Fréttablaðið - 17.05.2010, Page 2
2 17. maí 2010 MÁNUDAGUR
Hjálmar, eruð þið búin að
stimpla ykkur inn fyrir kosn-
ingar?
„Við stimplum ekki fólk; Næstbesti
flokkurinn er opinn öllum án tillits
til stjórnmálaskoðana.“
Aðeins voru til stimplar með listabók-
stöfum fjöggurra flokka af sjö í kjörklefa
sýslumannsins í Kópavogi þegar kjósandi
þar í bæ ætla að greiða utankjörfundar-
atkvæði. Hjálmar Hjálmarsson er oddviti
Næstbesta flokksins.
SLYS Þyrla Landhelgisgæslunn-
ar sótti göngumann sem datt á
vesturhluta Esjunnar laust fyrir
klukkan þrjú í gær og flutti hann á
slysadeild.
Maðurinn var við Heljaregg í
Esju við klettaklifur ásamt tveim-
ur félögum sínum þegar hann
datt og er talið að hann hafi fallið
að minnsta kosti sex metra. Ekki
reyndist unnt að fara með börur
að manninum og því var brugðið
á það ráð að láta sigmann úr þyrlu
Landhelgisgæslunnar síga niður
til hans með lykkju og hífa hann
um borð í þyrluna..
Að sögn vakthafandi læknis á
slysadeild Landspítalans slapp
maðurinn án alvarlegra áverka en
hann var undir eftirliti á spítala í
nótt. - jhh
Þyrla sótti göngumann:
Féll sex metra á
Heljaregg í Esju
Dagur gegn fordómum
Alþjóðadagur gegn fordómum í garð
samkynhneigðra er haldinn í sjötta
sinn í dag. Í tilefni þess lýsti forseti
Evrópuþingsins andúð sinni á for-
dómum í garð samkynheigðra í gær.
EVRÓPUÞINGIÐ
FÓLK Rúmlega þrjátíu konum sem búa á gos-
svæðinu við Eyjafjallajökul var boðið í dagsferð
til Vestmannaeyja á föstudaginn. Konurnar hafa
staðið í ströngu undanfarið eins og aðrir íbúar
á svæðinu og var tilgangurinn með ferðinni að
dreifa huga þeirra þann daginn.
„Þetta var yndislegur dagur og það var vel
tekið á móti okkur,“ segir Magðalena Jónsdótt-
ir bóndi og ein kvennanna í ferðinni. Hún segir
Árna Johnsen hafa skipulagt ferðina ásamt
kvenfélögum í bænum. Konurnar voru sóttar
í Bakkafjöru og siglt til Eyja í útsýnisbátnum
Víkingi.
„Það var mjög gott að vera með þessum
konum, sem eru að ganga í gegnum sömu
reynslu,“ segir Magðalena. Hún sagði einnig
hafa verið hressandi að ræða við heimakon-
urnar í Eyjum. „Þessar konur sem upplifðu
margar gosið í Eyjum og komu svo strax aftur
til þess að byggja upp, það var mjög jákvætt að
heyra frá þeim.“
Þó að ferðin hafi átt að gefa konunum frí frá
gosinu gekk það ekki alveg eftir þar sem aska
fór að falla í Vestmannaeyjum þegar konurn-
ar voru þar. „Við tókum það ekki inn á okkur,
það er bara eitthvað sem við erum vanar. Eftir
öskufallið var hins vegar ekki víst að við kæm-
umst aftur til baka,“ segir Magðalena, en þar
sem báturinn Víkingur tekur inn sjó sem kæli-
vatn er hann ósjófær í öskufalli. Annar bátur
var útvegaður á endanum og konurnar komust
heim á tilsettum tíma. - þeb
Rúmlega þrjátíu konur sem búa á gossvæðinu við Eyjafjöll deildu reynslu sinni með Eyjakonum:
Lentu í öskufalli í gosfríi í Vestmannaeyjum
TAÍLAND, AP Taílensk stjórnvöld
hafna því að leita sátta við stjórn-
arandstæðinga með fulltingi Sam-
einuðu þjóðanna. Að minnsta kosti
31 hefur látist í átökum frá því á
fimmtudag, þegar lögregla og
herinn létu til skarar skríða gegn
mótmælendum. Rauðstakkar hafa
mótmælt í Bangkok um nokkurra
mánaða skeið og krafist þess að for-
sætisráðherra landsins segi af sér
og að efnt verði til kosninga.
Nattawut Saikua, einn af leið-
togum Rauðstakka, sagði mótmæl-
endur reiðubúna til að setjast að
samningaborði með ríkisstjórn-
inni með milligöngu Sameinuðu
þjóðanna, að því gefnu að herinn
myndi draga sig í hlé. Ríkisstjórn-
in sló það af borðinu og sagði utan-
aðkomandi aðila ekki eiga að skipta
sér af innanríkismálum Taílands.
Neyðarástandi hefur verið lýst
yfir í rúmlega tuttugu héruðum
um allt landið - einkum í norður-
hluta þess, höfuðvígi mótmælanda,
Yfirvöld hvöttu konur og eldra fólk
að forða sér úr hverfum sem eru
á valdi mótmælenda fyrir daginn
í dag og hafa óskað eftir aðstoð
Rauða krossins. - bs
Að minnsta kosti 31 hafa týnt lífinu í óeirðum í Taílandi:
Stjórnin þvertekur fyrir sátt
MIÐBORG BANGKOK Mótmælendur brenndu bíldekk í miðborg höfuðborgar Taílands
í gær. Útgöngubann tók gildi í gær og starfsmenn Rauða krossins voru sendir til
hættulegustu staðanna að forða konum og eldra fólki burt. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ORKUMÁL Fulltrúar kanadíska
fyrirtækisins Magma Energy
munu ganga á fund ráðherra í dag
þar sem möguleg aðkoma ríkisins
að málum HS Orku verður rædd.
Ekki var tekin ákvörðun um sölu
á hlut Geysis Green í HS Orku
til Magma í gær. Boðað verður
til blaðamannafundar um málið
í dag.
Ýmsar atlögur hafa verið gerð-
ar að málinu og hefur ætíð slitnað
upp úr viðræðum. Að þeim hafa,
auk fulltrúa ríkisins og fyrirtæk-
isins , komið
fulltrúar l íf-
eyrissjóðanna,
Grindavíkur og
Framtakssjóðs.
E k k i h e f u r
gengið saman
og því var yfir-
lýst stefna fyr-
irtækisins að
selja Magma
Energy hlutinn.
Sú hugmynd hefur mætt mik-
illi andstöðu, ekki síst frá Vinstri
grænum. Ögmundur Jónasson,
þingmaður flokksins, lýsti eftir
því í gær að salan yrði stöðvuð.
Þá hefur Svandís Svavarsdóttir
umhverfisráðherra lýst yfir and-
stöðu sinni á fyrirhugaðri sölu.
Einnig má nefna að Guðbrandur
Einarsson, bæjarfulltrúi A-lista í
Reykjanesbæ, sameiginlegs lista
Samfylkingar og Framsóknar-
flokksins, hefur lýst því yfir að
fyrirhuguð sala þýði að hagnaður
af orkusölu flytjist úr landi.
Guðrún Ágústa Guðmundsdótt-
ir, oddviti Vinstri grænna í Hafn-
arfirði, hyggst leggja fram tillögu
í bæjarstjórn þess efnis að sam-
félagsleg yfirráð í landi sveitarfé-
lagsins verði tryggð. Þau mál eru
á hendi opinbera hlutafélagsins
Suðurlinda, sem heldur utan um
náttúruauðlindir Hafnarfjarð-
ar, Grindavíkur og Voga. Frétta-
blaðið hefur heimildir fyrir því að
sambærileg tillaga sé væntanleg í
hinum sveitarfélögunum.
Guðrún bendir á að þau svæði
sem HS Orka skilgreini sem sín
framtíðarvirkjunarsvæði séu
innan marka bæjarfélaganna
þriggja. Hún segir fráleitt að ætla
sér að selja hlutinn nú til kanad-
íska fyrirtækisins.
„Það sýnir örvæntingu Reyk-
nesinga að ganga frá sölunni nú til
að fegra bókhaldið. Þeir eru bara
að selja auðlindirnar til að bjarga
sjálfum sér.“
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins er allsendis óvíst hvort af
samningum verður við ríkisvald-
ið. Þykir sumum stjórnarliðum
að ríkið eigi nóg með hluti sína í
Landsvirkjun, Rarik og Orkubúi
Vestfjarða, enda sé skuldsetning
mikil í orkugeiranum. Aðrir líta
á það sem prinsippmál að missa
ekki auðlindir í erlenda eigu.
kolbeinn@frettabladid.is
Ríkisstjórnin skoðar
aðkomu að HS Orku
Ráðherrar funda með fulltrúum Magma Energy í dag um mögulega aðkomu
ríkisins að HS Orku. Ekki tekin ákvörðun um sölu á hlut Geysis Green Energy
til Magma í gær. VG Hafnarfirði vill að félagslegt eignarhald ráði orkunýtingu.
GUÐRÚN ÁGÚSTA
GUÐMUNDSDÓTTIR
SVARTSENGI Vinstri græn í Hafnarfirði og Suðurnesjum vilja að öll framtíðarorkunýt-
ing á svæði Suðurlinda, sem er í eigu Hafnarfjarðar, Grindavíkur og Voga, verði háð
samfélagslegu eignarhaldi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
GRIKKLAND, AP Grikkir ætla að
skoða þann möguleika að lög-
sækja bandaríska fjárfestinga-
banka fyrir að hafa átt þátt í
efnahagsvand-
ræðum lands-
ins. Þetta sagði
George Papand-
reou forsætis-
ráðherra lands-
ins í gær.
Bæði rík-
isstjórn og
almenningur
í Grikklandi
hafa kennt fjár-
festingabönkunum um að hafa átt
þátt í efnahagshruninu þar með
neikvæðum spám sínum.
Forsætisráðherrann sagði þó
fyrst nauðsynlegt að rannsaka
hrunið til hlítar. Gríska þingið
mun standa fyrir slíkri rannsókn.
Þá sagðist hann ætla að beita sér
fyrir sterkari löggjöf um fjár-
málamarkaðinn. - þeb
Vilja rannsaka gríska hrunið:
Íhugar að lög-
sækja banka
GEORGE
PAPANDREOU
SJÁVARÚTVEGUR Alls hélt 321 bátur
til strandveiða og alls voru 726
landanir í fyrstu viku strandveiði-
vertíðarinnar, sem hófst fyrir
viku. Fiskistofa veitti 407 leyfi
til strandveiða en töluvert fleiri
umsóknir eru í vinnslu. Hátt á
fimmta hundrað tonn veiddust í
vikunni.
Mest hefur verið sótt í leyfi
á svæði A, frá Eyja- og Mikla-
holtshreppi til Súðavíkurhrepps,
alls 172 leyfi. Næst á eftir kemur
svæði D, frá Strandabyggð til
Grýtubakkahrepps, þar sem gefin
hafa verið út 122 leyfi.
Afli strandveiðibáta er að mestu
þorskur en tæpum 25 tonnum af
ufsa hefur jafnframt verið landað
auk minna magns í öðrum tegund-
um, að því er fram kemur á vef
Fiskistofu.
Önnur vika strandveiða hafin:
Yfir 300 bátar á
strandveiðum
Í ARNARSTAPAHÖFN Ólafur Ingason er
einn þeirra sem var á strandveiðum í
síðustu viku. Kristín Sólborg dóttir hans
fór í túr með honum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Í BAKKAFJÖRU Konurnar á leið um borð í bát sem flutti
þær til Vestmannaeyja. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR
SPURNING DAGSINS
Lamisil Once 1% húðlausn inniheldur 10 mg af terbínafíni (sem hýdróklóríð). Lamisil Once er einskammta meðferð við fótsvepp (tinea pedis). Ekki má
nota Lamisil Once ef til staðar er ofnæmi fyrir terbínafíni eða einhverju öðru innihaldsefni lyfsins. Lamisil Once er eingöngu ætlað til útvortis notkunar.
Lyfið er eingöngu ætlað til húðmeðferðar á fótum. Lamisil Once á ekki að nota á meðgöngu nema brýna nauðsyn beri til. Konur með barn á brjósti
eiga ekki að nota Lamisil Once. Börn og unglingar undir 18 ára aldri eiga ekki að nota lyfið þar sem reynslu skortir af slíkri notkun. Lyfið á einungis að
bera á einu sinni. Best er að bera Lamisil Once á húðina eftir sturtu eða bað. Lyfið verður að bera á báða fætur, jafnvel þótt einkenni sjáist einungis á
öðrum fæti. Þetta tryggir eyðingu sveppsins. Hann getur leynst víðar á fótum þótt ekki sjáist nein merki um hann. Lamisil Once er mild lausn og ertir
sjaldnast húðina. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lesið vandlega leiðbeiningarnar sem fylgja hverri pakkningu. Markaðsleyfishafi: Novartis
Healthcare. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ.