Fréttablaðið - 17.05.2010, Page 36

Fréttablaðið - 17.05.2010, Page 36
20 17. maí 2010 MÁNUDAGUR Spiderman-leikkonan Kirst- en Dunst, 24-stjarnan Kiefer Suther-land og þýska goðsögnin Udo Kier eru meðal þeirra sem hafa ákveðið að leika í næstu kvikmynd danska sérvitrings- ins Lars von Trier, Melancholia. Þrátt fyrir að Trier hafi orð á sér fyrir að vera fremur erfiður í samstarfi þá virðist það ekki hafa nein áhrif á stjörnurnar, sem ólmar vilja vinna með honum. Að sjálfsögðu er ekki gefið mikið upp um hvað Mel- ancholia fjallar en síðasta kvikmynd leikstjórans, Anti- christ, fór ákaflega fyrir brjóstið á áhorfendum enda þótti hún opinská með eindæmum. Stórstjörnur til Trier KIRSTEN DUNST Elin Nordergren, fyrrum eiginkona Tiger Woods, hyggst ekki gefa neitt eftir í skilnaði sínum við besta kylfing heims. Lögfræðingastóð mun koma að sambandsslitum parsins. Elin hefur líkt og skilanefndir íslensku bankanna ráðið sér heil- an her fjármálalögfræðinga sem eiga að rannsaka hvort kylfing- urinn hafi komið undan eignum. Er Tiger grunaður um að hafa gert það til að minnka það fjár- hagslega tap sem hann verður fyrir þegar skilnaðurinn geng- ur í gegn. Lögfræðingastofunni McGuire Woods hefur jafnframt verið falið að rannsaka hvort Tiger eigi einhverjar eignir eða fjár- muni sem Elin hafi aldrei vitað af. Samkvæmt sunnudagsútgáfu Mirror starfar tvíburasystir Elin- ar, Josefin, hjá McGuire Woods en fyrirtækið sérhæfir sig í því að hafa uppá földum milljörðum auð- jöfra. Lögfræðingarnir bætast við þann hóp sem Elin hefur ráðið sér í Flórída. Samkvæmt heimildarmanni Mirror hefur það alltaf verið ljóst að Elin ætli sér alls ekki að berjast við Tiger um peninga heldur fari hún fram á sanngjarna upphæð sem talin er nema 240 milljónum punda eða 46 milljörðum íslenskra króna. „Hún vill einfaldlega vita hversu mikla peninga Tiger á. Upphæðin sem hún krefst er mjög sanngjörn, þetta er þriðjungshlutur af því sem hann hefur þénað á þeim árum sem þau voru gift. Ég held reyndar að Tiger eigi miklar eignir.” En eins og frægt er orðið hélt kylfingur- inn framhjá konu sinni með fjölda kvenna. Bandarískir skilnaðarsérfræð- ingar spá því þó að Elin og Woods verði skilin áður en árið 2010 er á enda. freyrgigja@frettabladid.is Skilnaðarstríð Tiger og Elinar hafið LJÓTUR SKILNAÐUR Fjölmiðlaspekingar og lögfræðingar spá því í bandarískum fjölmiðlum að skilnaður Tiger Woods og Elinar Nordergren verði fremur ljótur og ógeðfelldur þar sem allt verði dregið fram í dagsljósið. Elin krefst 46 milljarða frá kylfingnum. Þegar Hollywood-kvikmyndir eru gerðar krefst það mikillar fórnfýsi af næsta nágrenni. Enda fyllast heilu hverfin af æstum aðdáendum, fjölmiðlafólki og ljósmyndurum og göturnar eru yfirleitt flóðlýstar á næturnar fyrir tökur ásamt mikilli umferð stórra tökubíla. Og þetta veit gamanleikarinn Steve Carell. Hann brá því á það ráð að kaupa blóm handa íbúum sem búa í nágrenni við tökustað næstu myndar hans og bauð þeim jafnframt að koma hvenær sem er og gæða sér á ljúffengum veitingum þegar tökur stæðu yfir. Samkvæmt bandarískum vefmiðlum er ekki gefið upp hvar þessi tökustaður er né um hvaða mynd er að ræða. Samkvæmt heimildarmanni einnar vefsíðunnar mæltist framtakið þó ákaf- lega vel fyrir. „Hann heimsótti 24 hús sjálfur og baðst fyrirfram afsökunar á því ónæði sem hlytist af því að hafa tökulið í næsta nágrenni,“ segir heimildarmaðurinn en framtakið vakti óskipta athygli og mikla kátínu. „Fólk var virki- lega hrifið af því sem Steve gerði. Að hann sem leikari og framleiðandi skyldi hugsa um þeirra hag. Og blómvend- irnir og veitingarnar voru rúsínan í pylsuendanum. Nú er þetta bara eins og hverfisveisla þar sem fólkið í hverfinu kemur á tökustað, horfir á kvikmyndastjörnurnar vinna sína vinnu og fær sér að borða. Þetta er ótrúlegt.“ Carell biðst afsökunar fyrirfram UMHYGGJUSAMUR Steve Carell bar hag fólksins í nágrenni við tökustað næstu myndar hans fyrir brjósti og gaf þeim bæði blóm og mat. > ÆTLA AÐ GIFTAST Bæði Russell Brand og Katy Perry og svo Sienna Miller og Jude Law hafa í hyggju að ganga í það heilaga í ár. Brand og Perry ætla giftast í októb- er á meðan Miller og Law eru sögð vera að skipuleggja sumar- brúðkaup. E N N E M M / S ÍA / N M 4 2 2 11 folk@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.