Fréttablaðið - 17.05.2010, Síða 30
17. MAÍ 2010 MÁNUDAGUR4 ● fréttablaðið ● híbýli og viðhald
Byko heldur úti svokölluðu Ráða-
góðu horni. Þar eru veitt góð ráð
við ýmsu sem snýr að viðhaldi og
smíðum.
Þar eru meðal annars gefin góð ráð
um viðhald og málun á eldra þak-
stáli:
● Fjarlægið alla lausa málningu til
dæmis með háþrýstiþvotti eða
sköfun. Ef brúnir á málningunni,
sem eftir situr, brettast upp þarf
að fjarlægja þær með beittum
sköfum, til dæmis kattarklóru
fyrir bárujárn. Kattarklóran
hentar einnig vel til að fjarlægja
þykka málningu úr lágbáru.
● Allt ryð þarf að fjarlægja með
vírburstun eða slípun.
● Salt og önnur óhreinindi þarf að
þvo af fletinum fyrir málun.
● Vandið sérstaklega hreinsun í
kringum nagla og samskeyti á
plötum.
● Yfirfara þarf neglingu og skipta
út lausum nöglum með skrúfu-
nöglum.
● Blettamálið alla ryðbletti með
viðeigandi ryðvarnargrunni.
● Að lokum eru málaðar tvær um-
ferðir með viðeigandi þakmáln-
ingu.
Málning og við-
hald á þakstáli
Huga þarf að viðhaldi húsþaka með
reglulegu millibili.
Öfugt við það sem margir halda
þá er best fyrir tré að vera snyrt
á sumrin því þá koma fáar grein-
ar út úr sárinu.
Lífi trjáa má skipta í fjóra ald-
ursflokka. Ungt tré, frá því það er
fræ og þar til það fer að blómstra;
kynþroska tré; á því skeiði þolir
það miklar klippingar; fullþrosk-
að tré sem stækkar hægt, af því á
einungis á að klippa dauðar grein-
ar og þær sem nuddast saman
og hrörnandi tré sem ekkert má
klippa af nema hætta stafi af
greinum þess.
Gott að klippa
trén á sumrin
Af fullþroska tré á að klippa dauðar
greinar og þær sem nuddast saman.
● KRYDDJURTIR Í ÓVENJULEG-
UM ÍLÁTUM Kryddjurtir er auðvelt að
rækta og skemmtilegt er að finna undir
þær óvenjuleg ílát. Þannig minnum við
sjálf okkur á að nota ferskar kryddjurtir á
hverjum degi.
Notast má við gamlar dósir og krukk-
ur en einnig fallega bolla úr gömlu stelli,
kínverskar skálar og jafnvel matarskálar
gæludýranna. Þeir sem eru sérstaklega
nýjungagjarnir geta fundið óvenjuleg
ílát á borð við gamlar brauðristar sem
munu vafalaust vekja athygli gesta.
Yfirburðir Fréttablaðsins algjörir!
Fréttablaðið er með 180% meiri lestur en Morgunblaðið.
Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18–49 ára.
Könnun Capacent í febrúar til apríl 2010.
Nýjasta könnun Capacent Gallup staðfestir
hinn gríðarlega mun sem er á lestri
Fréttablaðsins og Morgunblaðsins.
Við erum auðvitað rífandi stolt af þessum
góða árangri og bendum auglýsendum á að
notfæra sér forskot okkar þegar þeir velja
auglýsingamiðil.
MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTABLAÐIÐ
77,5%
27,7%