Fréttablaðið - 19.08.2010, Qupperneq 10
10 19. ágúst 2010 FIMMTUDAGUR
Nóatúni 4 • Sími 520 3000
www.sminor.is
Sama á hverju gengur
– þú getur alltaf reitt þig á Siemens.
A
T
A
R
N
A
Þvottavél og þurrkari
frá Siemens.
Einstök gæði.
Góð þjónusta.
Láttu sjá þig og
gerðu góð kaup.
GROUP
ATVINNUMÁL „Við erum að svara
mikilli eftirspurn fyrirtækja í
hugverkaiðnaði eftir fólki. Þau
fáu atvinnuleyfi sem við gefum
út eru vegna starfa hjá hugbún-
aðarfyrirtækjum. Það er greini-
lega ekki fólk hér í störfin,“
segir Gissur Pétursson, forstjóri
Vinnumálastofnunar.
Stofnunin sendi í vikunni hópi
fólks á atvinnuleysisskrá á aldr-
inum 20 til 60 ára með menntun
umfram grunnskólapróf og hefur
verið á atvinnuleysisskrá í þrjá
mánuði eða lengur boð um að
hún bjóðist til að greiða skóla og
skráningargjöld atvinnulausra í
frumgreinanámi og í grunnnám
tækni- og raungreina á háskóla-
stigi í eitt ár frá og með næsta
hausti. Námið er lánshæft. Gert
er ráð fyrir að kostnaður Vinnu-
málastofnunar nemi 40 til 50
milljónum króna.
Atvinnuleysi mældist 7,5 pró-
GISSUR PÉTURSSON Kostnaður Vinnumálastofnunar vegna háskólanáms atvinnu-
lausra gæti numið allt að fimmtíu milljónum króna. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Vinnumálastofnun sendir hópi atvinnulausra bréf:
Greiða skólagjöld
fyrir atvinnulausa
Til hugverkageirans teljast störf á
borð við heilbrigðistækni, hönnun,
fata- og litiðnað, leikjaiðnað,
líftækni, orku- og umhverfistækni;
vinna við tónlist, kvikmyndir og
afþreyingaiðnað, vél- og rafeinda-
tækni fyrir matvælavinnslu ásamt
ýmsum öðrum tæknigreinum.
Hugverkageirinn
BERA HÖFUÐIÐ HÁTT Þær eru ekki
beint niðurlútar, þessar mörgæsir
sem voru að spóka sig í dýragarði í
Hannover í Þýskalandi nú í vikunni.
NORDICPHOTOS/AFP
DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur
ákært fjórar rúmlega tvítugar
konur fyrir líkamsárás á Akur-
eyri.
Samkvæmt ákæru átti atburð-
urinn sér stað á veitingastaðn-
um Kaffi Akureyri í ágúst á síð-
asta ári. Þrjár kvennanna sem
ákærðar eru réðust á þá fjórðu.
Ein þeirra kýldi hana í andlitið
og sparkaði jafnframt með hnénu
í andlit hennar. Hinar tvær rifu í
hár fórnarlambsins og slógu hana
nokkrum sinnum í andlit og lík-
ama.
Sú sem ráðist var á hlaut sjá-
anlega áverka. En hún er einnig
kærð fyrir stórfellda líkamsárás
þar sem hún sló eina af árásarkon-
unum þremur með glerglasi í höf-
uðið með þeim afleiðingum að sú
síðarnefnda fékk sár á hvirfil.
Konan sem hinar þrjár réð-
ust upphaflega á gerir kröfu um
bætur frá þeim að upphæð sam-
tals ríflega 600 þúsund krónur.
Þar af eru 300 þúsund í miska-
bætur.
Sú hinna þriggja, sem slegin
var með glasinu gerir kröfu um
bætur upp á 300 þúsund krónur úr
hendi þeirrar sem það gerði. Jafn-
framt krefst hún greiðslu vegna
lögmannsaðstoðar upp á tæplega
200 þúsund krónur. - jss
HÉRAÐSDÓMUR Málið er rekið fyrir
Héraðsdómi Norðurlands eystra.
Þrjár rúmlega tvítugar konur réðust á eina sem svaraði fyrir sig:
Fjórar ákærðar fyrir slagsmál
sent í júlí. Það jafngildir því að
tæplega 12.600 manns hafi verið
án atvinnu í mánuðinum. Helm-
ingur atvinnulausra var með
grunnskólapróf, tólf prósent með
stúdentspróf og sextán prósent
með háskólamenntun.
Gissur reiknar með að um 150
manns nýti sér boðið. „Ef áhug-
inn er meiri þá verðum við að
skoða það,“ bætir Gissur við.
- jab
HJÁLPARSTARF UNICEF á Íslandi
hefur tekið í notkun söfnunarsíma
til að afla fjár til stuðnings þeim
sem orðið hafa verst úti í flóðun-
um í Pakistan.
Að minnsta kosti 15 milljónir
manna hafi orðið illa úti í flóðun-
um í Pakistan, um helmingurinn
börn, að mati UNICEF.
Símanúmer hjálparsímanna eru
908 1000 fyrir 1.000 króna fram-
lag, 908 3000 fyrir 3.000 króna
framlag og 908 5000 fyrir 5.000
króna framlag. Einnig er tekið við
framlögum á unicef.is. - pg
Barnahjálp SÞ á Íslandi:
Söfnunarsími
fyrir Pakistan