Fréttablaðið - 19.08.2010, Side 21
FIMMTUDAGUR 19. ágúst 2010 21
Íslendingar notuðu 20. öldina til að ná Dönum í efnahags-
legu tilliti. Það tókst. Við upphaf
heimastjórnar 1904 var Ísland
hálfdrættingur á við Danmörku
mælt í kaupmætti þjóðartekna
á mann. Fyrir hrun 2008 virtist
Ísland standa jafnfætis Danmörku
og hafði gert um alllangt skeið.
Þessi samanburður hvílir á tölum
um þjóðartekjur og mannfjölda,
en hann segir ekki alla söguna.
Kaupmannahöfn var um aldamót-
in 1900 löngu orðin að háreistri
heimsborg, en Reykjavík var þá
lágreist þyrping og fátækleg, ef
frá eru talin fáein glæsileg hús,
sem Danir höfðu reist, svo sem
Dómkirkjan, Menntaskólinn og
Alþingishúsið.
Þjóðarauður Dana – bygging-
arnar, atvinnutækin, menntun
fólksins og fleira – var þá að ætla
má margfaldur á við þjóðarauð
Íslands miðað við mannfjölda,
en um þetta eru engar tölur til.
Menn þurfa ekki annað en að líta í
kringum sig í Kaupmannahöfn og
Reykjavík til að sjá, að þjóðarauð-
ur Dana á hvert mannsbarn hlýt-
ur enn í dag að vera mun meiri en
auður Íslendinga, nema ósýnileg
orkan í iðrum Íslands eigi eftir að
reynast þeim mun verðmætari.
Auk þess er menntun mannafl-
ans á mun hærra stigi í Danmörku
en á Íslandi, sé miðað við skóla-
göngu, svo sem menntaskýrslur
OECD hafa lengi lýst. (Alþjóða-
bankinn hefur nýlega birt skýrslu,
sem sýnir meiri þjóðarauð á mann
2005 á Íslandi en í Danmörku. Mat
bankans byggir á framreikningi
uppsveiflunnar fram að hruni og
hlýtur að þarfnast endurskoðunar
í ljósi hrunsins.)
Ljós og skuggar
Hvernig fórum við að því að ná
Dönum? Skoðum björtu hliðina
fyrst. Menntun mannaflans tók
stakkaskiptum. Almennt læsi
frá aldamótunum 1800 reyndist
nútímanum vel. Mikil vinnusemi
hélzt í hendur við lítið atvinnu-
leysi flest árin. Margt annað
tókst einnig vel, svo sem vélvæð-
ing fiskiskipaflotans, útfærsla
landhelginnar úr þrem mílum
1901 í 200 mílur 1976 og virkjun
fallvatna og jarðvarma í áföng-
um eftir 1940. Allt þetta glæddi
hagvöxtinn og bætti lífskjörin.
Skuggahliðin á málinu er sú, að
stjórnvöld fengust ekki til að upp-
ræta ýmislega landlæga óhag-
kvæmni (fákeppni, innflutnings-
höft, spillingu). Til að breiða yfir
óhagkvæmnina var gömlu bragði
beitt. Landsmenn gengu á eign-
ir sínar og söfnuðu skuldum til
að hífa upp tekjurnar. Til dæmis
jukust skuldir þjóðarbúsins svo
á kreppuárunum, að Bretar töldu
Ísland vera á heljarþröm 1938-39.
„Blessað stríðið“ bjargaði Íslandi
fyrir horn.
Til að vega upp óhagræðið af
völdum hagstjórnarfarsins gengu
menn á fiskstofnana, söfnuðu
skuldum erlendis og vanræktu
landið. Fyrstu atriðin tvö skiptu
miklu á efnahagsvísu, ofveiðin
og skuldasöfnunin, sem stafaði
öðrum þræði af rýrnun innlends
sparnaðar af völdum verðbólgunn-
ar. Þörfin fyrir að virkja erlent
sparifé til framkvæmda varð
meiri en ella, úr því að Íslending-
ar fengust ekki sjálfir til að spara.
Mikil verðbólga er alls staðar og
ævinlega til marks um vonda hag-
stjórn og veika innviði.
Hugmyndin um efnahagslegt
jafnræði Íslendinga og Dana var
í reyndinni röng, þar eð hún var
reist á samanburði landsfram-
leiðslu á mann í löndunum tveim
án nauðsynlegs tillits til breyt-
inga á eignum og skuldum þjóðar-
búsins til langs tíma litið. Hrunið
2008 átti sér langan aðdraganda.
Framtíðin
Nú standa Íslendingar aftur
langt að baki Dönum í kaupmætti
þjóðar tekna á mann, og hafa
erlendar lánastofnanir þó þurft
að afskrifa erlendar einkaskuld-
ir að andvirði um fimmfaldrar
landsframleiðslu Íslands auk mik-
illa afskrifta innlendra skulda.
Ríkisstjórnin sýnir fá merki þess,
að hún skilji nauðsyn þess eða
þori að takast á við óhagkvæmt
búskaparlag frá fyrri tíð – með
einni undantekningu, hálfvolgri
umsókn um inngöngu Íslands
í Evrópusambandið. Stjórnin
virðist hvorki hafa þingstyrk né
þrek til að standa við og ljúka
eigin neyðaráætlun með stuðn-
ingi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og
Norðurlanda. Lamandi gjaldeyris-
höft, sem hefðu að réttu lagi átt að
leggjast af nú í haust, munu þurfa
að vera áfram við lýði í eitt til tvö
ár enn að minnsta kosti, því að
án þeirra myndi gengi krónunnar
falla að nýju. Peningastjórnin er
óbreytt frá því fyrir hrun og átti
þó talsverðan þátt í hruninu. Þar
bólar hvergi á nýrri hugsun.
Gömlu leiðirnar eru lokaðar.
Nú er ekki lengur hægt að moka
upp fiski til að fela veilurnar, því
að fiskimiðin eru löngu fullnýtt
og meira en það, og ekki heldur
hægt að slá lán í útlöndum, því
að enginn vill lána Íslendingum
fé. Orkan er eftir. Hætt er við, að
litið verði á landvernd sem lúxus
og hún verði látin sitja á hakan-
um líkt og víða í Afríku. Íslend-
ingar þurfa að hugsa sinn gang og
líta til Norðmanna, sem hafa nýtt
sínar orkulindir án landspjalla, og
uppræta gömlu óhagkvæmnina.
Lokaðar leiðir, brenndar brýr
Þorvaldur Gylfason
prófessor
Í DAG
Skuggahliðin á málinu er sú, að stjórn-
völd fengust ekki til að uppræta ýmis-
lega landlæga óhagkvæmni (fákeppni,
innflutningshöft, spillingu).
AF NETINU
Hverjir borga fyrir ókeypis
bílastæði?
Í Reykjavík er mikill fjöldi ókeypis
bílastæða, en talið er að hver bíll
í Reykjavík eigi í raun 3 stæði; við
heimilið, við vinnustaðinn og við
verslun. Aðeins örfá stæði í borginni
eru gjaldskyld, og þau eru nær öll í
miðborginni. Gjaldið fyrir að leggja í
miðborg Reykjavíkur er miklu lægra
en borgunum í kringum okkur.
Raunar hef ég skoðað mér til gamans
hvað bílastæði kosta í þeim borgum
sem ég hef heimsótt á undanförn-
um árum, og held að bílastæði séu
hvergi jafn ódýr og í Reykjavík.
gislimarteinn.is
Gísli Marteinn Baldursson
Hundahreinsunin hafin?
Auðvitað varð Hjörleifur Kvaran að
víkja sem forstjóri Orkuveitunnar.
Annað hefði verið blaut tuska framan
í þá sem borgað hafa starfsemi þessa
furðulega bruðlfyrirtækis síðustu árin.
Það er að segja almennra Reykvík-
inga.
Það getur vel verið rétt, sem sumir
hafa bent á, að fyrstu - og kannski
helstu - stoðunum undir ruglið hjá
OR hafi verið skotið af Guðmundi
Þóroddssyni fyrirrennara Hjörleifs.
Á þeim tímum þegar Alfreð Þor-
steinsson var ríkjandi húsdraugur hjá
fyrirtækinu.
En það dugar bara ekki Hjörleifi tl
afbötunar.
Hann hélt óhikað áfram á sömu
braut, og bar ekki við að hreinsa út
úr pólitískum skúmaskotum fyrir-
tækisins.
dv.is/blogg/tresmidja
Illugi Jökulsson
Í Verðbréfa- og lífeyrisþjónustu Arion banka starfar öflugur
og reynslumikill hópur sérfræðinga sem veitir viðskiptavinum
faglega þjónustu varðandi sparnað í sjóðum, verðbréfaviðskipti
og lífeyrissparnað.
Hringdu í síma 444 7000 eða komdu við hjá okkur
í Borgartúni 19. Við tökum vel á móti þér.
Starfsfólk Verðbréfa- og lífeyrisþjónustu Arion banka.
Getum
við aðstoðað?
arionbanki.is/eignastyring
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
A
R
I
4
9
7
3
0
0
8
/1
0