Fréttablaðið - 08.06.2010, Qupperneq 9
ÞRIÐJUDAGUR 8. júní 2010 9
Vodafone Firma
Sniðið að þörfum verktaka
Fjölmargir verktakar og aðrir þeir sem þurfa
sveigjanleika í sínum fjarskiptamálum treysta
Vodafone fyrir sínum viðskiptum. Þeir sjá hag í að
flytja sín viðskipti til okkar, fá lausnir sniðnar að
sínum þörfum og hagræða þannig í rekstri.
Við vitum að þarfir viðskiptavina okkar eru
misjafnar og við leggjum metnað okkar í að koma
til móts við þær.
Hafðu samband við söluráðgjafa í síma 599 9500
og við finnum leið sem hentar þínu fyrirtæki.
STJÓRNMÁL Samið hefur verið um myndun nýs
meirihluta á Akranesi. Samfylkingin, Fram-
sóknarflokkur og óháðir og Vinstri grænir
skrifuðu undir stefnuyfirlýsingu þess efnis í
gær.
Nýr meirihluti ætlar fyrst og fremst að taka
fjármál bæjarins til gagngerrar endurskoð-
unar, að því er segir í fréttatilkynningu sem
flokkarnir sendu frá sér.
„Markmið meirihlutans er að skila til baka
þeim niðurskurði sem hefur orðið í grunnþjón-
ustunni í bænum. Það verður að gera með því
að fara vandlega yfir allar fjármálaskuldbind-
ingar, fara yfir rekstur bæjarins, tekjumögu-
leika hans og alla þá þætti er lúta að almennri
fjármálastjórn,“ sagði Sveinn Kristinsson, odd-
viti Samfylkingarinnar á Akranesi, í samtali
við Fréttablaðið.
Aðspurður hvort fyrirheit flokkanna um
endurskoðun á fjármálum bæjarins feli í sér
vísun í niðurskurð á komandi kjörtímabili svar-
aði Sveinn að slíkt stæði ekki til.
Auglýst verður eftir bæjarstjóra en að sögn
Sveins var algjör samstaða um það meðal
flokkanna. Hann bætti því svo við að nær engir
ásteytingarsteinar hefðu komið upp í viðræðun-
um sem hefðu gengið vel. - mþl
Samið um samstarf Samfylkingar, Framsóknarflokks og Vinstri grænna:
Nýr meirihluti myndaður á Akranesi
FRÁ AKRANESI Nýr meirihluti hefur verið
myndaður á Akranesi. Fjármál bæjarins verða
tekin til gagngerrar endurskoðunar.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
RYKGRÍMUR Í AFGREIÐSLUNNI Vegna
öskufalls er farið að selja rykgrímur í
bókabúðum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
UMHVERFISMÁL Rykgrímur hafa
verið til sölu í Eymundsson bóka-
verslunum síðan á föstudag þegar
mikil aska var í lofti í Reykja-
vík. Að sögn Theresu O‘Bri-
en hjá Eymundsson í Austur-
stræti var verið að bregðast við
ástandinu og því að ekki er hægt
að fá rykgrímur víða í miðbæn-
um þar sem ferðamenn eru helst
á ferli. Nokkrar grímur höfðu
selst þegar Fréttablaðið kann-
aði málið. Rykgrímur eru einnig
seldar í apótekum og bygging-
arvöruverslunum svo dæmi séu
tekin. Í Byko var rífandi sala í
grímunum bæði á föstudag og
laugardag samkvæmt upplýsing-
um frá versluninni. - sbt
Brugðist við ösku í Reykjavík:
Rykgrímur í
bókabúðum
ÖRYGGISMÁL Samvinnuverkefninu
safetravel er ætlað að stórefla for-
varnir fyrir ferðfólk hér á landi.
Því hefur verið opnuð heimasíðan
safetravel.is þar sem upplýsingar
frá fjölda samtaka og opinberra
aðila er safnað á einn stað. Fjöl-
miðlafyrirtækið 365 er einn sam-
starfsaðila verkefnisins.
Á síðunni eru aðgengilegar upp-
lýsingar um akstur, gönguferðir,
siglingar, köfun, sund, jöklaferð-
ir, vélsleðaferðir, hellaferðir, hjól-
reiðar, skyndihjálp, hestaferðir,
svo eitthvað sé nefnt. - shá
Heimasíðan Safetravel.is:
Samvinna um
öryggi ferðafólks
EFNAHAGSMÁL Regluleg laun voru
að meðaltali 1,0 prósenti hærri á
fyrsta ársfjórðungi ársins 2010
en ársfjórðunginn á undan, sam-
kvæmt nýjum tölum frá Hagstof-
unni.
Laun á almennum vinnumark-
aði hækkuðu um 1,3 prósent
að meðaltali en laun opinberra
starfsmanna um 0,3 prósent.
Á ársgrundvelli hafa laun því
hækkað um 3,5 prósent að meðal-
tali. Þau hafa hækkað um 4,4 pró-
sent á almennum vinnumarkaði
að meðaltali og 1,4 prósent hjá
opinberum starfsmönnum. - mþl
Nýjar tölur frá Hagstofunni:
Launavísitala
hækkað um 1%
SAMGÖNGUR Isavia hlaut í gær
verðlaun frá IATA, alþjóðasam-
tökum flugfélaga, fyrir mestu
framfarir í flugumferðarþjón-
ustu. Fimm aðilar í alþjóðlegri
flugleiðaþjónustu og flugvallar-
rekstri hlutu viðurkenningu en
hún er veitt fyrir framúrskarandi
frammistöðu á síðasta ári, að því
er segir í fréttatilkynningu frá
Isavia.
Viðurkenningin sem Isavia
hlaut nefnist Eagle Award og var
veitt á ársfundi IATA í Berlín.
Isavia bar áður nafnið Flugstoðir
og sér um rekstur allra flugvalla
landsins að Keflavíkurflugvelli
undanskildum. - mþl
Verðlaun fyrir framfarir:
Isavia hlýtur
verðlaun