Fréttablaðið - 05.05.2010, Blaðsíða 24
FERÐASÝNINGIN Íslandsperlur stendur nú yfir
í Perlunni. Þar geta gestir gengið hringinn í kringum
landið og fengið smjörþefinn af því besta sem ferða-
löngum stendur til boða í sumar.
Vikuferðir til Spánar þar sem nýjum og heilsusamlegum lífsstíl er sparkað af stað eru
í boði í vetur.
Vefurinn www.bilar.is er hugsað-
ur sem smáauglýsingavefur fyrir
kaupendur og seljendur að bifreið-
um og öðrum farartækjum og fyrst
um sinn verður ókeypis að auglýsa.
Eftir það verður vægt gjald inn-
heimt fyrir hverja auglýsingu að
sögn aðstandenda vefjarins.
Mikil vinna var lögð í að hafa
umhverfi vefjarins notendavænt
og á vefnum er hægt að birta fleiri
og stærri myndir af farartækjun-
um en almennt tíðkast.
Einnig er hægt að birta auglýs-
ingarnar á facebook-síðum þeirra
sem auglýsa. Allar aðgerðir er
varða það að setja inn auglýsingar
og svara þeim á að vera einfalt og
þægilegt. - jma
Nýr íslensk-
ur bílavefur
Nýr smáauglýsingavefur fyrir
bíla og önnur farartæki var opn-
aður á laugardaginn.
Smáauglýsingavefurinn bilar.is verður
með ókeypis aðstöðu til að auglýsa til
að byrja með.
Gist er í viku á Alicante á
Spáni, á fjögurra stjörnu
hóteli, Albit Playa, en það
er í fallegri vík.
Námskeiðin sem í boði
eru munu meðal annars
fjalla um ræktun lík-
ama og sálar, bættan
lífsstíl og jákvæða
tjáningu. Mikið er
lagt upp úr góðri gist-
ingu, mat og dekri
með áherslu á hreyf-
ingu svo sem jóga, leik-
fimi og gönguferðum.
Áhugasömum er
bent á heimasíðu
Úrvals-Útsýnar,
www.urvalutsyn.
is, fyrir frek-
ari upplýsing-
ar en meðal
þeirra sem í
för verða eru
Edda Björg-
vinsdóttir leik-
kona, útvarps-
kona n Si r r ý
og Bjargey
Aðalsteins-
dóttir
íþrótta-
fræðing-
ur. - jma
Sjálfsrækt og gaman
Úrval-Útsýn býður upp á þrjú námskeið á þessu ári sem haldin verða
á Spáni í námskeiðaröð sem kallast Ný&Betri.
Sirrý verður
með í för.
Vesturhrauni 1-210 Garðabæ Sími 535 5850-www.framtak.is
E F N A V Ö R U R
- með náttúruna á hreinu -
Örflóra er fyrir haughús,
rotþrær, niðurföll, skólp-
leiðslur, fituskiljur, fitutanka,
úti og inni salerni.
SKAÐ
LAUS
UMHV
ERFIN
U
Gistiheimili í Kaupmannahöfn
Herbergi og studioíbúðir
í miðbænum
sími 0045-2848 8905La Villa
Inntökupróf í grunnskóladeild
(9–15 ára) fara fram 8. maí
kl. 13.00–14.30.
Inntökupróf í framhaldsdeild,
listdansbraut (16 ára og eldri)
fara fram 8. maí kl. 15.00–17.00
Rafræn skráning er hafin
fyrir næsta skólaár 2010–2011
á listdans.is
Nemendur Listdansskóla Íslands
höfnuðu í fimm efstu sætum í
klassísku sólódanskeppninni í
febrúar síðastliðnum. Þrír þeirra
eru á leið til Svíþjóðar til að taka
þátt í alþjóðlegri sólódanskeppni.
Munið frístundarkortin.
Skólaárið 2010–2011
Þekking
Reynsla
Fagmennska
Gæði
Úrvalskennarar í klassískum
og nútíma listdansi
„Það er svo margt sem fólk getur
gert sjálft við í bílnum sínum,“
segir Gunnar Valdimarsson, eigandi
Sjálfsþjónustunnar Nú - þú í Hafn-
arfirði, en þar getur fólk leigt pláss
til að dytta að bílum sínum. Þjón-
ustuna stofnaði Gunnar í febrúar á
þessu ári en með því fetaði hann í
fótspor feðranna.
„Bæði afi minn og pabbi voru
tengdir FÍB og ráku svona sjálfs-
þjónustu í kringum 1970 svo ég var
alinn upp við þetta. Ég tók síðan upp
þráðinn núna. Þetta er kreppuvænt
þar sem fólk reynir að bjarga sér
með minni peninga milli handanna
í dag.“
Nú - þú sjálfsþjónustan er hús-
næði með verkfærum og lyftum.
Klukkutíminn inni á verkstæð-
inu kostar 1.500 krónur og lyfta og
verkfæri 2.500 krónur. Eins starfar
vélvirki á staðnum og aðstoðar fólk
eftir þörfum.
„Hér getur fólk skipt um olíu og
síur, smurt bílana, skipt um brems-
uklossa og stýrisenda. Hægt er að
taka úr bremsudiskana og við getum
rennt þá fyrir fólk. Við reynum auð-
vitað að passa að fólk bjargi sér ekki
of mikið og fari að fikta í hlutum
sem það hefur ekki þekkingu á en
það er mjög mikið sem fólk getur
gert sjálft.“
Á döfinni eru námskeið í viðhaldi
og viðgerðum á bílum sem haldin
verða í húsnæði Nú - þú að Hvaleyr-
arbraut 2 í Hafnarfirði. Námskeið-
in eru þau fyrstu sinnar tegundar
en þau eru byggð upp með það fyrir
augum að fólk geti bjargað sér með
minni háttar viðhald á bílunum
sínum sjálft.
„Við fundum fyrir áhuga þar sem
fólk kemur mikið hingað og biður
okkur um aðstoð við hitt og þetta.
Þannig þróaðist það að við settum
saman námskeið í samstarfi við
til dæmis Vinnumálastofnun og
Endurmenntunarskólann,“ segir
Gunnar. „Fólk þarf ekki að kunna
neitt fyrir sér í bílaviðgerðum til
að sækja námskeiðin en við förum
yfir öll atriði frá grunni. Sumir eru
ekki klárir á hvernig á að skipta
um dekk og hvaða kostir eru í stöð-
unni ef springur á bílnum, hvort eig
að skipta um dekk, nota froðu eða
tappa?“
Gunnar mun sjálfur leiðbeina
á námskeiðinu, meðal annars um
umhirðu bílsins, þrif, bón en hann
segir það síst mikilvægara en annað
viðhald svo bíllinn endist lengur.
Auk Gunnars leiðbeinir Guttormur
Sveinsson vélvirki hvernig skipta á
um olíu og smyrja bílinn, svo eitt-
hvað sé nefnt. Námskeiðin eru áætl-
uð nú í maí en nánari upplýsingar
má meðal annars nálgast á vef End-
urmenntunarskólans, www.tskoli.is.
heida@frettabladid.is
Mörgu hægt að dytta að
Betra er að bíllinn sé í góðu lagi áður en lagt er af stað í ferðalag. Til að spara aurinn í buddunni má
sækja námskeið í viðhaldi og viðgerðum á bílum og dytta að bifreiðinni sjálfur.
Gunnar Valdimarsson er eigandi Nú - þú sjálfsþjónustunnar í Hafnarfirði en hann hýsir og kennir námskeið um viðhald og við-
gerðir á bílum, meðal annars í samvinnu við Endurmenntunarskólann. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI