Fréttablaðið - 19.08.2010, Síða 30
19. ágúst 2010 FIMMTUDAGUR4
Það er varla ofsögum sagt að
Íslendingar séu sjúkir í H&M og
noti flestir tækifærið til að fata
sig og fjölskylduna upp þegar þeir
bregða sér út fyrir landsteinana.
Eftir að kreppan skall á er eitthvað
minna um utanlandsferðir og hafa
margir því tekið barnafataverslun-
inni Emil og Línu fagnandi en þar
er að finna barna- og meðgöngu-
fatnað frá H&M, Lindex, Kappahl
og fleiri verslunum í Svíþjóð. Við-
skiptafræðingurinn Lóa Dagbjört
Kristjánsdóttir, sem er búsett í
Halmstad í Svíþjóð, stendur að
baki versluninni.
„Við fjölskyldan fluttum til Sví-
þjóðar sumarið 2009 þar sem mað-
urinn minn, Albert Þór Magn-
ússon, fékk vinnu sem kennari
í markaðsfræði við háskólann í
Halmstad. Ég var í fæðingaror-
lofi í vetur en með vorinu var ég
farin að svipast um eftir vinnu.
Hugmyndin kviknaði þegar ég sá
hversu mikið úrval er af fallegum
og ódýrum barnafötum í Svíþjóð.
Mig langaði að finna leið til þess
að íslenskar fjölskyldur gætu notið
þess að klæða börnin sín í sams
konar föt án þess að borga mikið
fyrir.“
Lóa kaupir fötin beint út úr
búð og selur þau á Face-
book. „Ég reyni að hafa
yfirbygginguna eins
litla og mögulegt er til
að geta haldið verðinu í
lágmarki. Verðið á síð-
unni er endanlegt. Það
miðast við að búið sé að
leggja virðisaukaskatt,
toll, sendingarkostn-
að og eigin álagningu
á vöruna,“ útskýr-
ir Lóa. Hún segir
há aðflutnings-
gjöld eiga sinn
þátt í því að
H&M skuli ekki
opna á Íslandi.
„Ég hugsa að
þeir gætu ekki
boðið mikið
lægra verð en
ég, enda þyrftu
þeir að borga
bæði starfsmanna-
kostnað og húsaleigu að
auki.
Lóa er með annan fót-
inn á Selfossi þar sem
hún og maðurinn hennar
bjuggu áður en þau fluttu
til Svíþjóðar. Hún hefur
boðið upp á heimakynn-
ingar víða á Suðurlandi og
annars staðar á landsbyggð-
inni í sumar. „Þær hafa gef-
ist afar vel og með þeim hef
ég fengið betri tilfinningu
fyrir því hvað það er sem fólk
er að sækjast eftir,“ segir
Lóa sem kemur til með að
bjóða sams konar kynning-
ar í vetur auk þess sem hún
er þegar farin að bóka jóla-
gjafakynningar. En stend-
ur til að bjóða upp á fleira
en barna- og meðgöngu-
föt? „Ég fæ þessa spurn-
ingu á hverri kynningu
og getur meira en vel
verið að ég fari að bjóða
upp á föt á fullorðna og
jafnvel einhverja heimil-
ismuni.“ Lóa segist nýlega
vera búin að skipta um
flutningsaðila. „Til að
byrja með var afhending-
artíminn allt upp í fjórar
vikur en nú get ég oftast
lofað í kringum tveggja
vikna bið.“
vera@frettabladid.is
Eftirsótt föt til Íslands
Íslendingar sækja grimmt í barnaföt frá sænskum verslunum á borð við H&M og Lindex. Viðskiptafræð-
ingurinn Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir selur valdar flíkur á Facebook við góðar undirtektir.
Lóa segir Emil og Línu orðið að litlu fjölskyldufyrirtæki þar sem allir hafa sitt
hlutverk. Mamman og pabbinn sjá um reksturinn, Daníel (til vinstri) er
álitsgjafi og Magnús Valur módel.
Skór hafa, líkt og annar
fatnaður, í gegnum
tíðina gjarnan verið
notaðir til að endur-
spegla auðlegð og
vald. Og líkt og á
öðrum sviðum tísk-
unnar hafa óþægindi,
þvinganir og heilsu-
spillandi hönnun eink-
um sést í skófatnaði
kvenna – allt til að
þjóna duttlung-
um tísk-
unnar.
Tíska aldanna
Jóna María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is - sími 512 5473
Henný Árnadóttir
henny@365.is - sími 512 5427
Þórdís Hermannsdóttir
thordish@365.is - sími 512 5447
Föstudaga
NÝ SENDING FRÁ
telpurS onuK r
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732
jsb@jsb.is • www.jsb.is
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
f í
s
k
h
ö
n
n
u
n
STOTT PILATES er krefjandi æfingakerfi og frábær leið til að:
l Móta líkamann, bæta líkamsvitund og líkamsstöðu.
l Lengja vöðva og styrkja sérstaklega djúpvöðva maga og baks.
l Losa spennu, auka liðleika og bæta jafnvægi milli vöðvahópa.
l Losa um bakverki og hjálpa til við samhæfingu svo fátt eitt sé nefnt.
Kennt er 2x í viku í 6 vikur. Byrjendahópur: Mánu- og miðvikudaga kl 10:30.
Framhaldshópur: Þriðju- og fimmtudaga kl 16:30.
Kennari: Agnes Amalía Kristjónsdóttir.
Byrjenda- og framhaldsnámskeið. Verð kr. 19.900.
Æfingakerfi byggt á pilatesæfingum Joseph Pilates.
Barnagæsla - Leikland JSB
Staðurinn - Ræktin
Velkomin í okkar hóp!
STOTT PILATES
Innritun hafin! Sími 581 3730
Frjáls
aðgangur að
opna kerfinu
og tækjasal
Haustnámskeið hefjast 23. ágúst
Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500 Akureyri: Hofsbót 4, s: 462 3504