Fréttablaðið - 11.06.2010, Side 26
11. JÚNÍ 2010 FÖSTUDAGUR2 ● hm blaðið
ARNAR BJÖRNSSON spáir Brasilíu sigri í HM og
að stjörnur keppninnar verði Lionel Messi og Wayne
Rooney. Hann spáir þó hvorugum þeirra í úrslitaleikinn en
telur að Spánverjinn Xavi verði valinn bestur þó að Brasilía
muni vinna leikinn gegn Spánverjum.
Arnar Björnsson, Hörður Magnússon, Guðjón Guðmundsson og Guð-
mundur Benediktsson mynda teymi sparklýsenda á HM á Stöð 2 Sport.
Þeir hafa samtals 59 ára reynslu af lýsingu boltaleikja fyrir ljósvaka-
miðla. Arnar hefur lengstu reynsluna, 25 ár, en Guðmundur er hálfgerð-
ur nýliði í hópnum, með sex ára reynslu að baki.
Við báðum þá um að spá fyrir um hverjir verði heimsmeistarar og
hver verði stjarna keppninnar.
Landslið sparklýsenda
● LEIKIR Í BEINNI ÚTSENDINGU OG ALLIR LEIKIR SÝNDIR
Stöð 2 Sport 2 sýnir 18 leiki af 64 í beinni útsendingu. Hinir 46 leikirnir verða
einnig sýndir á Stöð 2 Sport 2 með bestu þulum okkar. Þeir verða sýndir á
öllum hliðarrásum stöðvarinnar, allan sólarhringinn. HM 442 verður síðan á
dagskrá kl. 21 alla leikdagana á Stöð 2 Sport 2, þar sem Logi Bergmann og
Ragna Lóa fjalla um allt sem við kemur HM.
Í tilefni af HM 2010 ætlar Júlíus
Fjeldsted að bjóða heim í
grillveislu.
„Við erum nokkrir gamlir skóla-
félagar sem höfum haft fyrir sið að
slá upp veislu í kringum stórmót í
knattspyrnu. Það vill svo skemmti-
lega til að mitt lið, Frakkland, spilar
á móti Úrúgvæ um kvöldið en einn
úr hópnum heldur með Úrúgvæ. Ég
hef reyndar trú á að Hollendingar
fari langt þar sem þeir eru á hálf-
gerðum heimavelli sínum.“
Júlíus hefur haldið með Frakk-
landi frá því á HM 1982 þegar Plat-
ini, Giresse og Tigana léku listir.
„Frakkar hafa alltaf spilað heillandi
knattspyrnu. Þeir eru til dæmis ein
fárra þjóða sem hafa tak á Brasil-
íumönnum. Leikurinn árið 1986 var
til dæmis ógleymanlegur sem og úr-
slitaleikurinn 1998. Svo eru Frakkar
bara mjög kúltíverað og flott fólk.“
Þrátt fyrir Frakklandsáhugann
verður samt ekki boðið upp á anda-
lifur og grillaðar froskalappir. Júlí-
us ætlar að grilla humar í forrétt
og hafa hrefnusteik á teini í aðal-
rétt. „Ég var að spá í „surf-and-
turf“-máltíð, en það er kannski full
langsótt að segja að hvalir hafi eitt
sinn gengið á landi! Svo hafa félag-
arnir leyfi til þess að fá að henda
einhverju öðru á grillið sjálfir.“
Það er mikil stemning á heim-
ilinu þegar stórmót í knattspyrnu
eru annars vegar. „Þegar ég bjó
í lítilli kjallaraíbúð í miðbænum
fyrir nokkrum árum datt mér í
hug að fara með sjónvarpið út í
garð til að horfa á leik. Ég stillti
allt í botn og bjóst kannski við að
nágrannarnir kæmu út brjálaðar.
Þess í stað mættu þeir á svæðið og
horfðu á leikinn með mér í glamp-
andi sól og stemningu. Og það var
að sjálfsögðu kveikt á grillinu.“
HM-veisla í Mávahlíðinni
Júlíus Fjeldsted ætlar að grila með félögunum í kvöld þegar Frakkland etur kappi við Úrúgvæ. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Matseðillinn í HM partýinu
Forréttur: Humar penslaður með smjöri, kreistum hvítlaukssafa og stein-
selju dreift yfir.
Aðalréttur: Hrefnusteik skorin í ræmur, vafin á tein og pipruð.
Meðlæti: Saxaðar, sætar kartöflur, sveppir, paprika, rauðlaukur og pipar-
ostur. Sett í álpappír og hrist reglulega yfir grillinu.
Vín: Chablis, Les Deux Rives 2007 með humrinum.
Bjór með steikinni.
Perdomo-vindill með sigrinum.
● VUVUZELA er nafn á hljóðfæri úr plasti, sem er sambland af loft-
flautu og trompeti. Vuvuzelur urðu mjög vinsælar í Suður-Afríku upp úr
1990 og eru ríkjandi á íþróttaviðburðum þar. Hávaðinn getur orðið ær-
andi þegar þúsundir manna blása í flauturnar samtímis og margir hafa
gert athugasemdir við notkun þeirra á HM. Sérstaklega eru lætin mikil
síðasta stundarfjórðung leikjanna þegar áhangendur blása nánast sam-
fellt af öllum kröftum til að setja gestaliðið út af laginu í lok leiksins. Það
er þó löngu ljóst að stemningin á leikvöngum Suður-Afríku yrði ekki sú
sama án þessara hljóðfæra og þegar hafa hundruð þúsunda vuvuzela í
litum allra liða selst fyrir keppnina.
HÖRÐUR MAGNÚSSON spáir því að titillinn endi
í höndum Spánverja og að Xavi verði valinn maður
mótsins.
GUÐJÓN GUÐMUNDSSON spáir því að Þjóðverjar
vinni úrslitaleik við Englendinga 3-1 og verði heims-
meistarar, en Wayne Rooney verði maður mótsins.
GUÐMUNDUR BENEDIKTSSON spáir Argentínu
sigri og að stjarna keppninnar verði þjálfari Argent-
ínu, Diego Maradona, og hann muni ekki eiga í vandræðum
með að skyggja á stjörnur keppninnar inni á völlunum.
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 l Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Einar Skúlason esk@365.is