Fréttablaðið - 17.05.2010, Qupperneq 16
17. maí 2010 MÁNUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Frá því að Fríkirkjusöfnuðurinn var stofnaður árið 1899
hefur Fríkirkjan í Reykjavík vaxið og dafnað og er í dag
með stærsta söfnuð utan þjóðkirkjunnar en söfnuðinum til-
heyra nú um níu þúsund manns. Guðfræðingurinn Bryndís
Valbjarnardóttir var sett inn í prestsembætti við Fríkirkj-
una í Reykjavík við hátíðlega athöfn í gær.
„Starfið leggst afar vel í mig og ég er mjög þakklát fyrir
að fá þetta tækifæri, að starfa í Fríkirkjunni, því hún starfar
í þeim anda sem mér er kær,“ segir Bryndís. „Það er þetta
frelsi og umburðarlyndi innan Fríkirkjunnar sem hefur allt-
af höfðað til mín. Fríkirkjan hefur alltaf staðið fyrir umbót-
um og innan hennar er tekið tillit til allra hópa og þá sér-
staklega minnihlutahópa sem hafa þurft að berjast fyrir
sínum rétti, svo sem samkynhneigðir. Einnig hefur kirkjan
alltaf staðið vörð um réttindi kvenna, réttindi til trúfrelsis
og því eru margir sem hafa fundið að þeir eiga samleið með
Fríkirkjusöfnuðinum.“
Bryndís fæddist árið 1957 í Reykjavík og er uppalin í
borginni. Hún lauk embættisprófi frá guðfræðideild Háskóla
Íslands árið 2001 og hefur séð um messur í Fríkirkjunni í
fjarveru Hjartar Magna Jóhannssonar fríkirkjuprests auk
þess að starfa hjá Útfararstofu Íslands. „Ég var ekki alin
upp á trúræknu heimili en það var lögð rík áhersla á að vera
góð manneskja við minnimáttar; held ég hafi einu sinni farið
í sunnudagaskólann sem barn og þegar ég fór að vinna við
sunnudagaskólann skemmti ég mér því ekki síður vel en
krakkarnir. Ég hef hins vegar alltaf verið trúuð og trúin
hefur hjálpað mér og leitt mig í gegnum lífið. Þegar ég fór
í guðfræðideildina var það samt ekki með því hugarfari að
ég ætlaði að klára það nám og ég ætlaði aldrei meðvitað að
verða prestur. En þetta varð svo sjálfkrafa eðlilegt fram-
hald,“ segir Bryndís.
Vígslumessan fór fram í Dómkirkjunni og um kvöldið
setti séra Hjörtur Magni Bryndísi inn í embætti í Fríkirkj-
unni. „Mér þykir mjög vænt um að fá að ganga í þau störf
sem búið er að vinna svo vel í gegnum árin og traustið sem
mér er sýnt með því. Það mikilvægasta í starfi prestsins er
kærleikshugsunin og hún á alltaf við.“ juliam@frettabladid.is
BRYNDÍS VALBJARNARDÓTTIR: SETT Í
EMBÆTTI PRESTS Í FRÍKIRKJUNNI
Kærleikurinn
mikilvægastur
ÞAKKLÁT FYRIR TRAUSTIÐ Bryndís Valbergsdóttir, nýr prestur í Fríkirkj-
unni í Reykjavík, segist hlakka til að takast á við nýtt starf.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
GERÐUR HELGADÓTTIR (1928-
1975) LÉST ÞENNAN DAG.
„Ég er sterk.“
Gerður Helgadóttir er einn
þekktasti myndhöggvari
Íslands. Verk hennar, brons-
myndir, steinda glugga og
mósaíklistaverk má finna
víða á Íslandi og má þar
nefna mósaíklistaverk-
ið á Tollstöðvarhúsinu við
Tryggvagötu í Reykjavík.
Á þessum degi árið 1983 varð tug-
milljóna tjón á Suðurnesjum þegar
hraðfrystihúsið Keflavík hf. brann.
Bæði urðu skemmdir á húseignum
og vélbúnaði og einnig brunnu
þúsundir pakka af fiski. Bruninn var
mikið áfall fyrir bæjarfélagið þar
sem margir misstu atvinnu sína um
tíma og einnig hafði skólafólk feng-
ið vilyrði um vinnu hjá fyrirtækinu.
Eldurinn barst út með skjótum
hætti. Tilkynning um eldsvoðann barst lögreglunni í Keflavík um
átta að kvöldi og kom slökkvilið Keflavíkur fyrst á staðinn og var
eldur þá mikill í húsinu og erfitt að eiga við hann. Aðstoð barst
fljótlega frá slökkviliðinu á Keflavíkurflugvelli og slökkviliðinu í
Sandgerði og náðu slökkviðiliðin tökum á eldinum um klukku-
stund síðar.
ÞETTA GERÐIST: 17. MAÍ 1983
Hraðfrystihús brennur
SLÖKKVILIÐSMENN
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
Magnús Þórðarson
Hrafnistu Hafnarfirði, áður til heimilis
Hraunhvammi 4,
lést á Hrafnistu 11. maí. Jarðarförin fer fram frá
Fríkirkjunni Hafnarfirði miðvikudaginn
19. maí kl. 13.00.
Björn Magnússon Aðalbjörg Reynisdóttir
Guðrún Elín Magnúsdóttir Jan A. Juncker Nielsen
Þórður Rúnar Magnússon Anna Lárusdóttir
Dagný Emma Magnúsdóttir Hjörtur Kristinsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar,afi, bróðir og
frændi,
Árni Sveinbjörn Árnason
áður til heimilis að Þingaseli 5,
Reykjavík
Lést á líknardeil Landspítalans í Kópavogi 13.maí sl.
Útförin verður auglýst síðar.
Jóhann Geir Árnason
Rannveig Árnadóttir
Finnur H. Sigurgeirsson
Hjördís Sigurgeirsdóttir
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, afi, sonur og bróðir,
Skúli Karlsson
Bugðutanga 9, Mosfellsbæ,
sem andaðist á heimili sínu sunnudaginn 9. maí,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík
þriðjudaginn 18. maí kl. 13.00. Blóm og kransar
vinsamlega afþakkaðir en þeir sem vilja minnast Skúla
eru beðnir um að láta björgunarsveitir njóta þess.
Bergrós Hauksdóttir
Ásdís Skúladóttir
Ingibjörg Sigríður Skúladóttir
Guðmundur Skúlason
Skúli Freyr Arnarsson
Karl Eiríksson
Þóra Karlsdóttir
Eiríkur Karlsson
Innilegar þakkir til allra sem auðsýndu
samúð og hlýhug við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
Rósu Maríu Þóru
Guðmundsdóttur
Hjallabraut 33, Hafnarfirði.
Guðmundur Vésteinsson Málhildur Traustadóttir
Vésteinn Vésteinsson Elínborg Bessadóttir
Grétar Vésteinsson Gyða Ólafsdóttir
Sigurður Vésteinsson Hafdís Karvelsdóttir
Bjarni Vésteinsson Steinunn Sigurðardóttir
Viðar Vésteinsson Guðrún Lovísa Víkingsdóttir
Auður Vésteinsdóttir Sveinn K. Baldursson
Anna Margrét Vésteinsdóttir Höskuldur E. Höskuldsson
Guðbjörg Vésteinsdóttir Sveinbjörn M. Njálsson
Árni Þór Vésteinsson Ingibjörg Rögnvaldsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Sigríður Guðmundsdóttir
áður Fjarðargötu 17, Hafnarfirði, sem andaðist
fimmtudaginn 13. maí að Hrafnistu Hafnarfirði,
verður jarðsungin þriðjudaginn 18. maí kl. 11.00
frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði.
Björn B. Líndal
Guðmundur Ingi Björnsson
Ingibjörg Bertha Björnsdóttir Guðmundur Petersen
Árni Már Björnsson Ásrún Jónsdóttir
Sigurbjörn Björnsson Unnur Petra Sigurjónsdóttir
Vilborg Anna Björnsdóttir Sigurður Flosason
barnabörn og barnabörn.
Faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
Ólafur Guðbjörnsson
framreiðslumeistari, Miðvangi 41,
Hafnarfirði,
sem lést á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði sunnudaginn
2. maí, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni
í Hafnarfirði þriðjudaginn 18. maí kl. 15.00.
Guðbjörn Steinþór Ólafsson
Anna Elísabet Ólafsdóttir Kristján Sigurmundsson
Ólafur Rúnar Ólafsson Oddný Kristinsdóttir
Helgi Þór Ólafsson Ingibjörg Jóhannesdóttir
Jóhann Valgarð Ólafsson
Einar Örn Kristinsson Áslaug Stefánsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
MOSAIK
Ástkær bróðir okkar og frændi,
Páll Bernharð
Guðmundsson
frá Útibæ í Flatey á Skjálfanda,
Háaleitisbraut 105,
sem lést 1. maí 2010, verður jarðsunginn frá
Fossvogskapellu mánudaginn 17. maí kl. 13.00.
Systkini og systkinabörn.