Fréttablaðið - 08.06.2010, Page 18
FLUGUHNÝTINGAR er iðja sem margir veiðiáhugamenn hafa
gaman af. Fluguhnýtinganámskeið eru haldin reglulega og verkæri og
efni til fluguhnýtinga má til dæmis fá í Veiðihorninu.
„Veiðin í sumar verður vonandi
góð. Ég er dálítið hræddur við við-
varandi hita, vatnsleysi og mögu-
lega öskumengun þannig að ég
hef ákveðið að stilla vænting-
um mínum í hóf, en ég mun hafa
gaman af þessu. Veiðin gengur
mikið út á góðan félagsskap og úti-
veru, að veiða vel er bara bónus,“
segir Arnar Knútsson, stangveiði-
maður og eigandi kvikmyndafyrir-
tækisins Filmus, um veiðisumarið
fram undan.
Arnar hefur veitt á stöng síðan
hann var ungur drengur og alla tíð
þótt veiðimennska spennandi. Hann
kýs fallvötn fram yfir stöðuvötn og
frá árinu 1995 hefur hann eingöngu
veitt á flugu, bæði silung og lax.
„Með flugunni opnaðist fyrir mér
nýr heimur og ég hef verið forfall-
inn stangveiðimaður síðan,“ segir
hann.
Veiðidagskrá Arnars í sumar er
eitthvað á þá leið að hann hyggst
renna fyrir silungi í Brunná í Öxar-
firði hjá frændfólki sínu á Ærlæk
og urriða í Laxá í Mývatnssveit, auk
stuttrar ferðar á Arnarvatnsheiði.
Þá fer hann tvisvar í Miðfjarðará,
fyrst í byrjun júlí og aftur um miðj-
an ágúst.
Hann segir Miðfjarðará orðna
eina af sínum eftirlætis ám, sér-
staklega vegna fjölbreytninnar sem
hún hefur upp á að bjóða. „Áin sam-
anstendur af þremur ám sem hver
um sig hefur eigin karakter,“ segir
Arnar. „Það má segja að maður nái
allri flórunni í laxveiði þarna. Auk
þess er Miðfjarðará ein af fáum
„hreinum“ laxveiðiám landsins.
Þarna eru ekki stundaðar slepp-
ingar eða seiðaeldi, náttúran fær
algerlega að ráða þessu og vil ég
þakka afskiptaleysi mannsins góðu
ástandi á lífríkinu í ánni. Ég sleppi
megninu af öllum fiski sem ég veiði
en passa þó að taka eitthvað í soðið,
og því má segja að ég stundi hóf-
lega veiði. En ég sleppi öllum stór-
laxi, undantekningalaust.“
Arnar vill svo koma þeim skila-
boðum til Besta flokksins að hann
sé reiðubúinn að taka að sér emb-
ætti Borgarveiðimanns Reykjavík-
ur. „Ég myndi þá opna Elliðaárnar
með borgarstjóra og ég er tilbúinn
til að bæta samskipti við vinabæi
Reykjavíkur með því að ferðast um
og veiða víðs vegar um veröldina.
Í sumar myndi ég til dæmis bæta
samskiptin við Nanortalik og Nar-
sarsuaq á Grænlandi með bleikju-
veiði, það má eflaust rækta lax-
veiðisambandið við ýmsa vinabæi
í Skotlandi, Noregi, Alaska og Rúss-
landi,“ segir hann.
kjartan@frettabladid.is
Stillir væntingum í hóf
Stangveiðimaðurinn Arnar Knútsson vonast eftir góðri veiði í sumar en óttast þó hita, vatnsleysi og
öskumengun. Hann ætlar tvisvar í Miðfjarðará og er til í að taka að sér embætti Borgarveiðimanns.
Veiðistangir eru meðal mikilvægustu verkfæra stangveiðimanna. Arnar eyðir drjúgum hluta frítíma síns í að skoða og meta slíkar.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Alls voru dregnir 22 laxar á land
og allnokkrir sem slitu eða losn-
aði úr á opnunardegi Blöndu á
laugardaginn. Sá stærsti var 90
sentimetra langur.
Á vefsíðunni lax-a.is kemur fram
að þótt Blanda sé vön að skila slatta
af löxum á opnunardegi megi þessi
afli teljast óvenju góður. Þá telja
vefsíðuhaldarar að þessar fyrstu
vísbendingar bendi eindregið til
góðs stórlaxasumars í kjölfar hins
mikla smálaxasumars í fyrra.
Eitthvað ku enn vera til af júní-
leyfum í Blöndu 1 en þeim fer
fækkandi. - kg
Byrjar vel í Blöndu
Vel veiddist í Blöndu á opnunardaginn.
Góðar fréttir
Ný sérhæfð
fluguveiðiverslun
á Kambsvegi 33
Bendum einnig á heimasíðu okkar
Flugulínur, hjól,
flugustangir,
veiðiföt ofl.
Sérhæfð ráðgjöf
og þjónusta.
Hjá okkur finnur þú eitt mesta úrval
landsins af bestu fáanlegum laxa og
silungaflugum. Veiðimenn þekkja gæði!
fyrir veiðimenn og konur!
Kambsvegi 33 ~ 104 Reykjavík
hilmar@veidiflugur.is ~ S: 568 2127
Vatnshelt fl ugubox fylgir í júní og júlí.
Nóatúni 17 • S. 534 3177 • www.icefi n.is
Charon fl uguveiðissett frá
A Jensen. Stöng, hjól, fl ot og
sökklína einnig níðsterkur
Cordura hólkur
Verð 39.500 kr.
Jóna María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is
sími 512 5473
Henný Árnadóttir
henny@365.is
sími 512 5427
Þórdís Hermannsdóttir
thordish@365.is
sími 512 5447
Fimmtudaga
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
Hér heldur Arnar á „tuttugu-pundara úr
Laxá í Aðaldal“.