Fréttablaðið - 17.05.2010, Page 46

Fréttablaðið - 17.05.2010, Page 46
30 17. maí 2010 MÁNUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 LÁRÉTT 2. getraun, 6. í röð, 8. málmur, 9. knæpa, 11. til dæmis, 12. tala, 14. kál, 16. klafi, 17. traust, 18. óðagot, 20. 49, 21. þjappaði. LÓÐRÉTT 1. merki, 3. borðaði, 4. víbrator, 5. mein, 7. skúfur, 10. tunna, 13. hnoðað, 15. munnur, 16. tíðum, 19. eldsneyti. LAUSN LÁRÉTT: 2. gátu, 6. áb, 8. tin, 9. krá, 11. td, 12. númer, 14. salat, 16. ok, 17. trú, 18. fum, 20. il, 21. tróð. LÓÐRÉTT: 1. tákn, 3. át, 4. titrari, 5. und, 7. brúskur, 10. áma, 13. elt, 15. túli, 16. oft, 19. mó. SJÓNVARPSÞÁTTURINN „Þátturinn Út og suður er alveg ótrúlega skemmtilegur. Mér finnst svo gaman að kynnast því hvað fólk er að gera annars staðar á landinu, þess utan þá er Gísli sjálfur svo skemmtilegur. Ég má helst ekki missa af þætti og dreymir um að eignast alla seríuna.“ Sonja Bent, fatahönnuður. Færst hefur í aukana að fólk breyti heimilum sínum í gistheimili til að afla aukatekna eða til þess eins að geta staðið undir afborgunum. „Lánið hafði hækkað svo mikið og maður var orðinn þreyttur á því að púla og púla til að láta enda ná saman þannig að við ákváðum að flytja út og breyta heimilinu í gistiheimili,“ segir Hannes Þór Baldursson sem rekur gistiheim- ilið Our House ásamt eiginkonu sinni Berglindi Björk Halldórs- dóttur. „Við höfðum ekki efni á að búa í húsinu lengur þannig að við ákváðum að fara þessa leið í stað þess að reyna að selja það. Við fjöl- skyldan fluttum því út og búum nú hérna við hliðin á,“ segir Hannes Þór. Hjónin eiga saman þrjú börn og er hið yngsta aðeins þriggja mánaða gamalt. Gistiheimilið opnar í næstu viku og verður svefnpláss fyrir allt að sextán manns. „Við erum bara nýbyrjuð og enn að ganga frá öllum leyfum en við erum byrj- uð að fá nokkrar bókanir þannig við erum bjartsýn á sumarið og vonum bara að þetta standi undir sér,“ segir Hannes. Gistiheimilið LonnyPlanet við Skipholt er rekið af Jóni Árna Árnasyni sem einnig breytti íbúð sinni í gistheimili. „Hann ákvað að breyta íbúðinni í gistiheimili til að reyna að skapa sér auka tekj- ur. Þetta er þó allt á byrjunarreit og enn er verið að huga að mark- aðssetningu og öðru slíku. Þetta á allt eftir að fara betur af stað,“ segir Hallgrímur Atlason, stjúp- faðir Jóns Árna, sem staddur var úti á landi við vinnu þegar blaða- maður Fréttablaðsins hringdi. Þegar Hallgrímur er spurður út í hið skemmtilega nafn gistiheim- ilisins segir hann það eins konar orðaleik sem vísi í heiti ferðahand- bókarinnar Lonely Planet. „Nafnið þótti honum skemmtilegt því hann er oftast kallaður Lonny af vinum og vandamönnum.“ sara@frettabladid.is HANNES ÞÓR BALDURSSON: VAR ORÐINN ÞREYTTUR Á AFBORGUNUNUM Heimilinu breytt í gistihús REKA SAMAN GISTIHEIMILI Hjónin Berglind Björk Halldórsdóttir og Hannes Þór Baldursson breyttu heimili sínu í gistiheimili til að geta staðið undir afborgunum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON „Þetta verður forvitnilegt,“ segir Nana Alfreðsdóttir, söngkona hljóm- sveitarinnar Elektra. Elektra og hljómsveitin Dalt- on taka sameiginlegan túr í sumar undir heitinu „I Don‘t Do Boys-túr- inn“. Meðlimir hljómsveitanna hitt- ust af því tilefni á dögunum og mál- uðu hljómsveitarrútu Dalton, en henni munu hljómsveitirnar deila í gegnum súrt og sætt í sumar. „Við erum ótrúlega spennt- ar. Við pössum ágætlega saman,“ segir Nana. „Það er gaman að hafa nokkra stráka með og ég held að það sé gott fyrir þá að ferðast með stelpum. Þá náum við jafnvægi. Þeir eru svo villtir, ég held að þeir róist aðeins núna.“ Elektra og Dalt- on koma fram á Borgarnesi, Blöndu- ósi og Siglufirði um næstu helgi. Um miðjan júní leggja hljómsveitirnar svo Austurland undir sig. En óttist þið ekki að hreinlæti strákanna verði bágborið? „Nei. Ég held að þeir verði ekki í sama herbergi og við - við gistum ekki í rútunni,“ segir hún og hlær. „En þetta verður svakapartísumar. Ótrúlega gaman. Það verður líka gaman að skoða landið, ég er svo mikið borgarbarn.“ - afb Kvíða ekki ferðalagi með Dalton „Það dásamlega við krakka er að þeir koma ekki að borðinu fullir af fordómum um hvað sé rétt og skemmtileg. Þau finna þetta á sér,“ segir þúsundþjalasmiðurinn Óttarr Proppé. Óttarr vinur að barnaplötu ásamt Baggalútnum Braga Valdimari Skúlasyni og Kidda í Hjálmum. Sögumaður á plötunni verður eng- inn annar en Sigtryggur Baldurs- son. „Þetta er saga sem við Bragi kokkuðum upp, um krakka sem eiga á hættu að verða leiðinleg, þegar það kemst upp að þau langar til að verða eignaumsýslufræðing- ar og lögfræðingar þegar þau verða stór,“ segir Óttarr. „Þá eru þau send í skóla prófessorsins á Diskóeyju. Þar er skemmtun og gleði kennd.“ Óttarr fer með hlutverk prófess- orsins, en hann hefur brugðið sér í allra kvikinda líki á söngsviðinu - síðast sem söngvari einnar mögn- uðustu hljómsveitar landsins; Dr. Spock. Óttast Óttarr ekki að börn- in hræðist rokkskrímslið sem hann getur verið? „Ég hef fundið fyrir því í gegnum tíðina að krakkar hafa mjög gaman af því sem maður er að gera - því ýktari karakterar sem eru í gangi, því betra, “ segir hann. „Þó maður klæði sig upp fyrir fullorðna þá skilja krakkar það betur en hinir sem eldri eru.“ - afb Senda börnin á Diskóeyju LAGT Í‘ANN Elektra, Dalton og rútan sem rúntar með hljómsveitirnar um landið í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A N TO N BAGGALÚTURINN OG PRÓFESSORINN Bragi Valdimar og Óttarr Proppé vinna að glaðlegri barnaplötu. Ný 4. vikna krakkajóganámskeið hefst 17. maí hjá Jóga Stúdíó Stórhöfða 17. 2–4 ára » mánudagar klukkan 16:30–17:00 5–7 ára » miðvikudagar klukkan 16:30–17:00 8-10 ára » föstudagar klukkan 16:30–17:00 Skráning í síma 772 1025 og 695 8464 Verð aðeins 5.000 kr. Krakkajóga Nánari upplýsingar á jogastudio.org Stórhöfði 17 (gengið inn um Veggsport) Sérstök hátíðarsýning var á Prince of Persia; Sands of Time í Kringlubíói Samfilm. Eins og flestum ætti að vera kunnugt leikur Gísli Örn Garðarsson í myndinni en fjöl- margir vinir leikarans og fjölskylda mættu á sýninguna enda ekki á hverjum degi sem Íslending- ur leikur í jafn stórri mynd. Gísli bauð gesti bíósins velkomna og sló á létta strengi. Grínaðist með það að fyrir tveimur árum hefðu hann, Disney-risinn og Jerry Bruckheimer ákveðið að gera bíómynd um Prince of Persia. Gísli hefði hins vegar verið svo upptekinn að þeir hefðu ákveðið að láta fremur óþekktan „þýskan“ leikara hafa hlutverkið, Jake Gyllen- haal. Áhorfendur í sal klöppuðu hins vegar rækilega þegar Gísli birtist fyrst á hvíta tjaldinu og svo að sýningu lokinni. Annars er óhætt hægt að fullyrða að Gísli hafi í nægu að snúast. Hann steig á fjalir Borgarleikhúss- ins sem Rómeó í gærkvöldi með Vesturporti en hélt síðan áleiðis til Ameríku þar sem hann verður viðstaddur frumsýningu Prince of Persia í Los Angeles þann 17. maí. Sú frumsýning verður ekki af lakari taginu en á gestalist- anum eru stórstjörnur á borð við Bruce Willis og Eddie Murphy. - fgg FRÉTTIR AF FÓLKI VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á síðu 8. 1 Ian Burton. 2 Regnboganum. 3 Andri Sigþórsson.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.