Fréttablaðið - 17.05.2010, Qupperneq 8
8 17. maí 2010 MÁNUDAGUR
5.000 umslög af heppilegri stærð.
UMHVERFISVOTTUÐ
PRENTSMIÐJA
2.000 bæklingar með
afar djúpum pælingum.
Oddi – umhverfisvottuð prentsmiðja. Höfðabakka 7, 110 Reykjavík, sími 515 5000, www.oddi.is
1 Hvað heitir lögfræðingurinn
sem Sigurður Einarsson hefur
ráðið sér?
2 Hvaða kvikmyndahúsi í
höfuðborginni verður lokað um
mánaðamótin?
3 Hvaða fyrrum knattspyrnu-
maður er fluttur til landsins og
starfar sem fótboltasérfræðing-
ur hjá RÚV?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 30
EFNAHAGSMÁL Eva Joly segir að
miðað við aðstæður gangi rann-
sókn, vegna bankahrunsins,
ágætlega. Þá sé
eðlilegt að ekki
sé skýrt frá
þeirri rannsókn
sem í gangi er
opinberlega.
Þetta kom fram
í Silfri Egils í
gær.
Þá varaði hún
við því að reynt
yrði að gera lítið úr rannsókninni
og störfum sérstaks saksóknara,
Ólafs Þórs Haukssonar. Tilhneig-
ingar í þá átt gætti í ummælum
margra vegna fyrstu handtak-
anna og kæra á hendur stjórn-
enda Glitnis. Hún sagði ennfrem-
ur að ekki mætti líta svo á að mál
Landsbankans lægju óbætt hjá
garði, þó lítið færi fyrir þeim nú.
Sýna yrði þolinmæði.
- kóp
Joly segir miða eðlilega:
Gera lítið úr
rannsókninni
EVA JOLY
HEILBRIGÐISMÁL Nýtt hjúkrunar-
heimili fyrir 60 heimilismenn
verður tekið í gagnið í Garðabæ
haustið 2012. Gunnar Einarsson,
bæjarstjóri í Garðabæ, og Árni
Páll Árnason, félags- og trygg-
ingamálaráðherra, undirrituðu
samning um fjármögnun og upp-
byggingu heimilisins í gær.
Heimilið verður á Sjálandi og
er áætluð stærð þess 4.500 fer-
metrar. Í húsinu verður einnig
svokallað þjónustusel, 1.500 fer-
metra rými fyrir ýmsa þjónustu
við eldri borgara, iðjuþjálfun,
sjúkraþjálfun, hárgreiðslustofu
og fótaaðgerðastofu. Heildar-
kostnaður við framkvæmdirnar
er áætlaður 2,16 milljónir. Fram-
kvæmdir munu hefjast í haust. - sh
Hjúkrunarheimili í Garðabæ:
Nýtt heimili
opni árið 2012
SVEITARSTJÓRNARMÁL Sjálfstæðis-
flokkurinn í Reykjavík leggur
megináherslu á það á komandi
kjörtímabili að standa vörð um
grunnþjónustu borgarinnar án
þess að hækka skatta. Frambjóð-
endur flokksins kynntu stefnuskrá
hans fyrir komandi borgarstjórnar-
kosningar í gær.
Flokkurinn segist vilja forgangs-
raða í þágu fjölskyldna í borginni og
að „gjöld fyrir grunnþjónustu verði
áfram með þeim lægstu á landinu.“
Þá vill flokkurinn að sköpuð verði
aukin tækifæri til atvinnusóknar
með framkvæmdum og átaksverk-
efnum, auk bættrar þjónustu við
fyrirtæki og frumkvöðla.
Hanna Birna Kristjánsdóttir
borgarstjóri sagði borgarbúa verða
að geta treyst því að borgin standi
með þeim og standi vörð um þjón-
ustu og öryggi fyrir börn og fjöl-
skyldur, án þess að hækka skatta.
Hún sagði Sjálfstæðisflokkinn hafa
sýnt að þetta væri hægt að gera.
Flokkurinn segist vilja að hugað
verði betur að lífsgæðum í hverf-
um borgarinnar og að íbúar fái
aukin áhrif með því að kjósa beint
í hverfisráð og um forgangsröðun í
fjárhagsáætlunum. - þeb
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík kynnti stefnuskrá fyrir kosningarnar:
Skattar verði ekki hækkaðir
Í HLJÓMSKÁLANUM Hanna Birna
Kristjánsdóttir borgarstjóri og aðrir fram-
bjóðendur Sjálfstæðisflokksins kynntu
stefnuskrá flokksins fyrir komandi kosn-
ingar í Hljómskálanum á laugardag.
HEILBRIGÐISMÁL Haldi íslensk
stjórnvöld áfram á sömu braut
í lækkun lyfjaverðs munu stór-
ir lyfjaframleiðendur hætta
að setja ný lyf á markað hér á
landi og jafnvel draga eldri lyf
af markaði, segir Robin Turner,
framkvæmdastjóri hjá sviss-
neska lyfjafyrirtækinu Roche.
Fyrirtækið er eitt af stærstu
lyfjafyrirtækjum í heiminum í
dag, og stærsti fram-
leiðandi krabbameins-
lyfja.
Turner segir íslensk
stjórnvöld ítrekað hafa
tekið slæmar ákvarð-
anir um lyfjamark-
aðinn. Ekki gangi að
lækka verðið hér niður
fyrir ásættanlegt verð
á stærri mörkuðum.
Þá krefjist aðrir þess
að fá lyf á sama verði
og Íslendingar, sem
gangi ekki upp fyrir
lyfjafyrirtæki á borð
við Roche.
Roche er ekki eina
lyfjafyrirtækið sem
er búið að fá nóg af
ástandinu á Íslandi,
segir Turner. Önnur
lyfjafyrirtæki séu
í nákvæmlega sömu
stöðu.
Óvissa sem ríkt hefur hér á
landi um lyfjaverð hefur einn-
ig haft afar skaðleg áhrif, segir
Turner. Það sé erfitt að ákveða
hvort selja eigi ný lyf á Íslandi
þegar umsamið verð sé lækkað
einhliða af íslenskum stjórnvöld-
um stuttu eftir að lyfin komi á
markað.
Óvissan jókst verulega eftir
efnahagshrunið hér á landi
haustið 2008. Turner segir að um
tíma hafi litið út fyrir að stöðug-
leika væri náð á ný. Þá hafi röð
slæmra ákvarðana komið frá
íslenskum heilbrigðisyfirvöldum
og allt farið í sama farið aftur.
„Við og okkar fulltrúar á
Íslandi náðum engu sambandi
við heilbrigðisráðherra eftir það,
ráðherrann virðist kjósa einhliða
ákvarðanir í stað þess að ræða
málin,“ segir Turner.
„Það hefur enginn
spurt mig hvað Roche
gæti gert til að koma til
móts við Ísland í þeirri
erfiðu stöðu sem land-
ið er í dag. Það hefur
ekki einu sinni reynt
á hvort hægt væri að
koma fram með skap-
andi hugmyndir sem
kæmu til móts við
báða aðila. Þess í stað
er ítrekað ákveðið ein-
hliða að lækka verðið
með litlum fyrirvara.“
Roche hefur fjár-
fest talsvert á Íslandi,
og gert tilraunir með
krabbameinslyf hér
á landi. Turner segir
augljóst að ekki verði
framhald þar á ef lyfin
sem prófuð eru fari
ekki í sölu hér á landi.
Turner segir nauðsynlegt fyrir
íslensk heilbrigðisyfirvöld að
ræða málin á opinn hátt við full-
trúa lyfjafyrirtækjanna. Í Dan-
mörku hafi til að mynda verið
samið um verðlækkun á lyfjum
gegn því að samningur um lyfja-
verð gildi í tvö til þrjú ár að lág-
marki. Það sé stuttur tími, en
skárra en það ástand sem ríkt
hafi á Íslandi. brjann@frettabladid.is
Stór lyfjafyrirtæki íhuga að
hætta að selja lyf til Íslands
Mikill óstöðugleiki á lyfjamarkaði á Íslandi gæti orðið til þess að ný lyf verði ekki sett á markað hér á landi
segir framkvæmdastjóri lyfjarisa. Viljum sambærilegt verð og nágrannalöndin segir heilbrigðisráðherra.
LYF Þróun og framleiðsla á lyfjum er kostnaðarsöm og óstöðugleiki á lyfsölumark-
aði er þyrnir í augum lyfjafyrirtækja, segir framkvæmdastjóri hjá Roche-lyfjarisan-
um. NORDICPHOTOS/AFP
„Við höfum náð gríðar-
legum árangri í lækkun
útgjalda til lyfjakaupa án
þess að það hafi bitnað á
sjúklingum eða heilbrigðis-
stofnunum,“ segir Álfheiður
Ingadóttir heilbrigðisráð-
herra. Ríkissjóður hafi
sparað einn milljarð króna
á síðasta ári með breyt-
ingum á lyfjakaupum og
niðurgreiðslu og til standi
að spara 1,5 milljarða á
yfirstandandi ári.
„Það er ljóst að þetta kemur ein-
hvers staðar niður, en ég hef enga
trú á því að landið verði lyfjalaust
vegna þessa,“ segir Álfheiður. Hún
segir kröfu Íslendinga ekki þá að fá
lyfin á lægra verði en aðrir,
aðeins að fá sambærilegt
verð og nágrannalöndin.
„Það er misskilningur að
þetta skipti sköpum varð-
andi afkomu lyfjafyrirtækj-
anna í heiminum, þetta
er 300 þúsund manna
markaður, sem er örmark-
aður fyrir lyfjaiðnaðinn.
Ég held að það séu ýkjur
að þessi fyrirtæki íhugi að
hætta að setja lyf á markað
hér á landi.“
Álfheiður vísar því alfarið á bug
að ekki sé haft samráð við lyfja-
iðnaðinn í aðgerðum stjórnvalda.
Þvert á móti hafi verið haft víðtækt
samráð við lyfjafyrirtæki og lækna.
Hef ekki trú á að landið verði lyfjalaust
ÁLFHEIÐUR
INGADÓTTIR
ATVINNUMÁL Samiðn krefst þess
að stjórnvöld ráðist í öflugt átak
í uppbyggingu í orkumálum
og stóriðju. Þetta kemur fram
í ályktun sem samþykkt var á
þingi Samiðnar um atvinnumál á
laugardag.
Í ályktuninni segir að með
átaki í stóriðju skapist forsendur
fyrir viðsnúningi í íslensku efna-
hagslífi og auknum hagvexti. Enn
fremur segir að tryggja verði
sjálfbærni í nýtingu auðlinda og
að ekki verði gengið á rétt kom-
andi kynslóða. - bs
Samiðn um atvinnumál:
Heimtar átak í
virkjanamálum
Það hefur
enginn spurt
mig hvað Ro-
che gæti gert
til að koma
til móts við
Ísland í þeirri
erfiðu stöðu
sem landið er
í dag.
ROBIN TURNER
FRAMKVÆMDA-
STJÓRI HJÁ ROCHE
VEISTU SVARIÐ?