25. Gunnbjörg Óladóttir, guðfræðingur og doktorsnemi, Reykjavík 26. Sr. Gylfi Jónsson, héraðsprestur Þingeyjarprófastdæmi 27. Sr. Hans Guðberg Alfreðsson, prestur, Garðaprestakalli 28. Dr. Haukur Ingi Jónasson, lektor og prestur, Háskóla Íslands 29. Sr. Hildur Eir Bolladóttir, prestur, Laugarnesprestakalli 30. Dr. Hjalti Hugason, prófessor og prestur, guðfræðideild Háskóla Íslands 31. Sr. Hólmgrímur E. Bragason, hér- aðsprestur, Austfjarðaprófastdæmi 32. Hróbjartur Árnason, lektor og guðfræðingur, Háskóla Íslands 33. Sr. Ingileif Malmberg, sérþjón- ustuprestur Landspítala - Háskóla- sjúkrahúsi 34. Sr. Ingólfur Hartvigsson, sóknar- prestur Kirkjubæjarprestakalli 35. Sr. Íris Kristjánsdóttir, sóknarprest- ur, Hjallaprestakalli 36. Jóhanna Magnúsdóttir, guðfræð- ingur og aðstoðarskólastjóri 37. Sr. Jón Ásgeir Sigurvinsson, guðfræðingur og doktorsnemi, Borgarnesi 38. Sr. Jón Helgi Þórarinsson, sóknar- prestur, Langholtsprestakalli 39. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir, sóknar- prestur Garðaprestakalli 40. Sr. Jóna Lovísa Jónsdóttir, skóla- prestur og framkvæmdastjóri Æsku- lýðssambands Þjóðkirkjunnar. 41. Karítas Kristjánsdóttir, guðfræðing- ur, Kirkjubæjarklaustri 42. Sr. Karl Valgarður Matthíasson vímuvarnaprestur Þjóðkirkjunnar 43. Sr. Kjartan Örn Sigurbjörnsson, sérþjónustuprestur Landspítala - Háskólasjúkrahúsi 44. Sr. Kristinn Jens Sigurþórsson, sóknarprestur, Saurbæjarprestakalli 45. Kristín Sigríður Garðarsdóttir, djákni og áfengisráðgjafi, Kópavogi 46. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir, hér- aðsprestur Kjalarnesprófastdæmi 47. Sr. Lára G. Oddsdóttir, sóknarprest- ur, Valþjófsstaðarprestakalli 48. Sr. Lena Rós Matthíasdóttir, prest- ur Grafarvogsprestakalli 49. Sr. Magnús Erlingsson, sóknar- prestur, Ísafjarðarprestakalli 50. Margrét Ólöf Magnúsdóttir, djákni, Árbæjarsókn 51. Ninna Sif Svavarsdóttir guðfræð- ingur og doktorsnemi, Hveragerði 52. Sr. Óskar Hafsteinn Óskarsson, prestur Selfossprestakalli 53. Rósa Kristjánsdóttir, djákni Land- spítala - Háskólasjúkrahúsi 54. Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir, prestur, Reykjavík 55. Sr. Pétur Þorsteinsson, prestur Óháða safnaðarins í Reykjavík 56. Sr. Sigfinnur Þorleifsson, sérþjón- ustuprestur Landspítala - Háskóla- sjúkrahúsi 57. Sr. Sigfús Kristjánsson, prestur, Hjallaprestakalli 58. Sr. Sjöfn Mueller Thor, sóknarprest- ur, Reykhólaprestakalli 59. Dr. Sigríður Guðmarsdóttir, sóknar- prestur, Grafarholtsprestakalli 60. Sr. Sigríður Gunnarsdóttir, sóknar- prestur, Sauðárkróksprestakalli 61. Sr. Sigríður Kristín Helgadóttir, prestur Fríkirkjunnar í Hafnarfirði 62. Sr. Sigríður Óladóttir, sóknarprest- ur Hólmavíkurprestakalli 63. Sr. Sigrún Óskarsdóttir, prestur, Árbæjarprestakalli 64. Sr. Sigurður Grétar Helgason, sóknarprestur Seltjarnarnespresta- kalli 65. Dr. Sigurður Árni Þórðarson, prest- ur Nesprestakalli 66. Sr. Skúli Sigurður Ólafsson, sókn- arprestur, Keflavíkurprestakalli 67. Sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir, sóknarprestur, Möðruvallapresta- kalli 68. Dr. Sólveig Anna Bóasdóttir, dósent og guðfræðingur, Háskóla Íslands 69. Svala Sigríður Thomsen, djákni á Grund 70. Sr. Svanhildur Blöndal, prestur á Hrafnistu í Reykjavík og á Vífils- stöðum 71. Sveinbjörg Pálsdóttir, guðfræðingur og stjórnsýsluráðgjafi, Reykjavík 72. Sr. Svavar Alfreð Jónsson, sóknar- prestur, Akureyrarprestakalli 73. Sr. Toshiki Toma, sérþjónustuprest- ur, prestur innflytjenda 74. Sr. Ursula Árnadóttir, sóknarprest- ur, Skagastrandarprestakalli 75. Valgerður Hjartardóttir, djákni, hjúkrunar- og ráðgjafarþjónustunni Karítas 76. Sr. Vigfús Bjarni Albertsson, sérþjónustuprestur Landspítala - Háskólasjúkrahúsi 77. Sr. Vigfús Þór Árnason, sóknar- prestur, Grafarvogsprestakalli 78. Sr. Yrsa Þórðardóttir, prestur, Digranesprestakalli 79. Sr. Þór Hauksson, sóknarprestur, Árbæjarprestakalli 80. Sr. Þórhallur Heimisson, sóknar- prestur, Hafnarfjarðarprestakalli 81. Sr. Þórir Stephensen, fyrrverandi dómkirkjuprestur. 82. Sr. Örn Bárður Jónsson, sóknar- prestur, Nesprestakalli Við teljum [...] ekkert því til fyrirstöðu að vígslumönnum verði heimilað að gefa saman samkynhneigð pör í hjónaband og að þjóðkirkjan feti þannig í fótspor systurkirkna sinna. Við styðjum ein hjúskaparlög á Íslandi Hjúskaparlög Áttatíu og tveir prestar og guðfræðingar Hilton Reykjavik Nordica Föstudaginn 7. maí 2010 kl. 08.30–12.00 Ráðstefnustjóri: Ólafur Ísleifsson, lektor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík 08.00–08.30 Skráning og afhending gagna 08.30–08.40 Ráðstefnan sett Ólafur Ísleifsson ráðstefnustjóri 08.40–09.10 Innri starfshættir og eftirlit í fjármálafyrirtækjum með hliðsjón af störfum regluvörslu Kristinn Arnar Stefánsson, regluvörður Íslandsbanka 09.10–09.40 Hugleiðingar um siðferðileg álitamál fyrir innri endurskoðendur Ketill B. Magnússon, viðskiptasérfræðingur hjá HR 09.40–10.10 Frumvarp til nýrra laga um fjármálafyrirtæki – nýjar heimildir og nýjar áherslur hjá FME Gunnar Þ. Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins 10.10–10.30 Kaffi 10.30–11.00 Umgjörð menntunar – Er þörf á breyttum áherslum? Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík 11.00–11.30 Hlutverk stjórnar og stjórnarhættir fyrirtækja – tímamót Ragnar Önundarson, varaformaður stjórnar og formaður endurskoðunarnefndar Lífeyrissjóðs verslunarmanna 11.30–12.00 Siðblinda Nanna Briem geðlæknir 12.00 Ráðstefnuslit Ráðstefnugjald: 14.500 kr. Námsmat: Ráðstefnan gefur 4 endurmenntunareiningar hjá FIE, IIA og FLE. Ráðstefnan er opin félagsmönnum FIE, FLE og öðrum þeim sem áhuga hafa. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku til fie@fie.is ekki síðar en kl. 16.00 þann 6. maí nk. Innri endurskoðunardagurinn 2010

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.