Fréttablaðið - 24.06.2010, Blaðsíða 23
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
HÖNNUN Á JÓNSMESSU Íslenskir hönnuðir sem reka verslanir
við Laugaveg, Skólavörðustíg og nærliggjandi götur hafa ákveðið að fagna
Jónsmessu og hafa af því tilefni opið lengur í dag, eða til níu.
„Ég fíla mig ekki í gallabuxum og
bol. Mér finnst gaman að vera kven-
leg og geng mikið í kjólum,“ segir
Hulda Hlín Magnúsdóttir, listmál-
ari og listfræðingur. Hulda segir
fatastíl sinn hafa mótast á námsár-
unum á Ítalíu þar sem hún bjó í sjö
ár og stundaði myndlistarnám.
„Námið var þannig upp byggt að
ég gat flutt milli borga. Ég lærði því
í eitt ár í Bologna, eitt í Feneyjum,
eitt í Flórens og svo útskrifaðist
ég frá Róm í málaralist og tók svo
master í listfræði, aftur í Bologna.
Það var frábært að kynnast öllum
þessum listaborgum og auðvit-
að mótaðist fatastíllinn mikið. Á
Ítalíu er fólk meðvitað um klæðn-
að og þar er líka mikil skómenning
og ég keypti mikið af skóm á þess-
um tíma,“ segir Hulda en hún held-
ur sérstaklega upp á svarta, háhæl-
aða skó frá Steve Madden.
„Þeir eru einstaklega vel byggð-
ir, svo maður finnur ekki fyrir því
hvað þeir eru háir.“
Hulda klæðir sig mikið í svart
og lífgar upp á með litríkum fylgi-
hlutum.
Hún er þó hrifin af litum og lita-
fræði en sýning á olíumálverkum
af íslenskum fjöllum sem Hulda
vann á námsárunum stendur nú
yfir í Turninum í Kópavogi.
Verkin má sjá á heimasíðunni
www.huldahlin.com og á laugar-
daginn klukkan 13 segir Hulda frá
verkum sínum í listamannaspjalli.
heida@frettabladid.is
Undir ítölskum áhrifum
Hulda Hlín Magnúsdóttir, listmálari og listfræðingur, stundaði nám í öllum helstu listaborgum Ítalíu.
Hún segir fatastíl sinn hafa mótast þar enda Ítalir meðvitaðir um klæðaburð og fínir í tauinu.
Hulda Hlín Magnúsdóttir listmálari
bjó í mörg ár á Ítalíu og segir það
hafa mótað kvenlegan fatastíl sinn.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
F Á K A F E N I 9 - - S í m i : 5 5 3 7 0 6 0
O p i ð m á n u d - f ö s t u d . 1 1 - 1 8 & l a u g a r d . 1 1 - 1 6
www.gabor.is
Sérverslun með
SUMAR ÚTSALA
Gerið gæða- og verðsamanburð
20-50%
AFSLÁTTUR
Lök, hlífðardýnur, sængurverasett,
heilsukoddar, viðhaldskoddar,
íslenskir PU leðurgaflar,
náttborð, útlitsgallaðar dýnur
og fleira.
6 mán
aða
vaxtal
ausar
greiðs
lur
SAGA Queen rúm, nú aðeins 129.900
ÞÓR Queen rúm, nú aðeins 149.900
Ný se
nding SAGA OG ÞÓR
Hágæða heilsudýnur
VALHÖLL/FREYJA
Góð rúm á frábæru verði
Ný sending
Queen rúm, nú aðeins kr. 99.900Queen rúm nú aðeins kr. 179.900