Fréttablaðið - 17.05.2010, Page 37

Fréttablaðið - 17.05.2010, Page 37
MÁNUDAGUR 17. maí 2010 21 Það er 0 kr. mínútan úr heimasíma í heimasíma* Nú geturðu blaðrað eins og þú vilt. Hringdu í 800 7000 til að panta heimasíma *Einungis er greitt upphafgjald 6 kr. af hverju símtali. Mán.verð 1.765 kr. Keflvíkingurinn Skarphéðinn S. Héðinsson er háttsettur innan tæknideildar Disney- og ABC- sjónvarpssamsteypunnar. Hann hlaut Emmy-verðlaun árið 2006 og hefur nýlokið við þróun for- rits fyrir iPad-græjuna. Skarphéðinn flutti til Seattle í Bandaríkjunum árið 1991 til að læra tölvunarfræði og hefur ílengst þar í landi allar götur síðan. Núna býr hann skammt fyrir utan Los Angeles ásamt bandarískri eiginkonu sinni og tveimur börnum. Hann er yfir- maður innan tæknideildar Disney- og ABC-sjónvarpssamsteypunnar og undir honum starfa um það bil sextíu manns. Aðspurður segist Skarphéðinn hafa verið heppinn á ferli sínum og er ánægður með hversu vel hefur gengið. „Ég sækist frekar eftir vinnu sem ég hef áhuga á og svo kemur allt hitt á eftir,“ segir hann hógvær. Áður er hann réði sig til Disney og ABC árið 2004 starfaði hann sem yfirmaður þróunardeildar hjá ESPN-sjónvarpsstöðinni. Þróaði hann tæknina á bak við fótboltasíð- una vinsælu Soccernet.com ásamt samstarfsfólki sínu og kom henni í raun á laggirnar árið 2000. „Mér fannst þetta voða gaman því ég er mikill fótboltaáhugamaður,“ segir Skarphéðinn, sem er staddur hér á landi í stuttu fríi. Í starfi sínu hjá Disney og ABC vinnur hann við stafræna dreif- ingu á sjónvarpsefni þannig að fólk geti ekki bara horft á það í sjónvarpinu heldur líka á netinu án nokkurra vandkvæða, með aðstoð tölvu eða síma. „Þetta er ofboðs- lega stökkbreytt umhverfi í dag því neyslan er að breytast hjá fólki,“ segir Skarphéðinn. ABC-fyrirtæk- ið eyðir miklum peningum í fram- leiðslu sjónvarpsþátta á borð við Grey´s Anatomy, Lost og Desperate Housewifes og með breyttu áhorfs- mynstri á slíka þætti þarf Skarphéð- inn að sjá til þess að peningar náist aftur inn í fyrirtækið í gegnum net- áhorf. Til dæmis var ABC frumkvöð- ull í að bjóða sjónvarpsþætti ókeypis á heimasíðu sinni, gegn því að fólk horfði á auglýsingarnar sem fylgdu með. Þetta uppátæki hitti rækilega í mark og fékk Skarphéðinn og teymi hans hin virtu Emmy-verðlaun fyrir það starf. Styttuna glæsilegu geymir hann uppi á píanóinu heima hjá sér. Hann hefur nýlokið svipuðu starfi í tengslum við nýju iPad-tölvuna svo að almenningur eigi auðvelt með að sjá hina vinsælu sjónvarpsþætti ABC í gegnum hana. „Við læstum okkur tólf saman inni í fimm vikur og keyrðum okkur út til að ákveða hvernig Disney gæti notað tölvuna. Þetta var lítill hópur en mjög ein- beittur,“ segir hann. „Núna er hægt að nálgast forritið okkar ókeypis og horfa síðan á sjónvarpsefni í gegnum það.“ Þessi mikla vinna skilaði sér ríkulega því fyrsta mánuðinn voru streymdir 1,5 milljónir þátta í gegn- um iPadinn. Skarphéðinn kynntist Steve Jobs, eiganda Apple og stærsta einstakl- ingseiganda að hlutabréfum í Disney, lítillega í tengslum við verkefnið og hitti hann einmitt á dögunum ásamt samstarfsfólki sínu. „Hann tók í höndina á okkur og þakkaði okkur fyrir góð störf. Það var mikil upplif- un fyrir starfsfólkið að fá þetta beint frá honum.“ freyr@frettabladid.is Geymir Emmy-stytt- una á píanóinu heimaFR ÉT TA B LA Ð IÐ /A N TO N SKARPHÉÐINN S. HÉÐINSSON Hefur starfað fyrir Disney- og ABC-sjónvarpssamsteypuna í sex ár.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.