Fréttablaðið - 19.08.2010, Page 26
26 19. ágúst 2010 FIMMTUDAGUR
timamot@frettabladid.is
BILL CLINTON FYRRVERANDI BANDA-
RÍKJAFORSETI ER 64 ÁRA
„Ég kunni því óskaplega vel að
vera forseti og mun virkilega
sakna starfsins. Ég er ekki viss
um að nokkur í þessu embætti
hafi haft á því jafn miklar mætur
eða þótt eins gaman og mér.“
Bandaríski lögfræðingurinn William
Jefferson Clinton var kjörinn 42. for-
seti Bandaríkjanna 1993 og gegndi
embættinu til 2001.
MERKISATBURÐIR
1959 Morgunblaðið birtir fyrstu
símsendu fréttamyndirn-
ar frá landsleik Dana og
Íslendinga deginum áður.
1963 Sæsími sem tengir Ísland
við Nýfundnaland tekinn í
notkun.
1964 Bítlamyndin A Hard Days
Night frumsýnd í Tónabíói
og slær öll sýningarmet.
1993 Íslenskir togarar hefja
veiðar utan 200 mílna í
Smugunni í Barentshafi.
1993 Shimon Peres utanríkis-
ráðherra Ísraels kemur í
opinbera heimsókn til Ís-
lands.
1993 Leikararnir Kim Basinger
og Alec Baldwin ganga í
hjónaband.
„Það var Skáksamband Íslands sem
fyrst stóð að Borgarskákmótinu í til-
efni 200 ára afmælis Reykjavíkurborg-
ar 1986, en síðastliðin fimmtán ár hafa
Taflfélag Reykjavíkur og Taflfélagið
Hellir haldið mótið í samstarfi,“ segir
Vigfús Óðinn Vigfússon, formaður
Skákfélagsins Hellis, um mótið sem
sett verður í 25. sinn í Ráðhúsi Reykja-
víkur í dag klukkan 16, en mótið setur
borgarstjórinn Jón Gnarr.
Þetta rótgróna skákmót var upphaf-
lega haldið undir berum himni í Lækj-
argötunni. „Það fyrirkomulag gekk
ágætlega fyrstu árin, eða þar til menn
fóru að hreppa vonskuveður. Þá fengu
þeir þá snjöllu hugmynd að færa mótið
inn í Ráðhúsið, sem var gæfuspor,“
segir Vigfús. Hann bætir við að þátt-
takendur séu allt að 90 talsins, á aldr-
inum 7 til 80 ára.
„Borgarskákmótið er firnasterkt
hraðkákmót og það opna skákmót sem
flestir mæta á. Jafnan mæta til leiks
margir af sterkustu skákmönnum þjóð-
arinnar og athyglisvert að allir sem
sigrað hafa mótið eru nú ýmist stór-
meistarar eða alþjóðlegir meistarar.“
Að sögn Vigfúsar hefur skákin verið
á uppleið undanfarið, en það helst í
hendur við slæmt efnahagsástand.
„Mörg börn og unglingar eru nú
farin að tefla, en þau byrja oftast í
skólanum og færa sig yfir í félög-
in þegar áhuginn vex. Töfrar þessar-
ar hugaríþróttar felast í glímunni við
andstæðinginn, en það geta allir lært
að tefla. Það eina sem virkilega þarf er
áhugi og ástundun, sem og hæfileiki til
að reiknað fram í tímann og sjá fyrir
næstu leiki andstæðingsins. Þá er gott
minni nauðsynlegt veganesti, en skák
getur hjálpað börnum að hugsa rökrétt
í skóla og hafa foreldrar vottað að allt
komi þetta á sama tíma; skólinn fari
upp á við þegar skákin fari upp á við,
en að tefla þjálfar bæði huga og ein-
beitingu,“ segir Vigfús sem kallar eftir
fleiri konum að skákborðinu.
„Skákmenn eru fjölbreyttur hópur
en það vantar að konur taki meiri þátt.
En jafnvel þótt menn sitji rólegir við
taflborðið er skákin að sumu leyti bar-
dagi og þar hugsa stelpur og strákar
ekki eins. Það sér maður vel í yngstu
flokkunum þegar strákar grípa fljótt út
á hvað skákin gengur, að drepa kallana
hjá hinum og máta, meðan stelpurnar
leika sér meira með kallana fram og
til baka og skeyta litlu um að drepa
drottningu, riddara og kóng hjá and-
stæðing sínum.“
Tölvur draga saman andstæðinga á
Borgarskákmótinu, sem þýðir að börn
og fullorðnir lendi saman sem andstæð-
ingar. „Það þykir mörgum ánægjulegt,
en þegar fullorðnir tapa fyrir börnum
verður það ekki eins gott. Því getur
bæði orðið áfangi fyrir barn að vinna
fullorðinn andstæðing, en einnig dýr-
mæt lexía fyrir fullorðinn skákmann
að tapa fyrir barni.“ thordis@frettabladid.is
BORGARSKÁKMÓTIÐ: HEFST Í RÁÐHÚSI REYKJAVÍKUR Í 25. SINN Í DAG
Rólegheita skák er bardagi
TEFLT VIÐ TJÖRNINA Hér tekur Vigfús Óðinn Vigfússon, formaður Skákfélagsins Hellis, eina skák við húsvörð Ráðhússins í Reykjavík, en þar fer
Borgarskákmótið fram í dag ofan í gryfjunni þar sem stóra Íslandslíkanið víkur fyrir taflborðum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og
fyrrverandi eiginmaður,
Eiríkur Ólafsson
fyrrverandi skipstjóri,
lést laugardaginn 14. ágúst. Jarðarförin mun fara fram
í kyrrþey.
Elvar J. Eiríksson Birgit Eriksen
Sigríður R. Eiríksdóttir
Halldóra Eiríksdóttir Þór Sigfússon
Hafdís Jóhannesdóttir
barnabörn og langafabörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð, hlýhug og vinsemd
við andlát og útför föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
Þórs Jakobssonar
Framnesvegi 6, Reykjavík.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Landspítalans við
Hringbraut.
Ásta Þórsdóttir Knútur Benediktsson
Guðný Þórsdóttir Tryggvi Már Valdimarsson
Þóra Margrét Þórsdóttir Jón Eiríkur Rafnsson
barnabörn og langafabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu
við andlát okkar ástkæru móður,
tengdamóður og ömmu
Rósu Bjargar Karlsdóttur
Vesturgötu 69, Reykjavík.
Ragnar Hjartarson
Karl Ásbjörn Hjartarson Elísabet S. Valdimarsdóttir
Daníel Andri Karlsson
Telma Rós Karlsdóttir
85 ára afmæli
Rakel Guðbjörg
Magnúsdóttir
frá Dal við Múlaveg (Laugardal,
Reykjavík) er 85 ára í dag (fæddist
19. ágúst 1925).
Rakel mun fagna tímamótunum um
helgina, ásamt sínum nánustu, en
afkomendur hennar eru orðnir 80.
Hún vann við matreiðslu, saumaskap, saumaði m.a. nokkra
„Presley galla“ og hin síðari ár hefur hún stytt sér stundir
við að mála landslagsmyndir og saumað föt á yngstu
afkomendur sína.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og vinur,
Addý Jóna Guðjónsdóttir
frá Vestmannaeyjum, Lækjasmára 6
Kópavogi,
lést á Landspítalanum við Hringbraut 12. ágúst.
Jarðsett verður frá Landakirkju í Vestmannaeyjum
laugardaginn 28. ágúst kl. 12.
Marta Guðjóns Jónas Þór Hreinsson
Sigfríð Gerður Hallgrímsdóttir
Sæþór Árni Hallgrímsson Ingibjörg Guðjónsdóttir
Berglind Halla Hallgrímsdóttir
Jón Hermannsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir,
Sigríður Pálsdóttir,
áður til heimilis að Boðahlein 24
í Garðabæ,
lést mánudaginn 16. ágúst í Hrafnistu, Hafnarfirði.
Útför hennar fer fram mánudaginn 30. ágúst kl. 15 frá
Fríkirkjunni í Hafnarfirði.
Guðjón Tómasson og Þuríður Hanna Gísladóttir
Valdimar Tómasson og Guðrún Júlíusdóttir
Guðrún Sólborg Tómasdótir og Sigurður Sumarliðason
Sigrún Laufey Baldvinsdóttir.
Alþingismenn stofnuðu Hið íslenska þjóðvinafélag fyrir 139 árum,
en markmið þess var að halda uppi réttindum Íslendinga, efla
samheldni og stuðla að framförum lands og þjóðar á sem flestum
sviðum. Fyrsti forseti félagsins var Jón Sigurðsson, en alls hafa
fimmtán menn gegnt embætti forseta félagsins frá upphafi.
Með tímanum varð útgáfa meginviðfangsefni félagsins sem
hóf að gefa út tímaritið Andvara árið 1874, en það hefur komið út
árlega síðan, ef frá eru talin árin 1878 og 1892. Árið 1875 gaf svo
félagið fyrst út Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags sem naut
strax mikilla vinsælda og hefur komið út á ári hverju síðan. Alman-
akið var sett saman af Íslandsalmanaki háskólans í Kaupmanna-
höfn og ýmsu öðru efni til gagns og fróðleiks fyrir alþýðu manna.
Frá 1923 færðist útgáfa og útreikningar almanaksins til Íslands og
hefur verið svo síðan, en dr. Þorsteinn Sæmundsson stjörnufræð-
ingur hefur séð um útreikninga almanaksins frá 1964.
Heimild: thjodvinafelagid.is
ÞETTA GERÐIST: 19. ÁGÚST 1871
Hið íslenska þjóðvinafélag stofnað
ANDVARI FRÁ ÁRINU 2006