Fréttablaðið - 17.05.2010, Side 42
26 17. maí 2010 MÁNUDAGUR
Fylkisvöllur, Áhorf: 1.506
Fylkir Stjarnan
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 13–8 (7–7)
Varin skot Fjalar 4 – Bjarni 3
Horn 8–4
Aukaspyrnur fengnar 15–21
Rangstöður 9–4
STJARNAN 4–5–1
Bjarni Þórður Halld. 4
Baldvin Sturluson 6
Daníel Laxdal 7
Tryggvi Sveinn Bjarn. 6
(62., Bjarki Páll 5)
Atli Jóhannsson 6
Jóhann Laxdal 7
Halldór Orri Björnss. 7
Dennis Danry 6
Steinþór Freyr Þorst. 7
Hafsteinn Rúnar 6
Marel Baldvinsson 5
(70., Þorvaldur Árn. 5)
*Maður leiksins
FYLKIR 4–3–3
Fjalar Þorgeirsson 6
Kristján Valdimarss. 6
Valur Fannar Gíslas. 6
Einar Pétursson 7
(55., Þórir Hanness. 5)
Tómas Þorsteinsson 6
*Ásgeir Börkur 8
Ólafur Ingi Stígsson 6
(74., Jóhann Þórh. 7)
Andrés Már Jóh. 6
Kjartan Ág. Breiðdal 7
(61., Pape Faye 5)
Ingimundur Níels 7
Albert Ingason 7
1-0 Ingimundur Níels Óskarsson (4.)
1-1 Halldór Orri Björnsson (13.)
2-1 Albert Brynjar Ingason (70.)
3-1 Jóhann Þórhallsson (87.)
3-1
Einar Örn Daníelss. (7)
*Frí heimsending gildir aðeins ef pantaðir eru 4 eða fleiri bakkar.
Pantaðu í síma
565 6000
eða á somi.is
*
HANDBOLTI Patrekur Jóhannesson
hefur ákveðið að þjálfa þýska
liðið TV Emsdetten næsta tíma-
bil og hann ætlar að taka með sér
Valsmanninn Fannar Þór Frið-
geirsson sem átti flott tímabil og
frábæra úrslitakeppni.
„Ég er ekki búinn að skrifa
undir samning en ég mun gera
það í vikunni. Ég er búinn að ná
munnlegu samkomulagi við þá
og búinn að klára mín mál gagn-
vart Stjörnunni og vinnuveitanda
mínum hjá Garðabæ,“ sagði Patr-
ekur. Liðið á eftir að fara í umspil
um sæti í úrvalsdeildinni þannig
að það er ekki ljóst í hvaða deild
liðið verður.
„Ef þeir komast upp þá verður
það erfitt verkefni að vera í sterk-
ustu deildinni. Ef þeir komast
ekki upp þá er það bara markmið-
ið að fara beint upp,” segir Patr-
ekur sem verður með tvo íslenska
leikmenn hjá sér.
„Ég legg mikla áherslu á að fá
Fannar með mér. Hann er frábær
leikmaður sem ég tel að passi vel
inn í þýskan handbolta. Hann er
það góður leikmaður og duglegur
að æfa. Hreiðar á eitt ár eftir af
samningnum og verður áfram,“
segir Patrekur sem ætlar þó ekk-
ert að tala íslensku úti.
„Ég mun alltaf tala þýsku. Þeir
verða bara að læra þýskuna því
það er algjört lykilatriði. Ég var
búinn að segja Fannari það,”
sagði Patrekur. - óój
Patrekur þjálfar Emsdetten:
Tekur Fannar
með sér út
PATREKUR JÓHANNESSON Þjálfar í
Þýskalandi næsta vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÓTBOLTI Barcelona tryggði sér
spænska meistaratitilinn annað
árið í röð eftir 4-0 sigur á Valla-
dolid í lokaumferð spænsku
úrvalsdeildarinnar. Lionel Messi
skoraði tvö marka Barcelona í
leiknum og skoraði því 34 mörk í
spænsku deildinni á tímabilinu.
Real Madrid varð að vinna sinn
leik og treysta á að Barcelona
misstigi sig en á endanum náðu
Real-menn aðeins 1-1 jafntefli á
móti Malaga. .
Fyrsta mark Barcelona var
sjálfsmark á 27. mínútu en fjór-
um mínútum síðar kom Pedro
Rodriguez liðinu í 2-0 eftir send-
ingu Lionel Messi. Messi skoraði
síðan þriðja markið á 62. mínútu
og það fjórða á 76. mínútu. - óój
Barcelona spænskur meistari:
Öruggur sigur
LIONEL MESSI Skoraði 2 mörk í gær og
gerði alls 34 mörk. MYND/AP
FÓTBOLTI Fylkir sigraði Stjörnuna
í skemmtilegum knattspyrnuleik
í gær. Mörk heimanna skoruðu
þeir Ingimundur Níels Óskars-
son, Albert Brynjar Ingason og
Jóhann Þórhallsson en mark gest-
anna skoraði Halldór Orri Björns-
son úr aukaspyrnu. Leikurinn var
mikil skemmtun og baráttan hörð
en um 1.500 manns lögðu leið sína
á völlinn í Árbæinn.
Fylkismenn byrjuðu leikinn
með látum en Ingimundur Níels
Óskarsson kom heimamönnum
yfir eftir að hafa sloppið í gegn-
um vörn gestanna. Ásgeir Börkur
Ásgeirsson átti flotta stungusend-
ingu inn fyrir þar sem Ingimund-
ur tók við boltanum kláraði færið
sitt örugglega. Leikurinn fór á fullt
og Stjörnumenn voru ekki lengi að
snúa blaðinu við.
Strax níu mínútum síðar svör-
uðu gestirnir. Steinþór Freyr Þor-
steinsson átti þá sprett upp völlinn
og var brotið á honum rétt fyrir
utan teig. Halldór Orri Björns-
son tók spyrnuna og jafnaði leik-
inn með fallegu skoti neðarlega í
markhornið.
Um miðjan fyrri hálfleik voru
gestirnir heppnir að skora ekki
sjálfsmark en þá átti fyrirliði
Stjörnurnar Daníel Laxdal skot að
eigin marki sem að Bjarni Þórð-
ur Halldórsson þurfti að hafa vel
fyrir í markinu hjá Stjörnunni.
Gestirnir vildu svo fá vítaspyrnu
fljótlega eftir jöfnunarmarkið en
þá var Marel Jóhann Baldvinsson
í baráttunni. Boltinn fór í hendina
á Fylkismanni sem að lá í grasinu
en ekkert var dæmt. Þeir áhorf-
endur sem lögðu leið sína á leik-
inn úr Garðabænum létu vel vita
af óánægju sinni og öskruðu á
Einar Örn Daníelsson ágæta dóm-
ara leiksins. Staðan var jöfn 1-1 er
liðin gengu til búningsherbergja.
Það var meira jafnræði með
liðunum fyrrihluta síðari hálf-
leiks en bæði lið fengu tækifæri
til að komast yfir. Gestirnir voru
nálægt því í tvígang að komast
yfir en Halldór Orri Björnsson
átti tvö skot í tréverkið með stuttu
millibili. Annað mark Fylkis kom
á 70. mínútu en þar var að verki
Albert Brynjar Ingason sem skor-
aði af stuttu færi eftir sendingu
frá Andrési Má. Jóhann Þórhalls-
son sem hafði komið inn á sem
varamaður kláraði leikinn og gull-
tryggði sigurinn fyrir Fylki eftir
misheppnaða markspyrnu Bjarna
Þórðar í marki gestanna. Leikur-
inn rann út í sandinn og Fylkis-
menn fögnuðu góðum sigri í mikl-
um baráttuleik.
Ólafur Þórðarson, þjálfari Fylk-
is, var að vonum sáttur í leikslok.
„Þetta var sanngjarn sigur og við
vorum bara klárlega betra liðið í
þessum leik. Það var mikil barátta
en við vorum bara betri. Skilaboð-
in voru skýr fyrir leikinn, fara út
á völl og sigra eins og við leggjum
upp alla heimaleiki,” sagði Ólaf-
ur en hann var búinn að lesa and-
stæðingin vel og dæmið gekk upp
hjá hans mönnum.
„Við vitum hvernig Stjarn-
an spilar og við náðum að loka á
hættulegustu mennina þeirra enda
náðu þeir ekki að skapa sér mörg
færi í leiknum. Við áttum fullt af
færum í leiknum og við vissum
það að ef að við myndum vera þol-
inmóðir myndu fleiri mörk koma.
Þetta gæti ekki litið betur út og
ég er mjög ánægður,” sagði Ólaf-
ur Þórðarson. - rog
Við vorum bara betri
Fylkismenn eru með fullt hús á toppi Pepsi-deildar karla eftir annan 3-1 sigur-
inn í röð nú á Stjörnumönnum í uppgjöri tveggja efstu liðanna í Árbænum.
MARK EFTIR FJÓRAR MÍNÚTUR Ásgeir Börkur Ásgeirsson fagnar hér Ingimundi Níels
Óskarssyni eftir að hann hafði komið Fylki í 1-0 á 4. mínútu á móti Stjörnunni í gær.
Ásgeir Börkur lagði upp markið og var besti maður vallarins í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
FÓTBOLTI „Ég held aldrei áður
séð jafn mikla einbeitingu og
ákveðni í einu liði. Það voru
11 Selfosshjörtu sem voru
inná vellinum, en ég gat
ekki séð eitt hjarta hjá KR,“
sagði Sævar Þór Gísla-
son eftir sögulegan 1-
2 sigur Selfyssinga
á KR velli í gær-
kvöldi.
Sævar átti stór-
an þátt í fyrsta
markinu á 13.
mínútu leiksins
er hann slapp
einn í gegnum
vörn KR-inga og
var felldur innan
vítateigs af Lars
Ivar Moldsked, mark-
verði KR. Þorvald-
ur Árnason, dómari,
var viss í sinni sök og
dæmdi víti og veifaði
rauða spjaldinu á Mold-
sked. Ingólfur Þórarins-
son steig á vítapunktinn
og skoraði.
KR voru langt frá
sínu besta í fyrri hálf-
leik en fengu þó góð færi
til að jafna leikinn. Fyrst
var mark dæmt af Björgólfi Tak-
efusa vegna rangstöðu og svo
átti Baldur Sigurðsson skalla
sem Jóhann Ólafur Sigurðsson
varði vel í markinu.
Selfyssingar nýttu sér gluf-
ur í vörn KR í seinni
hálfleik og Jón Daði
Böðvarsson tvöfald-
aði forystuna fyrir
Selfyssinga á 53.
mínútu með skoti
af stuttu færi
eftir góða fyrir-
gjöf frá Sævari
Þór. Annað rauða
spjald kvölds-
ins leit dagsins ljós
þegar Agnar Bragi
Magnússon brottvís-
un fyrir háskalega
tæklingu.
KR náði að minnka
muninn undir lokin
með góðu skallamarki
frá Baldri Sigurðssyni
en sigur Selfoss var verð-
skuldaður og ein óvænt-
ustu úrslit í manna minnum stað-
reynd.
„Þetta var mjög slæmur ósigur
hjá okkur. Ég er mjög ósáttur við
frammistöðu minna manna í dag
og það eru gríðarleg vonbrigði
að byrja tímabilið með þessum
hætti,“ segir Logi Ólafsson, þjálf-
ari KR. „Við vorum óþolinmóðir
en auðvitað erfitt að missa mann
útaf snemma leiks. Okkur liggur
of mikið á að sýna hvað við getum
og bráðlætið varð okkur að falli.“
Aðeins eitt stig eftir leiki við
nýliðana á heimavelli hlýtur að
vera áhyggjuefni fyrir KR-inga
sem spáð er Íslandsmeistaratitlin-
um. Selfyssingar munu hins vegar
fagna vel og lengi ótrúlegum sigri
í Vesturbænum. - jjk
KR-ingar aðeins með eitt stig eftir heimaleiki gegn nýliðum Hauka og Selfoss:
Ellefu Selfosshjörtu en ég sá
ekki eitt hjarta hjá KR
Staðan í deildinni
Fylkir 2 2 0 0 6-2 6
Fram 2 1 1 0 4-2 4
FH 2 1 1 0 3-2 4
Stjarnan 2 1 0 1 5-3 3
Keflavík 1 1 0 0 1-0 3
Selfoss 2 1 0 1 3-4 3
Valur 1 0 1 0 2-2 1
KR 2 0 1 1 3-4 1
Breiðablik 2 0 1 1 2-3 1
Haukar 2 0 1 1 2-3 1
ÍBV 1 0 0 1 0-2 0
Grindavík 1 0 0 1 0-4 0
LOGI ÓLAFSSON KR-liðið hefur
valdið miklum vonbrigðum.
FRÉTTBLAÐIÐ/VALLI