Fréttablaðið - 19.08.2010, Síða 21

Fréttablaðið - 19.08.2010, Síða 21
FIMMTUDAGUR 19. ágúst 2010 21 Íslendingar notuðu 20. öldina til að ná Dönum í efnahags- legu tilliti. Það tókst. Við upphaf heimastjórnar 1904 var Ísland hálfdrættingur á við Danmörku mælt í kaupmætti þjóðartekna á mann. Fyrir hrun 2008 virtist Ísland standa jafnfætis Danmörku og hafði gert um alllangt skeið. Þessi samanburður hvílir á tölum um þjóðartekjur og mannfjölda, en hann segir ekki alla söguna. Kaupmannahöfn var um aldamót- in 1900 löngu orðin að háreistri heimsborg, en Reykjavík var þá lágreist þyrping og fátækleg, ef frá eru talin fáein glæsileg hús, sem Danir höfðu reist, svo sem Dómkirkjan, Menntaskólinn og Alþingishúsið. Þjóðarauður Dana – bygging- arnar, atvinnutækin, menntun fólksins og fleira – var þá að ætla má margfaldur á við þjóðarauð Íslands miðað við mannfjölda, en um þetta eru engar tölur til. Menn þurfa ekki annað en að líta í kringum sig í Kaupmannahöfn og Reykjavík til að sjá, að þjóðarauð- ur Dana á hvert mannsbarn hlýt- ur enn í dag að vera mun meiri en auður Íslendinga, nema ósýnileg orkan í iðrum Íslands eigi eftir að reynast þeim mun verðmætari. Auk þess er menntun mannafl- ans á mun hærra stigi í Danmörku en á Íslandi, sé miðað við skóla- göngu, svo sem menntaskýrslur OECD hafa lengi lýst. (Alþjóða- bankinn hefur nýlega birt skýrslu, sem sýnir meiri þjóðarauð á mann 2005 á Íslandi en í Danmörku. Mat bankans byggir á framreikningi uppsveiflunnar fram að hruni og hlýtur að þarfnast endurskoðunar í ljósi hrunsins.) Ljós og skuggar Hvernig fórum við að því að ná Dönum? Skoðum björtu hliðina fyrst. Menntun mannaflans tók stakkaskiptum. Almennt læsi frá aldamótunum 1800 reyndist nútímanum vel. Mikil vinnusemi hélzt í hendur við lítið atvinnu- leysi flest árin. Margt annað tókst einnig vel, svo sem vélvæð- ing fiskiskipaflotans, útfærsla landhelginnar úr þrem mílum 1901 í 200 mílur 1976 og virkjun fallvatna og jarðvarma í áföng- um eftir 1940. Allt þetta glæddi hagvöxtinn og bætti lífskjörin. Skuggahliðin á málinu er sú, að stjórnvöld fengust ekki til að upp- ræta ýmislega landlæga óhag- kvæmni (fákeppni, innflutnings- höft, spillingu). Til að breiða yfir óhagkvæmnina var gömlu bragði beitt. Landsmenn gengu á eign- ir sínar og söfnuðu skuldum til að hífa upp tekjurnar. Til dæmis jukust skuldir þjóðarbúsins svo á kreppuárunum, að Bretar töldu Ísland vera á heljarþröm 1938-39. „Blessað stríðið“ bjargaði Íslandi fyrir horn. Til að vega upp óhagræðið af völdum hagstjórnarfarsins gengu menn á fiskstofnana, söfnuðu skuldum erlendis og vanræktu landið. Fyrstu atriðin tvö skiptu miklu á efnahagsvísu, ofveiðin og skuldasöfnunin, sem stafaði öðrum þræði af rýrnun innlends sparnaðar af völdum verðbólgunn- ar. Þörfin fyrir að virkja erlent sparifé til framkvæmda varð meiri en ella, úr því að Íslending- ar fengust ekki sjálfir til að spara. Mikil verðbólga er alls staðar og ævinlega til marks um vonda hag- stjórn og veika innviði. Hugmyndin um efnahagslegt jafnræði Íslendinga og Dana var í reyndinni röng, þar eð hún var reist á samanburði landsfram- leiðslu á mann í löndunum tveim án nauðsynlegs tillits til breyt- inga á eignum og skuldum þjóðar- búsins til langs tíma litið. Hrunið 2008 átti sér langan aðdraganda. Framtíðin Nú standa Íslendingar aftur langt að baki Dönum í kaupmætti þjóðar tekna á mann, og hafa erlendar lánastofnanir þó þurft að afskrifa erlendar einkaskuld- ir að andvirði um fimmfaldrar landsframleiðslu Íslands auk mik- illa afskrifta innlendra skulda. Ríkisstjórnin sýnir fá merki þess, að hún skilji nauðsyn þess eða þori að takast á við óhagkvæmt búskaparlag frá fyrri tíð – með einni undantekningu, hálfvolgri umsókn um inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Stjórnin virðist hvorki hafa þingstyrk né þrek til að standa við og ljúka eigin neyðaráætlun með stuðn- ingi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Norðurlanda. Lamandi gjaldeyris- höft, sem hefðu að réttu lagi átt að leggjast af nú í haust, munu þurfa að vera áfram við lýði í eitt til tvö ár enn að minnsta kosti, því að án þeirra myndi gengi krónunnar falla að nýju. Peningastjórnin er óbreytt frá því fyrir hrun og átti þó talsverðan þátt í hruninu. Þar bólar hvergi á nýrri hugsun. Gömlu leiðirnar eru lokaðar. Nú er ekki lengur hægt að moka upp fiski til að fela veilurnar, því að fiskimiðin eru löngu fullnýtt og meira en það, og ekki heldur hægt að slá lán í útlöndum, því að enginn vill lána Íslendingum fé. Orkan er eftir. Hætt er við, að litið verði á landvernd sem lúxus og hún verði látin sitja á hakan- um líkt og víða í Afríku. Íslend- ingar þurfa að hugsa sinn gang og líta til Norðmanna, sem hafa nýtt sínar orkulindir án landspjalla, og uppræta gömlu óhagkvæmnina. Lokaðar leiðir, brenndar brýr Þorvaldur Gylfason prófessor Í DAG Skuggahliðin á málinu er sú, að stjórn- völd fengust ekki til að uppræta ýmis- lega landlæga óhagkvæmni (fákeppni, innflutningshöft, spillingu). AF NETINU Hverjir borga fyrir ókeypis bílastæði? Í Reykjavík er mikill fjöldi ókeypis bílastæða, en talið er að hver bíll í Reykjavík eigi í raun 3 stæði; við heimilið, við vinnustaðinn og við verslun. Aðeins örfá stæði í borginni eru gjaldskyld, og þau eru nær öll í miðborginni. Gjaldið fyrir að leggja í miðborg Reykjavíkur er miklu lægra en borgunum í kringum okkur. Raunar hef ég skoðað mér til gamans hvað bílastæði kosta í þeim borgum sem ég hef heimsótt á undanförn- um árum, og held að bílastæði séu hvergi jafn ódýr og í Reykjavík. gislimarteinn.is Gísli Marteinn Baldursson Hundahreinsunin hafin? Auðvitað varð Hjörleifur Kvaran að víkja sem forstjóri Orkuveitunnar. Annað hefði verið blaut tuska framan í þá sem borgað hafa starfsemi þessa furðulega bruðlfyrirtækis síðustu árin. Það er að segja almennra Reykvík- inga. Það getur vel verið rétt, sem sumir hafa bent á, að fyrstu - og kannski helstu - stoðunum undir ruglið hjá OR hafi verið skotið af Guðmundi Þóroddssyni fyrirrennara Hjörleifs. Á þeim tímum þegar Alfreð Þor- steinsson var ríkjandi húsdraugur hjá fyrirtækinu. En það dugar bara ekki Hjörleifi tl afbötunar. Hann hélt óhikað áfram á sömu braut, og bar ekki við að hreinsa út úr pólitískum skúmaskotum fyrir- tækisins. dv.is/blogg/tresmidja Illugi Jökulsson Í Verðbréfa- og lífeyrisþjónustu Arion banka starfar öflugur og reynslumikill hópur sérfræðinga sem veitir viðskiptavinum faglega þjónustu varðandi sparnað í sjóðum, verðbréfaviðskipti og lífeyrissparnað. Hringdu í síma 444 7000 eða komdu við hjá okkur í Borgartúni 19. Við tökum vel á móti þér. Starfsfólk Verðbréfa- og lífeyrisþjónustu Arion banka. Getum við aðstoðað? arionbanki.is/eignastyring ÍS L E N S K A S IA .I S A R I 4 9 7 3 0 0 8 /1 0

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.