Fréttablaðið - 17.05.2010, Page 29
híbýli og viðhald ● fréttablaðið ●MÁNUDAGUR 17. MAÍ 2010 3
Sýning tileinkuð austuríska hugs-
uðinum Rudolf Steiner (1861-1925)
stendur nú yfir Listsafni Wolfs-
burg í Stuttgart í Þýskalandi.
Steiner var guðspekingur sem
þróaði kenningar sem kallast
mannspeki á íslensku og fjalla um
tengsl manna við guðdóminn. Einn
liður í kenningum Steiners er nátt-
úruleg ræktun jarðar, en þekktast-
ur er hann sjálfsagt fyrir uppeldis-
fræði undir merkjum Waldorfs-
stefnunnar.
Áhrif Steiners á listir, arkitekt-
úr og samfélagið eru hins vegar til
umfjöllunar á sýningunni í Wolfs-
burg, sem er skipt í tvo hluta: Ru-
dolf Steiner og nútímalist og Ru-
dolf Steiner og gullgerðarlist
hversdagsleikans. Þar er meðal
annars þekktasta
verk Steiners á
sviði byggingar-
listar, Goeth-
eanum sem
byggt var á
árunum 1924
til 1928 og
tengsl þess við
cúbisma og ex-
pressjónsima
skoðuð. Þá er ljósi
varpað á áhrif Stein-
ers á síðari tíma lista-
menn en á meðal
þeirra sem nefndir
eru til sögunn-
ar eru Ólafur
Elísson, Carsten
Nicolai og Joseph
Beuys.
Sýningin stendur til
13. október á þessu ári.
Magnús Bjarklind, fram-
kvæmdastjóri Horticum
menntafélags og fleiri sérfræð-
ingar félagsins munu fjalla um
garðyrkju og umhverfismál
í pistlum sem verða birtir í
Híbýlum og viðhaldi í sumar.
„Við hjá Horticium ætlum meðal
annars að fjalla um öll helstu við-
halds- og umhirðuverkefni garð-
eigandans, svo sem trjáklipping-
ar, aðgerðir gegn mosa, áburðar-
gjöf, grasslátt og fleira spennandi
sem fellur undir almenn verk-
efni garðeigandans. Einnig verð-
ur fjallað um ýmis umhverfistengd
málefni,“ segir Magnús.
Horticum menntafélag hefur
á undanförnum árum starfað að
miðlun fróðleiks á sviði umhverfis
og garðyrkju, bæði til almennings
og faglærðra. Að félaginu standa
sérfræðingar sem hafa víðtæka en
ólíka menntun og reynslu á þessu
sviði, bæði hérlendis og erlendis.
Þeir hafa meðal annars starfað við
Garðyrkjuskóla ríkisins og Land-
búnaðarháskóla Íslands. Hópur-
inn hefur undanfarin ár miðlað af
þekkingu sinni á námskeiðum sem
hafa verið haldin fyrir almenning
og faglærða í samstarfi við Endur-
menntun Háskóla Íslands, Tækni-
skólann, Landbúnaðarháskólann,
Mími-Símenntun og fleiri. Þá gaf
félagið nýverið út, í samstarfi við
Blómaval, bókina Vinnan í garðin-
um - handbók um garðverkin, sem
er leiðbeiningarit um almenna
garðvinnu fyrir almenning.
„Um þessar mundir erum við
og Félag skrúðgarðyrkjumeistara
á Íslandi að vinna í stóru samnor-
rænu verkefni sem gengur út á
gerð kennsluefnis og námsskrár
fyrir almenna starfsmenn í garð-
yrkju. Megin tilgangur verkefn-
isins er að byggja upp sameigin-
legan þekkingargrunn sem stuðst
verður við, meðal annars í kennslu,
í námskrárvinnu og við gerð
kennsluefnis í þátttökulöndunum,
það er Finnlandi, Danmörku, Nor-
egi og Svíþjóð, en tekur jafnframt
tillit til ólíkra aðstæðna í hverju
landi,“ segir Magnús.
Að hans sögn er eitt helsta bar-
áttuefni Horticum menntafé-
lags og Félags skrúðgarðyrkju-
meistara að fjölga faglærðum í
stétt skrúðgarðyrkjumanna hér-
lendis. „Nýliðun hefur verið allt-
of lítil hingað til með þeim afleið-
ingum að fjöldi ófaglærðra starf-
ar að skrúðgarðyrkju á landinu.
Skrúðgarðyrkja er löggilt iðn-
grein og við höfum beitt okkur
fyrir því að skrúðgarðyrkja verði
kennd við almenna iðnskóla, til
dæmis Tækniskólann og mögu-
lega Verkmenntaskólann á Akur-
eyri. Núverandi kerfi tekur inn
nemendur á tveggja ára fresti og
inntökuskilyrði eru einnig haml-
andi sem meðal annars veldur því
að of fáir sækja námið. Að okkar
áliti yrði breyting til batnaðar
að taka árlega inn nemendur til
dæmis við almenna iðnskóla þar
sem nemendum stæði til boða að
sækja nám í grunndeild viðkom-
andi skóla.“ - rve
Fróðleikur um garðyrkju og umhverfismál í sumar
Magnús Bjarklind er framkvæmdastjóri Horticum menntafélags, sem hefur á undanförnum árum starfað að miðlun fróðleiks á
sviði umhverfis og garðyrkju, bæði til almennings og faglærðra. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Steiner í nýju ljósi
Sum verka Ólafs Elíssonar eru
talin vera undir ákveðnum
áhrifum frá Steiner.
Goetheanum er þekktasta verk Steiners á sviði byggingalistar.