Fréttablaðið - 19.08.2010, Síða 38
19. ÁGÚST 2010 FIMMTUDAGUR8 ● fréttablaðið ● menningarnótt
Vodafone fjármagnar flugelda-
sýninguna á menningarnótt í ár
og tekur þar með við af Orku-
veitu Reykjavíkur sem hefur gert
það hingað til. Fjárhagserfiðleik-
ar Orkuveitunnar urðu til þess að
leitað var á ný mið.
„Við fengum þetta tækifæri í
hendurnar og ákváðum að slá til
enda lítum við á flugeldasýning-
una sem hápunkt menningarnæt-
ur,“ segir Hrannar Pétursson, upp-
lýsingafulltrúi Vodafone. Hann
segir ánægjulegt að geta tekið þátt
í menningarnótt með jafn vegleg-
um hætti. Framkvæmd flugelda-
sýningarinnar er í höndum Hjálp-
arsveitar skáta í Reykjavík og á
Hrannar von á því að hún verði
með svipuðu sniði og áður. „Fram-
kvæmdin hefur verið með miklum
myndarbrag síðustu ár og er engin
ástæða til að breyta henni.“
Hrannar segir sýninguna kosta í
kringum þrjár milljónir. „Það jafn-
gildir um þrjátíu krónum á hvern
viðskiptavin okkar. Ef við mynd-
um senda hverjum og einum bréf
og þakka fyrir viðskiptin myndi
það ekki duga fyrir frímerkjunum.
Það er líka miklu skemmtilegra að
gera eitthvað þessu líkt auk þess
sem við fáum tækifæri til að láta
gott af okkur leiða enda geta allir
gestir menningarnætur notið með.
- ve
Vodafone tekur við
Flugeldasýningin á menningarnótt verður í boði Vodafone að þessu sinni en hún
hefur hingað til verið kostuð af Orkuveitu Reykjavíkur.
● MORGUNTÓNLEIKAR UMBOÐSMANNS BARNA
„Við tökum daginn snemma og
bjóðum á morguntónleika flautu-
hópsins Kósí klukkan 11.30 í húsa-
kynnum okkar við Laugaveg 13, en
Kósí samanstendur af átta stúlkum á
aldrinum 13 til 18 ára sem allar hafa
lagt stund á þverflautuleik hjá Tón-
skóla Kópavogs og Tónskóla Sigur-
sveins frá barnæsku,“ segir Eðvald
Einar Stefánsson, sérfræðingur hjá
Umboðsmanni barna, sem í fyrra tók
þátt í menningarnótt í fyrsta sinn.
„Við höldum ótrauð áfram með
gleði í hjarta og höldum menningu barna og unglinga á lofti því þeirra
list þarf að koma á framfæri. Á veggjum sýnum við myndlist barna sem
tóku þátt í verkefninu „Hvernig er að vera barn á Íslandi?“ og klukkan
12.30 stígur trúbadorinn Jóhann Auðunn Þorsteinsson á stokk með
gítarinn og lofar góðri skemmtun, en hann keppti meðal annars fyrir
Tækniskólans hönd í Söngkeppni framhaldsskólanna,“ segir Eðvald og
bætir við að markmið stofnunarinnar með þátttöku í menningarnótt sé
að vekja athygli landsmanna á staðsetningu hennar við Laugaveg. „Við
viljum sýna fólki hvar við erum svo allir geti komið óhikað því við viljum
taka á móti öllum þeim sem þurfa á aðstoð okkar að halda.“ - þlg
Eðvald Einar Stefánsson með fagurt
listaverk barns í baksýn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Nýstárleg heimagerð barna-
leikföng verða til sýnis hjá
mynd listarkonunni Stellu Sig-
urgeirsdóttur á laugardaginn.
Stella heldur upp á tíu ára vinnu-
stofuafmæli milli klukkan eitt og
fjögur á laugardaginn. Hún selur
líka grafík og málverk á spottprís.
Vinnustofan er í kjallara á Hverf-
isgötu 50, nánar tiltekið á horni
Hverfisgötu og Vatnsstígs.
„Þetta eru tréeldavélar sem eru
búnar til úr gömlum stólum og
engar tvær eru alveg eins,“ segir
Stella glaðlega þegar hún er spurð
út í barnaleikföngin sem hún verð-
ur með á vinnustofunni. Þarna er
um fjölnotahlut að ræða því eins og
hún bendir á er hægt að nota elda-
vélarnar sem kolla til að stíga upp
á, náttborð eða aðra hirslu og sæti
að grípa til ef aukagest ber að garði.
Hún lýsir líka töfragripum sem hún
kveðst gera úr trérimlagardínum.
„Ég tek þær sundur og hnýti svo
saman á vissan hátt með silkiborð-
um. Það er ekkert ýkja flókið ferli
en þó alls ekki fyrirhafnarlítið. Oft
er svo löng leið að einhverju sem er
einfalt en skemmtilegt.“
Stella er þekkt fyrir fjölbreytta
list sína en hefur ekki verið með
opna vinnustofu áður á menningar-
nótt. „Það er smáafmæli og því datt
mér í hug að leyfa fólki að sjá það
sem ég hef verið að fást við upp á
síðkastið,“ segir hún sposk og lýsir
nánar hvernig það kom til að hún
fór að smíða leikföng. „Þetta er
eitthvað sem æxlaðist svona af því
ég var sjálf að leita að tréeldavél
handa dóttur minni og fann enga
svo það endaði með því að ég bjó
hana til sjálf úr gömlum stól. Þetta
uppátæki spurðist út og ég fór að
gera fleiri eldavélar eftir pöntun-
um. Þannig byrjaði þetta nú.“
Svo verður listaverkasala í gangi
líka. „Mér finnst vera kominn tími
á endurnýjun því á tíu árum ger-
ist ýmislegt. Því ætla ég að selja
gömul grafík- og málverk á góðu
verði. Eitthvað sem hefur safnast
upp í gegnum tíðina. Það er svona
nett tiltekt í gangi.“ - gun
Smíðar fjölnotagripi upp
úr gömlum stólum
Forvitnileg endurvinnsla er í gangi á vinnustofunni hjá Stellu sem verður opin milli eitt og fjögur á laugardag. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
● MEÐ BER BÖK UM BORGINA Hjólreiðafólk mun fara í lest um miðborgina á menningarnótt. „Við viljum
vekja athygli á hjólreiðum sem jákvæðum valkosti bæði fyrir umhverfið og pyngjuna. Svo eru þær góðar fyrir and-
lega og líkamlega heilsu því þær veita frelsistilfinningu og gleði,“ segir Morten Lange á fallegri íslensku þó norsk-
ur sé að uppruna. Hann eignar Þóru Bryndísi Þórisdóttur heiðurinn af að hafa komið hjólreiðaátakinu af stað. En
hvaðan verður lagt upp í lestarferðina? „Við ætlum að hittast bak við Kjarvalsstaði og
förum þaðan klukkan þrjú,“ segir Morten. „Svo reynum við sennilega að gera eins
og í fyrra að þeir sem þora fara úr að ofan og láta skrifa slagorð á bakið á
sér „grænn og vænn“ og önnur álíka.“
Morten getur þess líka að Einar Karlsson hjá Höfuðborgarstofu verði
með sérstakan bás í Geirsgötunni þar sem hann gefi góð ráð um
hvaðeina sem að hjólreiðum snýr og stórt kort til sýnis af hjólastígum á
höfuðborgarsvæðinu. -gun