Fréttablaðið - 15.07.2010, Side 46
30 15. júlí 2010 FIMMTUDAGUR
tonlist@frettabladid.is
TÓNNINN GEFINN
Trausti Júlíusson
> PLATA VIKUNNAR
Hvanndalsbræður - Hvann-
dalsbræður
★★★
„Gleðin ræður enn ríkjum hjá
Hvanndalsbræðrum.“ - tj
EINN Á FERÐ Brandon Flowers sendir frá sér fyrstu sólóplötu sína í september.
Það eru komin sjö ár síðan Atlanta-dúóið OutKast sendi síðast frá sér
plötu, ef við undanskiljum kvikmyndatónlistarplötuna Idlewild sem
kom út 2006. Þeir André Benjamin (André 3000) og Antwan Patton
(Big Boi) eru að sögn farnir að huga að nýrri plötu þó að enn sé alls
óvíst hvenær hún muni líta dagsins ljós. Það er gleðiefni þar sem Out-
Kast náði á sama tíma
að vera framsækin og
hugmyndarík og senda
frá sér smelli sem náðu
til fjöldans.
En OutKast aðdáend-
ur hafa aðra ástæðu
til að gleðjast þessa
dagana þar sem annar
helmingur dúósins,
Big Boi, var að senda
frá sér fyrstu sóló-
plötu sína. Hún heitir
Sir Lucious Left Foot:
The Son of Chico Dusty og er búin að vera í smíðum síðan 2007. André
hefur alltaf verið talinn mikilvægari og hæfileikaríkari helmingur
OutKast, en Big Boi sýnir það og sannar á nýju plötunni að hann gefur
félaga sínum lítið eftir. Platan er frekar létt og skemmtileg, en líka
tónlistarlega fersk og fjölbreytt. Og Big Boi á stórleik sem rappari.
Á plötunni er fullt af gestaröddum, en þó ekki rödd André 3000.
Plötufyrirtæki OutKast, LaFace, sagði þvert nei við því að rödd hans
fengi að heyrast á plötunni sem Def Jam gefur út. Þarna eru m.a. T.I.,
Sleepy Brown, Jamie Foxx, B.o.B., Too Short og fönkfaðirinn sjálf-
ur, George Clinton. Nafnið á plötunni hljómar eins og þetta gæti verið
þemaplata sem segði sögu Luciousar Left Foot, en svo er þó ekki. Luc-
ious er einfaldlega Big Boi sjálfur og Chico Dusty er faðir hans, en
hann lést um það leyti sem Big Boi hóf vinnu við plötuna.
Góðar fréttir fyrir
OutKast-aðdáendur
Brandon Flowers tilkynnti
um útgáfu sólóplötu sinnar
á vefsíðu The Killers. Þýðir
það að hann sé að taka
við af hljómsveitinni? Er
The Killers hætt? Örugg-
lega ekki, en miklu púðri
hefur engu síður verið varið
í sólóplötu Flowers sem
kemur út í september.
Síðasta ár var stórt hjá Brandon
Flowers og félögum í The Killers.
Hljómsveitin fylgdi eftir plötunni
Day & Age sem kom út seint árið
2008 og festi sig í sessi sem ein af
stærstu rokkhljómsveitum heims.
Ekki virtist þó allt með felldu því
orðrómur um endalok hljómsveit-
arinnar var lífseigur og einnig sú
staðreynd að Flowers, söngvari The
Killers og aðaltalsmaður, byrjaði að
vinna að lögum á fyrstu sólóplötu
sína. Hún hefur hlotið nafnið Fla-
mingo og kemur út í september.
Í sumar sendi Flowers frá sér
fyrsta lagið af sólóplötunni, popp-
slagarann The Crossfire. Lagið og
hljómur þess svipar til þess sem
The Killers gerði á síðustu plötu.
Bassaleikurinn er léttleikandi
og hljómborð eru áberandi. Þá er
viðlagið afar dramatískt. Allt eru
þetta sömu fingraför og Flowers
hefur skilið eftir á lögum The Kill-
ers – eini munurinn er sá að nú er
hann einn í forgrunni.
Brandon Flowers hefur ekki
gefið upp hvaða hljóðfæraleikarar
spila undir með honum á plötunni
fyrir utan Ronnie Vannucci tromm-
ara The Killers. Leiða má líkur að
því að hann leiki sjálfur á bassa og
hljómborð, enda liðtækur á þeim
sviðum. Þessar vangaveltur gætu
alveg eins verið út í bláinn. Flowers
fékk með sér stór nöfn til að stýra
upptökum á plötunni, meðal ann-
ars þá Stuart Price, Daniel Lanois
og Brendan O’Brien. Price hefur
unnið með Madonnu og vann síð-
ustu plötu The Killers með hljóm-
sveitinni. Lanois hefur unnið með
Bob Dylan og U2 á meðan O‘Bri-
en hefur unnið með Pearl Jam og
Bruce Springsteen – sem Flowers
lítur upp til í sköpun sinni.
Mikið púður er lagt í markaðs-
setningu á sólóplötu Brandons
Flowers, en hann hefur ekki upplýst
hvort hann fylgi plötunni eftir með
tónleikaferðalagi. Sú staðreynd að
Flowers notaði vefsíðu The Kill-
ers til að tilkynna útgáfu sólóplöt-
unnar lét menn velta vöngum yfir
framtíð hljómsveitarinnar. Er The
Killers hætt og hann að taka við?
Flowers sló á þessar vangaveltur í
sumar þegar hann sagði félagana
vera byrjaða að spjalla um nýja
plötu og hvenær hún yrði tekin
upp. Það lítur því ekki út fyrir að
sólóplata söngvarans geri útaf við
hljómsveitina.
atlifannar@frettabladid.is
Verður sólóplata Brandons
Flowers banabiti Killers?
Plötur sem Radio-
head hefur gefið út
eftir að söngvarinn
Thom Yorke gaf út sóló-
plötu árið 2006.
1
Plötur sem Bítlarnir
gáfu út eftir að John
Lennon gaf út sóló-
plötuna Imagine árið 1971.
0
Plötur sem Take
That hefur gefið út
án Robbie Williams
eftir að hann yfirgaf hljóm-
sveitina árið 1995.
2
MIRI M.I.A
> Í SPILARANUM
K Tríó - Rekaviður
Miri - Okkar
Bombay Bicycle Club - Flaws
M.I.A. - Maya
Útgáfurisinn EMI hyggst gefa út endurnýjaða
útgáfu af plötunni Bona Drag með Morriss-
ey í lok september. Platan kom út árið 1990
og innihélt fyrstu smáskífulög og B-hliðar
söngvarans.
Morrissey hefur veitt útgáfunni blessun
sína og verður platan gefin út á geisladiski og
tvöföldum vínyl. Sex óútgefin lög frá níunda
áratugnum verða á plötunni og umslagið
verður betrumbætt.
Á meðal laga á plötunni eru
November Spawned a Monster,
Everyday Is Like Sunday, Yes,
I Am Blind og Suedehead.
Morrissey sendi síðast frá sér
nýtt efni í fyrra þegar hann gaf út
plötuna Years of Refusal. Hann er
nú ekki samningsbundinn útgáfu-
fyrirtæki og óvíst er hvenær plata
er væntanleg.
Bona Drag endurútgefin
NÝTT GAMALT Sex ný gömul lög verða á
endurútgáfu Bona Drag með Morrissey.
■ Crazy in Love er fyrsta lagið á fyrstu sólóplötu
Beyoncé Knowles.
■ Lagið fór á topp bandaríska Billboard-listans í
júlí árið 2003 og einnig á topp breska listans.
Þá komst lagið inn á topp tíu lista víða um
heim.
■ Lagið hefur fengið frábærar viðtökur hjá
tónlistarpressunni og er í þriðja sæti á lista
Rolling Stone yfir bestu lög síðasta áratugar.
Þá er lagið í fjórða sæti lista indíbiblíunnar
Pitchfork yfir 500 bestu lög áratugarins og í
fyrsta sæti á sams konar lista NME.
■ Rapperindi Jay-Z í laginu var tekið upp um
miðja nótt eftir að honum datt það í hug og
þróaði á tíu mínútum.
■ Beyoncé Knowles er lang farsælasta söng-
kona stúlknabandsins Destiny‘s Child – sem
er ein söluhæsta stúlknasveit allra tíma.
■ Hún gaf síðast út plötuna I Am ... Sasha
Fierce sem styrkti stöðu hennar sem ein
vinsælasta söngkona heims.
TÍMAVÉLIN SÓLÓFERILL BEYONCÉ FER Á FLUG
Crazy in Love á toppinn