Fréttablaðið - 19.08.2010, Síða 29
FIMMTUDAGUR 19. ágúst 2010 3
Löngum hefur farið illt orð af tískuheiminum. Ungar stúlkur oft lent milli handanna á mis-
jöfnum pappírum sem þeim
lofa öllu fögru. Kampavín oft
flæðandi út í eitt og eiturlyf á
allra vörum. En spurningin er
hvort tískuheimurinn er eins
mannskemmandi og sumir vilja
meina og janvel lífshættulegur.
Í það minnsta hefur alda sjálfs-
víga undanfarin misseri vakið
nokkra athygli, bæði í hópi fyr-
irsætna og jafnvel hjá hönnuð-
um og nægir þar að nefna Alex-
ander McQueen sem dæmi en
hann batt enda á líf sitt í febrú-
ar á þessu ári. Rithöfundurinn
Ann Scott segir frá því í tímariti
hvernig hún hafi upplifað frá-
fall bæði McQueen og svo kór-
esku fyrirsætunnar Daul Kim
en bæði voru í hennar vinahópi.
Að sögn Ann Scott var Daul Kim
í senn bæði elskuð og hötuð í
heimalandi sínu og gat ekki farið
út án þess að verða fyrir móðg-
unum og jafnvel aðkasti í hvert
skipti sem hún skipti um hárlit
eða annað þess háttar. Hún vissi
því aldrei í hvorn fótinn hún átti
að stíga og gat ekki með nokkru
móti skilið hvers vegna henni
gekk svo vel í fyrirsætubransan-
um. Þetta varð að krónískri van-
líðan og vanmáttarkennd sem
endaði með ósköpum.
Isabellu Blow er ekki hægt
að setja í hóp hinna fyrrnefndu
þar sem hún þjáðist af krabba-
meini þegar hún stytti sér aldur.
Reyndar hafði hún verið þung-
lynd og gert nokkrar tilraunir
áður og því hægt að spyrja hvort
tengsl séu á milli þunglyndis
hennar og tískunnar. Þessi ótrú-
lega litríka manneskja af bresk-
um aðalsættum var um tíma
Pygmalion margra ungra hönn-
uða í Lundúnatískunni. Isabella
skrifaði fyrir ekki ómerkara
tímarit en Vogue á sama tíma
og hin eina sanna Anna Wintour
sem minnist hennar fyrir ótrú-
lega búninga í vinnunni. Isabella
Blow átti mikinn þá í að koma
Alexander McQueen á framfæri
með því að kaupa af honum og
koma þannig fatnaði hans í tísku-
blöðin. Eftir fráfall hennar átti
McQueen erfitt með að ná sér
upp úr þunglyndinu en í byrjun
febrúar missti hann móður sína
og tveimur vikum seinna gafst
hann sjálfur upp á lífinu.
Ann Scott segir bæði Daul
Kim og Alexander McQueen
hafa verið mótsagnir í tísku-
heiminu, eins konar andhetj-
ur, Kim allt annað en „topp-
módel“ og allt sem McQueen
gerði líkt og að hrækja framan
í tískuiðnaðinn þar sem öllum
er sama um alla. Umboðsmönn-
um er nákvæmlega sama þótt
fyrirsæturnar séu að niðurlot-
um komnar og gangi fyrir fæðu-
bótarefnum. Hönnuðunum er oft-
ast sama um allt nema sjálfa sig
og ímynd sína. Spurning hvort
rithöfundurinn hafi rétt fyrir
sér, að utangarðsfólki sé tísku-
heimurinn beinlínis hættuleg-
ur og geri á endanum út af við
þetta fólk svo það endi með því
að þagga niður í sjálfu sér.
bergb75@free.fr
Útlagar í tískuheimi
ÚR HÁBORG TÍSKUNNAR
Bergþór Bjarnason skrifar frá París
Fimmtán ára fegurðardrottning
frá Nýja-Sjálandi litaði hár sitt
brúnt og var í kjölfarið svipt
krúnunni.
Mál hinnar fimmtán ára Oliviu
O’Neil hefur vakið nokkra athygli.
Hún var fyrir þremur mánuðum
kostin ungfrú Teen Wanganui og
nýlega lét hún lita hár sitt brúnt
og setti mynd af hinu nýja útliti á
Facebook. Yfirmaður keppninnar
Barbara Osborne brást harkalega
við þegar hún sá myndina og skrif-
aði athugasemdir á síðu unglings-
stúlkunnar. „Er þetta hárkolla? Ég
vona það, ekki láta mig fá hjarta-
áfall,“ skrifaði hún. Þegar stúlk-
an sannfærði hana um að ekki
væri um kollu að ræða sagði frú
Osborne að hún yrði að velja milli
titilsins og háralitsins.
Niðurstaðan varð sú að Olivia
O’Neil var svipt titlinum þar sem
hún hefði ekki haldið sama útliti og
hún var með þegar hún var kosin.
Þess má þó geta að brúni liturinn
er upprunalegur litur á hári Oli-
viu. - sg
Svipt titlinum fyrir að lita
hárið á sér aftur brúnt
Olivia O’Neil
Hin árlega vortískuvika í Mel-
bourne í Ástralíu virðist ætla að
verða sú stærsta hingað til.
Sýning David Jones-verslunar-
keðjunnar, sem er önnur stærsta
deildarskipta verslun Ástralíu,
gekk vel en hún fór fram í þar-
síðustu viku. Ekki var nema einn
dagur liðinn frá því að verslun-
arkeðjunni var stefnt af fyrrver-
andi auglýsingastjóra keðjunnar
fyrir kynferðislega áreitni eins
af fyrrverandi stjórnendum fyr-
irtækisins.
Einn af hönnuðum verslunar-
keðjunnar, Alex Perry, sagði að
tískan myndi verða í
brennidepli á sýning-
unni þrátt fyrir ásakan-
ir auglýsingastjórans
fyrrverandi. Virð-
ist það hafa tekist.
Á sýningunni voru
kjólar með pífum,
slaufum og dopp-
um áberandi og
ljósbrúnir, hvítir
og rauðir litir.
Andlit tísku-
vikunnar í ár
er ástralska fyr-
irsætan Lucy
McIntosh sem
mun opna og
loka sýning-
um hönnuða.
Tískuvikan
stendur frá 30. ágúst til
5. september. - mmf
Hneyksli í
Ástralíu
Demantar eru varanlegir, en þeir þurfa samt á réttri
umönnun að halda. Þeir geta orðið kámugir og
óhreinindi og ryk sest á þá. Ilmvatn,
púður, sápa og náttúruleg húð-
fita setjast á demantana og draga
úr ljóma þeirra. Hreinir demant-
ar skína, vegna þess að ljósið kemst
óhindrað inn í steininn og endurkastast
út í leiftrandi ljóma. Til þess að njóta sín þannig til
fullnustu þurfa þeir aðeins dálitla umhyggju.
demantar.is
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 • jsb@jsb.is • www.jsb.is
Viltu ná kjörþyngd og komast í form?
TT námskeiðin okkar sívinsælu, frá toppi til táar, miðast við að veita konum leiðsögn um lífshætti
sem skila árangri. Þau byggjast á áralangri reynslu og fela í sér leiðbeiningar um mataræði,
líkamsbeitingu, fundi, vigtun og mælingar.
TT námskeiðin standa yfir í sex vikur. Þrjá tíma í viku er stunduð markviss líkamsrækt sem eflir þol
og styrk og tekur mið af einstaklingsbundinni getu. Vigtað er í hverjum tíma og mælingar gerðar
þrisvar á tímabilinu. Fundur er haldinn einu sinni í viku. Við veitum persónulega þjónustu í
notalegu umhverfi þar sem algjör trúnaður ríkir.
Velkomin í okkar hóp!
TT tímar í boði:
6:15 A mánu-, miðviku- og föstudagar
7:20 C mánu-, miðviku- og föstudagar
10:15 D mánu-, miðviku- og föstudagar Barnapössun
12:05 F mánu-, miðviku- og föstudagar Barnapössun
14:20 G mánu-, miðviku- og föstudagar
16:40 H mánu-, miðviku- og föstudagar Barnapössun
17:40 I mánu- og þriðjud, fimmtud 18:25 Barnapössun
18:40 J mánud, - miðvikud 19:25 og lau 8:30
18:25 TT3 Mánu- og miðvikud - (16-25 ára)
Námskeið hefjast 23. ágúst. Fundur fyrir alla flokka sunnudaginn 22. ágúst kl. 16:00 og 17:00.
Námskeiðum fylgir frjáls mæting í tækjasal!
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
Innritun í fullum gangi!
Sími 581 3730
telpurS onuK r
Staðurinn - Ræktin
fullbókað
fullbókað
örfá pláss
örfá pláss
örfá pláss
örfá pláss
örfá pláss
fullbókað
fullbókað
HAUST-VÖRUR NÝJAR
20%
kynningar-
afsláttur
• Skokkar
st. 38–50
• Mussur
• Peysur
• Kápur
• Buxur
Ótrúlegt úrval