Fréttablaðið - 19.08.2010, Qupperneq 24
24 19. ágúst 2010 FIMMTUDAGUR
SEND IÐ OKK UR LÍNU
Fréttablaðið og Vísir hvetja lesendur til
að senda línu og leggja orð í belg um
málefni líðandi stundar. Greinar og
bréf skulu vera stutt og gagnorð. Tekið
er á móti efni á netfanginu greinar@
frettabladid.is eða á vefsíðu Vísis, þar
sem finna má nánari leiðbeiningar.
Ritstjórn ákveður hvort efni birtist í
Fréttablaðinu eða Vísi eða í báðum
miðlunum að hluta eða í heild.
Áskilinn er réttur til leiðréttinga og til
að stytta efni.
Á annasömum tímum hættir eflaust fleirum en höfundi til að
dragast niður í úrlausnarefnin, lok-
ast inni við hið hversdagslega amst-
ur daganna. Vill þá farast fyrir að
lögð séu niður amboðin og gengið
á sjónarhól mannlífs og atburða,
skyggnst um og horft jafnt um öxl
sem fram á veginn. Hér verður á
eftir og í nokkrum tengdum blaða-
greinum gerð tilraun til að bæta
þar úr hvað undirritaðan varðar.
Nokkuð er undan því kvartað og
með réttu að ýmsu leyti að skortur
sé á forystu og framtíðarsýn í þjóð-
málum um þessar mundir. Margt
veldur. Ofurþungi þeirra atburða
sem skekið hafa íslenskt samfélag
sl. misseri hefur gert hvoru tveggja
í senn, að lesta stjórnvöld, stjórn-
málin og velflesta burðarviði sam-
félagsins með ærnum og erfiðum
verkefnum og hitt að öll erum við
enn að glíma við eftirköst óskap-
anna, erum óviss um hvernig úr
spilast og ráðvillt á köflum. Er
þetta skiljanlegt í ljósi þess hversu
áfallið varð mikið við hrun banka-
kerfisins og það tjón sem af því
hlaust bæði fjárhagslegt, félagslegt
og andlegt eða sálrænt. Viðskipta-
lífið, stjórnmálin, fjölmiðlarnir,
eftirlitskerfið, allt þetta og margt
fleira brást. Almenningur upplifir
sig illa svikinn og því miður með
réttu. Það sem á ekki að gerast og
má ekki gerast, gerðist.
Orsakir bankahrunsins
Um orsakir hrunsins sem hér
varð haustið 2008 hefur margt
verið rætt og ritað. Þar er auð-
vitað skýrsla rannsóknarnefndar
Alþingis grundvallargagn. Skýrsl-
an leiðir í ljós mikla veikleika sem
stjórnmálin, stjórnsýsla og eftir-
litsaðilar verða að taka háalvarlega
og einsetja sér að bæta úr. Hegðun
bankaforkólfa og viðskiptajörfa er
kapítuli út af fyrir sig, en það er of
einfalt og ódýrt að velta allri ábyrð-
inni þangað. Vandinn er djúpstæð-
ari og á ekki síður rætur sínar að
rekja til hugmyndafræðilegra þátta
en einstaklinga sem brugðust.
Hugmyndafræði nýfrjálshyggj-
unnar náði með lúmskum hætti að
hreiðra um sig í íslenskum stjórn-
málum og setja viðmið í opinberri
umræðu. Er það einkum þrennt sem
veldur því að sú skýring á við þegar
litið er til orsaka bankahrunsins. Í
fyrsta lagi sá áróður að einkaaðilar
gerðu yfirleitt allt betur en ríkið og
því væri þeim best treystandi fyrir
flestum hlutum. Í öðru lagi að til
væri einhver ósýnileg hönd sem
stýrði markaðsgangvirkinu og það
sæi um að leiðrétta sig sjálft. Og í
þriðja lagi að sökum þessarar sjálf-
gefnu innbyggðu skynsemi markað-
arins þyrfti ekki að hafa eftirlit með
honum eða að slíkt ætti að a.m.k. að
vera í algjöru lágmarki. Allar þess-
ar þrjár forsendur höfum við nú séð
að eru rangar. Til viðbótar þessu
var samfélagið græðgisvætt enda
er það í samræmi við hugmynda-
fræðina að af öllu megi hirða gróða
hvort sem það eru hjartaþræðingar,
heitt vatn eða mandarínur. Og loks
vantaði ekki upp á yfirdrifið sjálfs-
traustið hjá íslenskum stjórnmála-
og viðskiptamönnum. Ungæðisleg-
ur hroki, blind trú á eigin snilli í
viðskiptum, óþroskuð siðferðisvit-
und og alger skortur á heilbrigðri
sjálfsgagnrýni bættu ekki ástand-
ið.
Sofið á verðinum
Á sinn hátt má segja að gagnrýn-
in hugsun hafi beðið ósigur, ekki
aðeins í viðskiptum, heldur einnig í
fjölmiðlun, stjórnsýslu og almennri
þjóðmálaumræðu. Þegar skulda-
söfnun þjóðarbúsins komst á hættu-
legt stig (hreinar erlendar skuldir
Íslands fóru yfir 100% af VLF fljót-
lega eftir aldamótin 2000), urðu
sorglega fáir til að vara við þeirri
staðreynd og enn færri tóku undir.
Þegar viðskiptahalli fór í 26% af
VLF árið 2006 töluðu menn um
góðæri sem aldrei fyrr. Samt þarf
ekki mikla þekkingu til að átta sig
á veikleikunum þegar slíkir mælar
slá yfir í rautt. Ekki er úr vegi að
spyrja hvað orsakaði andvaraleys-
ið? Aldrei fyrr voru jafn margir
starfsmenn í fjármálaþjónustu og
öðrum viðskiptum, margir hverjir
á ofurlaunum og aldrei fyrr höfðu
jafnmargir sótt sér menntun á sviði
viðskipta. Þetta tvennt dugði þó
greinilega ekki þegar kom að upp-
lýstri og gagnrýnni orðræðu eða
því að kunna fótum sínum forráð.
Munurinn á umræðunni þá og nú
er hins vegar sláandi. Nú er ekki
lengur deilt um að stórfelld hag-
stjórnarmistök voru gerð á árunum
upp úr aldamótum og einkum þó frá
og með kosningum 2003. Litlu betra
er þó andvara- og aðgerðaleys-
ið sem rannsóknarnefndin dreg-
ur skýrt fram. Loks tók ráðleysi í
bland við afneitun við og fáir kost-
ir eftir í stöðunni þegar árið 2008
gekk í garð.
Ofvaxið bankakerfi
Það er erfitt en hollt að rifja upp
hversu umfangsmikið hrunið á
Íslandi varð, sett í samhengi við
stærð hagkerfisins. Beinar afleið-
ingar bankahrunsins á afkomu rík-
isins voru geigvænlegar. Bókfærður
halli samkvæmt rekstrarreikningi
varð 216 milljarðar 2008 í stað 89
milljarða afgangs 2007, sem sagt
rúmlega 200 milljarða sveifla. Tap
erlendra aðila vegna þess sem hér
gerðist liggur ekki endanlega fyrir
en verður líklegast ekki undir töl-
unni 7.000 milljarðar. Svo háa tölu
er erfitt að skilja í landi með um
1.500 milljarða landsframleiðslu
eða þegar talað er um að góður túr
á frystitogara gefi 100 milljónir í
aflaverðmæti og þegar heildarút-
gjöld til heilbrigðismála eru um 100
milljarðar. Enda hefur því verið
fleygt fram að hrun íslensku bank-
anna þriggja séu sjötta, níunda og
tíunda stærsta gjaldþrot heimsins.
Það hlýtur að teljast einstakt og
heimssögulegt hjá svo smáu hag-
kerfi.
Áhrif hrunsins á ríkissjóð
Hjá ríkinu liggja stærstu tölurn-
ar í töpuðum kröfum (gjaldþrot
Seðlabankans), en 192 milljarðar
voru bókfærðir 2008 vegna þess.
Kostnaður við endurfjármögnun
banka og sparisjóða nálgast 200
milljarða auk þess sem hefur verið
veitt í víkjandi lánum, en vissu-
lega stendur þar eign á móti. Fjár-
magnskostnaður ríkisins hefur
stóraukist (úr 22,2 milljörðum 2007
í 84 milljarða 2009) og loks er það
beinn hallarekstur ríkissjóðs vegna
tekjubrests og aukinna útgjalda.
Þetta eru auðvitað að hluta til
tengdar stærðir en skýrist allt best
í þróun skulda og eignastöðu ríkis-
ins. Heildarskuldir ríkisins í árslok
2007 voru 560,5 milljarðar króna
eða 43,1% af vergri landsfram-
leiðslu (VLF). Þær fóru í 1,198,5
milljarða árið 2008 eða 81,1% af
VLF, fóru svo í 1,566,4 milljarða í
árslok 2009 eða 104,4% af VLF og
stóðu í svipaðri tölu í lok 1. ársfjórð-
ungs þessa árs eða 1,535,5 milljörð-
um (99,3% af VLF). Allt á verðlagi
og í hlutfalli við landsframleiðslu
hvers ár. Á mannamáli þýðir þetta
að við hrunið stórhækkuðu skuldir
og útgjöld ríkissjóðs á meðan tekj-
urnar gáfu allverulega eftir. Bilið
milli tekna og útgjalda ríkisins
varð risastórt.
Hreinar peningalegar eignir rík-
issjóðs þróuðust með eftirfarandi
hætti á sama tíma: Árið 2007 voru
þær jákvæðar um 22,2, milljarða
eða 1,7% af VLF. Árið 2008 var
staðan orðin neikvæð um 238,5
milljarða, sem sagt -16,1% af VLF,
og -516,8 í lok 1. ársfjórðungs þessa
ár (-33,4% af VLF).
Tap og vonbrigði
Ótalinn er eignabruninn, tjónið
sem varð á raunverulegum verð-
mætum. Óhemju mikið hlutafé
varð verðlaust, eignir stórlækkuðu
í verði, eftir sat lemstrað og kafs-
kuldsett atvinnulíf, skuldir heim-
ila sem voru miklar fyrir urðu ill-
eða óviðráðanlegar fyrir þúsundir
fjölskyldna. Aðgangur að erlendu
fjármagni nánast lokaðist, lánshæf-
ismat og lánskjör versnuðu þ.e. ef
einhver lán bjóðast, viðskipti urðu
á ýmsan hátt dýrari og erfiðari
(auknar tryggingar fyrir greiðslum
eða staðgreiðsla). Traust hrundi til
grunna og sársauki, vonbrigði og
reiði breiddust og brutust út í sam-
félaginu. Sem sagt, það varð marg-
víslegt og stórfellt mælanlegt og
ekki síður ómælanlegt tjón.
Landið tekur að rísa!
Orsakir og afleiðingar bankahrunsins Grein 1
Þjóðmál
Steingrímur J.
Sigfússon
fjármálaráðherra
Það er alger fásinna að Rússar hafi verið komnir á fremsta
hlunn með að ráðast með her inn
í Úkraínu í Appelsínugulu bylt-
ingunni svonefndu og að ESB hafi
bjargað landinu frá vondu köll-
unum; minna ber á að Úkraína
er hvorki í ESB né NATO. Þetta
kom fram í grein Andrésar Pét-
urssonar hjá Evrópusamtökunum
í Fréttablaðinu í fyrradag. Svona
málflutningur er ESB sinnum ekki
til framdráttar, en hér er Rússa-
grýlan gamla góða vakin upp svo
um munar. Þetta er í meira lagi
ábyrgðarlaus málflutningur í stíl
gamalla úreltra tíma og hæfir ekki
upplýstum aðilum, áhugavert er
hvaða heimildir liggja að baki.
Appelsínugula byltingin í Úkr-
aínu (sem gekk þar yfir haust og
vetur 2004) var landsmönnum
hins vegar engan veginn til góðs,
lífkjör almennings hröpuðu og
eru nú mun verri en hjá Rússum
almennt. Um var að ræða frá-
bærlega vel skipulagða maskínu
sem gekk út á fyrirfram skrif-
aða dagskrá: mannflutninga á
réttum stöðum, á réttum tímum,
útifundi, mótmælaspjöld, tjöld,
hátalarakerfi, gistingu, kost,
drykkjarföng og fleira og fleira
– fyrir þúsundir manna, sem að
mestu voru fluttar til Kænugarðs
frá vesturhéruðunum. Í Kiev er
rússneska töluð 99 prósent en
þjóðernissinnar eru afar sterkir
í Vestur-Úkraínu. En þetta er allt
önnur saga …
Þýska orðið Lebensraum þýðist
mun betur sem „lífsrými“ heldur
en „landsvæði“ eins og Andrés
þýðir það. Adolf Hitler átti vissu-
lega við „lífsrými“ fyrir Germ-
ani í frjósömum sveitum Aust-
ur-Evrópu. Orðið fann foringinn
sjálfur upp þegar hann sat inni
og skrifaði Mein Kampf, löngu
áður en flokkur hans NSDAP
náði völdum á lýðræðislegan
máta í kosningum í janúar 1933.
Margt má gott um ESB segja
en varast ber svona fullyrðingar
og hleypidóma.
„Lebensraum“
og Úkraína
Evrópumál
Haukur
Hauksson
magister í alþjóðamál-
um og fararstjóri
Costa del Sol
Stökktu til
28. ágúst
10 nátta ferð - ótrúlegt verð!
Heimsferðir bjóða frábær tilboð á allra síðustu
sætunum í ágúst til eins allra vinsælasta
sólaráfangastaðar Íslendinga, Costa del Sol.
Gríptu þetta einstaka tækifæri til þess að
komast í sólina!
Frá kr. 64.900 í 10 nætur
Netverð á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára í herbergi/
stúdíó/íbúð. Verð m.v. 2 í herbergi/stúdíó kr. 69.900. Stökktu
tilboð 28. ágúst í 10 nætur.
Frá kr. 77.900 í 10 nætur með hálfu fæði
Netverð á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára í herbergi/
stúdíó/íbúð með hálfu fæði. Verð m.v. 2 fullorðna og 1 barn kr.
82.900. Verð m.v. 2 í herbergi/stúdíó með hálfu fæði kr. 91.900.
Stökktu tilboð 28. ágúst í 10 nætur.
Frá kr. 94.900 í 10 nætur með “öllu inniföldu”
Netverð á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára í herbergi/
stúdíó/íbúð með “öllu inniföldu”. Verð m.v. 2 í herbergi/stúdíó með
“öllu inniföldu” kr. 109.900. Stökktu tilboð 28. ágúst í 10 nætur.
Gríptu tækifærið
– Bókaðu strax!
Ath. takmarkaður fjöldi sæta og gistingar í boði – verð getur hækkað án fyrirvara!