Fréttablaðið - 02.06.2010, Page 37
MARKAÐURINN
H É Ð A N O G Þ A Ð A N
11MIÐVIKUDAGUR 2. JÚNÍ 2010
Tryggingasjóður innstæðueigenda í Bandaríkjun-
um (FDIC) tók yfir fimm banka um síðustu helgi.
Þrír þeirra eru í Flórída, einn í Nevada og annar í
Kaliforníu. Bankarnir höfðu lánað mikið til íbúða-
kaupa og fóru því illa út úr hruni á fasteignamark-
aðinum.
Tryggingasjóðurinn tók yfir rúmlega 140 banka
vestanhafs í fyrra og hefur það sem af er ári þurft
að grípa inn í rekstur 78 til viðbótar. Þar af eru
þret-tán þeirra sem sjóðurinn tók yfir í ár í Flór-
ída, en þar var mesta hrunið á fasteignamarkaði.
Þá eru sex þeirra í Kaliforníu og tveir í Nevada.
Þeir fengu aðvörun frá fjármálayfirvöldum vestra
vegna slæmrar fjárhagsstöðu.
Sheila Bair, forstjóri FDIC, sagði í samtali við
Bloomberg-fréttastofuna um helgina, að á fyrstu
þremur mánuðum ársins hafi 778 bankar í Banda-
ríkjunum átt í fjárhagsvandræðum. Búist er við
að fleiri bankar fari á hliðina og verði hámarkinu
náð síðar á árinu.
Svipuðu máli gegnir um bankana fimm og aðra
banka sem FDIC hefur tekið yfir en keppinaut-
ar keyptu þá nær samstundis í því augnamiði að
víkka starfsemi sína út.
- jab
Næstum hundrað bankar á hliðina
FARINN Tryggingasjóður innstæðueigenda í Bandaríkjunum hefur
tekið 78 banka yfir á árinu. MARKAÐURINN/AFP
Gert er ráð fyrir að Steve Jobs,
forstjóri bandaríska tækniris-
ans Apple, kynni nýjustu kyn-
slóð iPhone-farsímans á árlegri
tækniráðstefnu fyrirtækisins sem
hefst í Kaliforníuríki vestanhafs
á mánudag í næstu viku.
Netmiðillinn Touch Review,
sem flytur fréttir af tækjum
Apple sem byggjast á snertitækni,
segir nýja símann ekki koma sér-
staklega á óvart í þetta sinn enda
hafi helstu upplýsingar um hann
lekið út fyrir nokkru. Á meðal
þess helsta sem talið er líklegt að
greini þann nýja frá fyrri gerðum
er myndupptaka í háskerpu, að-
gangur að iBooks-netbókaversl-
un Apple og fjölvinnsla (e. multi-
tasking).
Eftir því sem flestir erlend-
ir fjölmiðlar telja, má gera ráð
fyrir að farsíminn komi á mark-
að í kringum næstu mánaðamót.
Lítið hefur spurst út um verðið á
nýja símanum en talið er líklegt
að það verði sambærilegt við þá
iPhone-síma sem eru á markaðn-
um. Miðað við það gæti síminn
hingað kominn kostað í kringum
150 þúsund krónur. - jab
Hulunni svipt af nýjum
iPhone eftir viku
Bandaríska netverslunin Ama-
zon er sögð hafa spýtt í lófana
í kjölfar gríðarlegra vinsælda
spjaldtölvunnar iPad frá Apple
og hyggst setja á markað í
Bandaríkjunum síðla sumars
nýja kynslóð af Kindle-lestölv-
unni.
Bloomberg-fréttastofan
hefur eftir heimildum að nýja
lestölvan muni verða þynnri en
núverandi græja. Til saman-
burðar er núverandi Kindle-
græjan 0,9 sentimetra þykk
en iPad-tölvan 1,3 sentímetrar.
Ekki er gert ráð fyrir að breyt-
ing verði gerð á skjánum, sem
verður eftir sem áður í svart/
hvítu. Þá hermir Bloomberg að
borist hafi úr herbúðum Ama-
zon að þar sé unnið að því hörð-
um höndum að búa til snerti-
tölvu. Ekki liggur
þó fyrir hvort
ný lestölva hafi
upp á sl íkt
a ð bj ó ð a ,
a ð s ö g n
Bloom-
berg.
- jab
Amazon
spýtir í lófana
KINDLE-TÖLVAN
Lestölvur hafa notið
mikilla vinsælda
vestanhafs og
nota sumir þær
frekar en bækur
á pappír.
IPHONE-SÍMI Reiknað er með að vænt-
anleg kynslóð iPhone-síma verði nokkrum
skrefum framar en þær sem nú eru á
markaðnum. MARKAÐURINN/AFP
Ert þú með skýra mynd af
þínum viðskiptavinum?
Þegar þú tekur ákvörðun um greiðslukjör
viðskiptavinar, gjaldfresti, úttektir og
upphæð viðskiptareiknings grundvallast
hún alltaf á lánstrausti. Við bjóðum
þér aðgang að traustum upplýsingum
um íslensk og erlend fyrirtæki sem
hjálpa þér að taka ábyrgar og farsælar
ákvarðanir í viðskiptum hvort sem þú
þekkir viðkomandi aðila eða þarft að
kynnast honum betur.
TRYGGÐU ÞÉR TRAUSTAR UPPLÝSINGAR
UM STÖÐU VIÐSKIPTAVINA ÞINNA
Höfðabakka 9
110 Reykjavík
Sími: 550 9600
Fax: 550 9601
www.creditinfo.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
16
5
3
5.000 umslög af heppilegri stærð.
UMHVERFISVOTTUÐ
PRENTSMIÐJA
2.000 bæklingar með
afar djúpum pælingum.
Oddi – umhverfisvottuð prentsmiðja. Höfðabakka 7, 110 Reykjavík, sími 515 5000, www.oddi.is