Fréttablaðið - 19.08.2010, Síða 36

Fréttablaðið - 19.08.2010, Síða 36
 19. ÁGÚST 2010 FIMMTUDAGUR6 ● fréttablaðið ● menningarnótt Sjóminjasafnið Víkin og Bryggjan kaffihús standa fyrir fjölskylduhátíð á Grandanum á laugardaginn frá klukkan 13 í samstarfi við Verbúðirnar. Þar getur barnafólkið fengið sér kaffi á bryggjunni meðan börnin hoppa í köstulum. „Það verður karnivalstemning hjá okkur. Við ákváðum að höfða til fjölskyldufólksins og leyfa börnun- um að leika sér hjá okkur,“ segir Petra Dís Magnúsdóttir um dag- skrána sem búið er að skipuleggja á Grandanum á menningarnótt. Hún sér um kaffihúsið Bryggj- una ásamt Sigríði Guðlaugsdótt- ur sem reyndar er aðalmatmóð- irin á staðnum. Kaffihúsið er til- tölulega nýlega opnað og er eitt af fáum hér á landi sem er staðsett á bryggju. Þar er hægt að sitja bæði úti og inni og pláss er fyrir um 200 manns. Petra Dís getur þess að Verbúð- irnar með galleríum og vinnustof- um listamanna verði opnar. „Þar verður meðal annars myndlist- arsýning barna frá Hátíð hafs- ins,“ segir hún og telur upp ýmis- legt fleira spennandi í boði fyrir börnin í kringum Bryggjuna. „Hér verða fjórir hoppkastalar úti fyrir, rennibrautir og spennandi róla yfir sjóinn,“ lýsir hún og fullyrðir að fyllsta öryggis verði gætt enda sjái björgunarsveitir um það. Kórar frá Lettlandi, Litháen og Finnlandi koma fram á Bryggj- unni með klukkutíma millibili og Hljómsveitin The Way Down spilar þar klukkan 17. Sjóminja- safnið verður að sjálfsögðu opið og líka varðskipið Óðinn. Þá má ekki gleymast að geta heljarinnar harmonikuballs í verbúð númer 17. Ballið hefst klukkan 20 og stendur til 22 og að sögn Petru Dísar verð- ur það erlendur harmonikusnill- ingur sem þenur dragspilið. En hvað ætlar Petra Dís sjálf að bjóða upp á með kaffinu? Við verðum með smurbrauð, vöfflur og pönnukökur og kaffi,“ lofar hún og getur þess líka að Bryggjan sé flottur staður til að virða fyrir sér flugeldasýninguna. „Við erum með svo skemmtilegt útsýni yfir höfn- ina,“ tekur hún fram að lokum. - gun Karnivalstemning á Granda Sigríður Guðlaugsdóttir og Petra Dís Magnúsdóttir með kaffihúsið Bryggjuna og Sjóminjasafnið Grandagarði í baksýn. Þaðan er skemmtilegt útsýni yfir höfnina og þar með flugeldasýninguna á menningarnótt. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Skotturnar, regnhlífarsamtök kvennahreyfingarinnar á Íslandi, standa fyrir uppákom- um í kvennafrítjaldi á Austur- velli frá klukkan 13 til 23. Ætlunin er að skemmta gestum menningarnætur en einnig að vekja athygli á sjálfum kvennafrídegin- um sem haldinn verður sunnudag- inn 24. október. En þá fer fram al- þjóðleg ráðstefna í Reykjavík undir yfirskriftinni Konur gegn kyn- bundnu ofbeldi. Dagskráin í kvennafrítjaldinu hefst klukkan 13 þegar Guðrún Jónsdóttir, stjórnarformaður Skott- anna, kynnir Skotturnar og kvenna- frídaginn. Leikkonan Eline Mckay les upp úr Þórubókunum og nýkjör- in Besta fjallkonan 2010, Ólöf Ing- ólfsdóttir, les ljóð í fullum skrúða. Ýmis tónlistaratriði vera í boði. Á meðal þeirra sem koma fram eru Þórunn Lárusdóttir, Sigríður Eyrún Friðriksdóttir og Þórunn Antonía. Klukkan 20 verður flutt brot úr ein- leiknum MAMMA – ÉG eftir Lilju Katrínu Gunnarsdóttur og klukk- an 21 munu 3 Raddir og Beatur skemmta gestum. Skotturnar standa einnig fyrir söfnun á gömlum snyrtivörum sem konur geta komið með, en listamenn munu útbúa úr þeim listaverk sem kynnt verður á kvennafrídaginn í október. - sg Hitað upp fyrir kvennafrídaginn Bryndís Bjarnason og Þórdís Elva Þorvaldsdóttir rithöfundur á Austurvelli þar sem hitað verður upp fyrir kvennafrídaginn á menningarnótt með ýmsum uppákomum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI 2:1 í tilefni Menningarnætur SJÓ- STANGVEIÐI Bjóðum einnig upp á sjóstangveiði, þú getur grillað um borð eða tekið veiðina með heim. ALLA DAGA kl. 18 Puffin Express / Gömlu höfninni / Reykjavík / 892 0099 2 fyrir 1 alla helgina! HVALA- SKOÐUN 3 FERÐIR DAGLEGA Kl. 10, 14 og 17 NASA TÓNLISTARHÁTÍÐ Föstudag 20. Ágúst kl. 21 – 02 Húsið opnar kl. 9 Happy Hour til kl. 10 Íslenska söngkonan STÍNA AUGUST Elektro Rokk Pop Hljómsveitin N I S T A Jasstríó Bjössa Thor Sérstakur gestur kvöldsins: JóhannG JAM SESSION Stína og JóhannG árita nýjustu útgáfur sínar: Concrete World og JohannG In English sem verða til sölu á staðnum JASS, BLÚS, ELEKTRO, POP, ROKK! Upptaktur fyrir Jasshátíð og Menningarnótt! Aðgangur aðeins kr. 1000 Nú er tækifæri til að sletta úr klaufunum

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.