Fréttablaðið - 05.05.2010, Síða 47
MIÐVIKUDAGUR 5. maí 2010 19
Leikarinn Russell Crowe segist
hafa kvænst konu sinni vegna
þess að hún drykki ótæpilega
líkt og hann. Eftir að hafa fengið
eigin stjörnu við Hollywood Walk
of Fame bað hann framleiðslu-
fyrirtæki sitt um að halda veislu
sér til heiðurs. „Yfirleitt halda
þau hádegisverð að athöfninni
lokinni, en ég vildi frekar halda
gott teiti. Framleiðslufyrirtækið
lét það eftir mér og ég og eigin-
kona mín sátum til sjö um morg-
uninn og drukkum vodka. Þess
vegna giftist ég stúlkunni. Þetta
var fjör.“
Vel kvæntur
Russell
VEL KVÆNTUR Russell Crowe er ham-
ingjusamlega kvæntur.
Leikarinn David Boreanaz, sem
fer með hlutverk í sjónvarps-
þáttunum Bones, hefur komið
fram og viðurkennt að hafa hald-
ið framhjá eiginkonu sinni til
níu ára. „Hjónaband okkar
hefur litast af svikum
mínum. Ég vil koma
hreint fram. Ég var
óábyrgur,“ sagði leik-
arinn, en orðrómur
um meint samband
hans og Rachel
Utichel, fyrstu
hjákonu Tigers
Woods, kom
fram í haust
í fyrra. „Ég
átti vingott
við konu sem
ég vil ekki
nefna á nafn.
Hún bað um
pening og
mér leið sem
verið væri
að kúga mig
og fannst því
best að koma
hreint út.“ Ýmsir
vilja meina að ástkon-
an sem um ræðir sé
einmitt Utichel.
Hélt framhjá
KEMUR HREINT FRAM
David Boreanaz, sem
fer með hlutverk í
Bones, hélt framhjá
eiginkonu sinni til níu ára.
NORDICPHOTOS/GETTY
Söngkonan Þórunn Antonía Magnús-
dóttir er annar skipuleggjenda
stelpuspurningakeppni sem haldin
er á Óliver fyrsta miðvikudag hvers
mánaðar. Þriðja keppnin fer fram í
kvöld og hefst klukkan 21.00.
„Ég og Hildur Sif, vinkona mín,
erum að sjá um þessi kvöld. Okkur
fannst oft spurningarnar í öðrum
spurningakeppnum oft vera hálf
leiðinlegar og of erfiðar fyrir fólk
sem komið var í glas. Okkur datt
því í hug að halda sérstakt stelpu-
quiz þar sem við spyrjum um allt
sem viðkemur lágmenningu, slúðri
og fræga fólkinu,“ útskýrir Þórunn
Antonía og tekur fram að karlmenn
séu þó einnig velkomnir.
Fjórar stúlkur þurfa að skipa
hvert lið og að sögn Þórunnar Ant-
oníu skapast oft mikill keppnisandi
í liðunum. Flestar haga stúlkurnar
sér þó vel og enn hefur ekki komið
til illinda. „Það eru oft einhverjar
tapsárar með, en þær verða bara
að bíta í það súra epli. Við reynum
að standa fagmannlega að þessu
en keppnin verður oft mjög hörð
og einu sinni vorum við beðnar um
endurtalningu.“ - sm
Hörð samkeppni milli stúlkna
STELPUKVÖLD
Söngkonan Þórunn Antonía Magn-
úsdóttir er annar skipuleggjenda
sérstakrar stelpuspurningakeppni.
Andie MacDowell segist ekki
vilja hætta að leika þrátt fyrir að
vera komin á miðjan aldur. „Ég
fæ kannski ekki lengur aðalhlut-
verkin þar sem svo margar kvik-
myndir fjalla um ungt fólk, en ég
neita að hætta að leika á meðan ég
hef gaman af því.“ MacDowell er
orðin 52 ára gömul og segist sátt
í eigin skinni. „Þegar ég starfaði
sem fyrir sæta í nokkur ár átti ég
orðið erfitt með að halda mér mjög
grannri. Þegar umboðsmaður minn
skipaði mér að grenna mig sagði
ég honum að fólk yrði bara að taka
mér eins og ég væri. Stuttu síðar
gerði ég samning við Calvin Klein
og fékk hlutverk í kvikmynd.“
Sátt við lífið
SÁTT Andie MacDowell segist ætla að
leika svo lengi sem hún hafi gaman af.
NORDICPHOTOS/GETTY
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/STEFÁ
N