Fréttablaðið - 07.08.2010, Side 36
HOLLUSTA
Enginn vafi leikur á því að ber
eru holl og uppfull af mikilvæg-
um næringarefnum. Í umræðunni
eru sum þeirra hins vegar tekin
út og sögð hollari en önnur og það
sama má reyndar segja um margar
aðrar fæðutegundir. Sem dæmi má
nefna bláber og goji-ber svokölluð
sem eru gjarnan sögð allra meina
bót. Bertha María Ársælsdóttir,
næringarfræðingur hjá Næring-
arsetrinu, segir sum ber vissulega
innihalda meira af vítamínum og
annarri hollustu en önnur en að
það sama eigi við um þau og annan
mat, að best sé að borða fjölbreytt
vegna þess að ólíkar fæðutegund-
ir bæti hver aðra upp. Í bláberjum
geti til dæmis verið efni sem ekki
eru í goji-berjum og öfugt.
„Í umræðunni er stundum lögð
ofuráhersla á eina tegund og þá á
fólk það til að sleppa öðrum. Þar
með fer það á mis við ýmis mik-
ilvæg næringarefni því engin ein
fæða inniheldur allt það sem lík-
aminn þarf.“ Bertha María segir
mikla sölumennsku einkenna
heilsuvörumarkaðinn. „Það er
eflaust afar gott fyrir fólk að
borða mikið af ákveðnum berjum
svo dæmi séu nefnd en það er ekki
hægt að kaupa sér heilsu með því
að borða ákveðna tegund í miklum
mæli. Engin ein fæðutegund hefur
þau áhrif en saman geta þær stuðl-
að að góðri heilsu. Ber eru þar á
meðal en þau eru full af andoxun-
arefnum sem hafa jákvæð áhrif
á líkamann og eiga þátt í því að
styrkja ónæmiskerfið.
Bertha María kveðst verja mikl-
um tíma í sínu starfi í að reyna að
fá fólk ofan af því að vera með
stækkunarglerið á matnum og
festa sig í smáatriðum. „Það ætti
frekar að horfa á fæðuhringinn
og borða fjölbreyttan mat. Fólk er
alltaf að fá nýjar upplýsingar um
skaðsemi eða gagnsemi ákveð-
inna fæðutegunda úr umhverfinu.
Sumum þykir flókið að feta rétta
braut en lausnin er einföld: Borða
fjölbreyttan mat og helst sem
minnst unninn enda haldast nær-
ingarefnin best ef fæðan kemur
beint af kúnni, ef svo má segja.
Nýtínd ber eru því ekkert nema
afbragðs fæða í bland við kjöt, fisk
og annan góðan mat.“
Samstarfskona Berthu Maríu
hjá Næringarsetrinu, Guðrún
Kristín Sigurgeirsdóttir, tekur
í sama streng og segir best að
fæðan sé sem næst upprunanum.
Hún ræður fólki meðal annars frá
því að nota safapressu í miklum
mæli, hvort sem það sé til að búa
til ávaxta-, grænmetis-, eða berja-
djús. „Við safagerðina tapast mik-
ilvægar trefjar og andoxunarefni
úr hýðinu og aldinkjötinu enda er
það síað frá. Boost er betri kostur
enda fara berin og ávextirnir ofan
í það í heilu lagi.“
vera@frettabladid.is
Fjölbreytni
er lykillinn
Hollusta berja er óumdeilanleg og mælir allt með því að fólk nýti
árstímann til tínslu. Engin ein fæðutegund er þó allra meina bót eins
og stundum er haldið á lofti heldur skiptir fjölbreytni mestu.
Í 100 g af þurrkuðum goji-berj-
um eru 29-148 mg af C-vítamíni,
9 mg af járni og 112 mg af kalki.
HEIMILD:WIKIPEDIA
Til gamans má bera saman nokkur næringarefni í ólíkum berjum. Í 100 grömmum af krækiberjum eru 10,7 mg af C-vítamíni,
2,3 mg af járni og 11 mg af kalki. HEIMILD:MATÍS
Í 100 g af bláberjum eru 38,2 mg C-vít-
amín, 0,69 mg járn og 15 mg kalk.
HEIMILD:MATÍS
Í 100 grömmum af rifsberjum eru 49 mg af
C-vítamíni, 0,79 mg járn og 35 mg kalk.
HEIMILD:MATÍS
Bertha segir stundum sé lögð áhersla á
ákveðnar fæðutegundir og að þá eigi fólk
það til að sneiða hjá öðrum. Hún er mót-
fallin því vegna þess að fæðutegundirnar
bæta hver aðra upp. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
VEITINGASTAÐURINN SPÍRAN opnaði í
Garðheimum í júní. Spíran er bistró á léttu línunni
þar sem meðal annars er boðið upp á heilsu-
samlega rétti og heimabakaðar hollustukökur.
Til að gera bakstur hollari má skipta út hvítu hveiti
og nota í staðinn spelt og heilhveiti. Einnig má nota
kaldpressaðar olíur í stað smjörs, eða
nota til helminga ávaxtamauk. Í stað
eins eggs má nota tvær eggjahvítur.
www.heilsubankinn.is
Við notum ekkert hvítt hveiti
og engan hvítan sykur.
Allar marineringar eru heimalagaðar
beint frá hjartanu og
eru án allra aukaefna.
Fit Pilates kennaranámskeið
28. og 29. ágúst í Reykjavík
www.fi tpilates.is • Smári s. 896 2300