Fréttablaðið - 15.07.2010, Side 18
18 15. júlí 2010 FIMMTUDAGUR
FRÁ DEGI TIL DAGS
greinar@frettabladid.is
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is
HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is
ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
HALLDÓR
Hannes Pétursson, rithöfundur, skrifaði nýlega grein í Fréttablaðið. Þótt grein-
in sé vel skrifuð byggir hún að mínu mati á
rökleysum. Hugsun Hannesar virðist vera
sú að margir vinstri sinnar og hægri sinn-
ar hafi sameinast í andstöðu við aðild að
Evrópusambandinu á forsendum sem séu í
senn „kómískar“ og „fyrirlitlegar“ og vitn-
ar hann í ummæli Árna Pálssonar frá 1926
um „reigingslegan þjóðarmetnað“ sem
endurspegli ágætlega hið nýja „blágræna“
bandalag hægri og vinstri manna í Evrópu-
málum. Minnir Hannes á svikabrigslatal
frá því við undirgengumst regluverk hins
Evrópska efnahagssvæðis 1994. Og hann
bætir því við að nú tengi enginn lengur
EES við svikráð. Inn í þennan málatilbúnað
fléttar Hannes svo hrun nýfrjálshyggjunn-
ar og vísar þar sérstaklega í Davíð Odds-
son, sem hann kallar fallinn „Móses Sjálf-
stæðisflokksins“. Grein sína botnar skáldið
með því að horfa á eftir Lilju Mósesdóttur
og þessum meinta Móses þeirra Sjálfstæð-
ismanna ganga „hönd í hönd inn í hamingj-
unnar lönd“ í nýju blágrænu bandalagi!
Í tilefni þessara skrifa langar mig til að
víkja að nokkrum atriðum. Ég er þeirr-
ar skoðunar að EES aðildin á sínum tíma
hafi ekki verið í samræmi við stjórnarskrá
Íslands og því tal um svik við hana ekki út
í hött. Ég er einnig enn þeirrar skoðunar að
hyggilegra hefði verið að fara svissnesku
leiðina með tvíhliða samningum við Evr-
ópusambandið í stað þess að undirgangast
allt regluverk sambandsins með aðildinni
að hinu Evrópska efnahagssvæði eins og
við gerðum. Hvers vegna? Vegna „reig-
ingslegs þjóðarmetnaðar“? Nei, vegna þess
að málið snerist þá – og gerir enn – ekki
um reiging og mont heldur um lýðræði.
Hvort við sem samfélag viljum fá því ráðið
hvernig við skipuleggjum okkur, orkubú-
skapinn, landbúnaðinn, velferðarkerfið eða
hvort það skuli gert samkvæmt tilskipun-
um frá Brussel. Þetta er ég reiðubúinn að
taka ítarlega umræðu um – og hef reyndar
oft gert. Aldrei hefur verið brýnna en ein-
mitt nú að efna til markvissrar umræðu
um handfasta hluti í stað þess að blanda í
einn kokteil alls óskyldum málum í óljósu
líkingatali einsog sá mæti maður Hannes
Pétursson óneitanlega gerir í grein sinni.
Það má vel vera að Davíð Oddsson og
Lilja Mósesdóttir deili ýmsum skoðunum,
einsog þeirri að hafa efasemdir um aðild
Íslands að Evrópusambandinu. En að gera
þau að pólitísku kærustupari til framtíðar
ber ekki vott um skarpa greiningu á þeim
hræringum sem nú eiga sér stað í íslensk-
um stjórnmálum.
ESB og lýðræðið
Evrópumál
Ögmundur
Jónasson
alþingismaður
Viðarhöfða 6 – Reykjavík / Bæjarhrauni 12 – Hafnarfirði
www.sindri.is / sími 575 0000
Verslanir
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
01
49
3
69.900
Verð með vsk.
18 V höggborvél
DC988KL
Öflug 18 V borvél m. höggi
3ja gíra, 0-450/1450/2000
Átak 52 Nm.
2x2,0 Ah Li-Ion rafhlöður
40 mín. hleðslutæki
Taska fylgir
Að fordæmi Kleópötru
Hjónin Jón Ásgeir Jóhannesson og
Ingibjörg Pálmadóttir þiggja bæði
ráðgjafalaun frá 365 miðlum, sem
gefa meðal annars út Fréttablaðið.
Laun Jóns Ásgeirs nema
á áttunda hundrað
þúsund krónum á
mánuði en forstjóri
fyrirtækisins vill
í samtali við
DV í gær ekki
gefa upp laun
Ingibjargar, sem
jafnframt er
stjórnarfor-
maður fyr-
irtækisins
og á launum sem slíkur. Einhverjum
kemur þessi staða spánskt fyrir sjónir,
en það er hins vegar ekkert nýtt að
forvígismenn fyrirtækja skreyti sig
ráðgjafatitlinum. Þannig upplýsti
Kleópatra Kristbjörg, forstjóri Gunn-
ars majóness, í nýlegu viðtali við Vik-
una að í starfi hennar hjá fyrirtækinu
fælist fyrst og fremst ráðgjöf.
Að veðja á réttan hest
Runólfur Ágústsson, fyrrverandi
rektor á Bifröst, er meðal umsækj-
enda um stöðu umboðsmanns
skuldara. Runólfur er kjörinn í starfið,
enda með reynslu af því að semja
um skuldir annarra og jafnvel fella
þær niður. Frægt var þegar hann
var rektor á Bifröst og veðjaði við
nemanda um hvort ný skólabygging
yrði komin í gagnið á tilteknum tíma.
Að veði voru skólagjöldin – þau yrðu
annaðhvort felld niður eða tvöfölduð.
Nemandinn vann og gekk mennta-
veginn frítt þann vetur.
Kannski virka svona
meðul á lánar-
drottna: skuldari
borgar tvöfalt ef nýtt
hátæknisjúkrahús rís á
réttum tíma
– ellegar
fellur skuld-
in niður.
stigur@
frettabladid.
Ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Vinstrihreyfingarinnar
– græns framboðs er mynduð um að tryggja efnahagslegan
og félagslegan stöðugleika og leita þjóðarsamstöðu um leið
Íslands til endurreisnar – nýjan stöðugleikasáttmála.“
Samstarfsyfirlýsing ríkisstjórnarinnar frá vori 2009.
R
íkisstjórnin sem nú starfar er um margt ólík fyrri
ríkisstjórnum Íslands. Af ýmsu er að taka en það sem
einkum greinir ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur frá
öðrum stjórnum er að hún sem heild hefur ekki sér-
staka stefnu. Sú staðreynd þarf svo sem ekki að koma
á óvart því það hefur blasað við frá því að hún tók við völdum.
Þá kynnti hún til sögunnar yfirlýsingu, sambærilega að formi
þeim sem fyrri ríkisstjórnir hafa kynnt við upphaf starfstíma
síns. Fram að því höfðu slíkar
yfirlýsingar heitið stefnuyfir-
lýsingar og stjórnirnar einsettu
sér að vinna eftir þeim en nú
bar svo við að yfirlýsingin hét
samstarfsyfirlýsing. Vissulega
má hrósa ríkisstjórninni fyrir
hreinskilnina en á móti verður
að spyrja hvort ekki hefði verið
nær að Samfylkingin og VG hefðu við stjórnarmyndunina tekið
afstöðu til helstu mála, mótað sér stefnu í þeim og unnið eftir
henni. Því hefðu óneitanlega fylgt talsverð þægindi fyrir samfé-
lagið allt auk þess sem það hefði auðveldað ríkisstjórninni sjálfri
úrlausn margvíslegra verkefna.
Vitaskuld eru undantekningar frá þeirri reglu ríkisstjórnarinn-
ar að hafa ekki stefnu. Ein er til dæmis að stofna atvinnuvega-
ráðuneyti. Önnur er að stuðla að beinum erlendum fjárfestingum.
Þriðja er samstarf við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn.
Í ljósi þess að helstu pólitísku andstæðinga þessara stefnumála
ríkisstjórnarinnar er að finna í stjórninni sjálfri eða í nánasta
baklandi hennar má telja skynsamlegt að skýru stefnumálin séu
ekki fleiri. Færa má rök fyrir því að ein ríkisstjórn þoli ekki
nema ákveðinn skammt af stjórnarandstöðu úr eigin röðum.
Einn þeirra málaflokka sem ríkisstjórnin hefur ekki stefnu
í eru skattamál. Er það býsna mikilvægur málaflokkur. En þar
með er ekki sagt að ríkisstjórnin aðhafist ekki neitt í skattamál-
um. Eftir að hafa ráðist í viðamiklar breytingar á skattkerfinu
á síðasta ári bað hún Alþjóðagjaldeyrissjóðinn að skrifa fyrir
sig skýrslu um skatta og setti um leið á fót starfshóp embættis-
manna til að leggja fram tillögur að breytingum á skattkerfinu.
Hugsanlegt er að ríkisstjórnin ætli í framhaldinu að marka sér
skattastefnu. Verður fróðlegt að sjá hve margir ráðherrar ríkis-
stjórnarinnar munu styðja þá stefnu.
Eins og sakir standa er ríkisstjórnin eyland. Við slíkar aðstæð-
ur er ógjörningur að markmið um „efnahagslegan og félagslegan
stöðugleika“ og „þjóðarsamtöðu um leið Íslands til endurreisnar“
náist. Til að svo megi verða þurfa forystumenn stjórnarflokkanna
að herða tökin á stjórn landsins og umfram allt að stika sér leið
að markmiðinu.
Skýr stefna í mikilvægum málum óskast:
Samstarf án stefnu
SKOÐUN
Björn Þór
Sigbjörnsson
bjorn@frettabladid.is