Fréttablaðið - 19.08.2010, Síða 56
28 19. ágúst 2010 FIMMTUDAGUR
BAKÞANKAR
Charlotte
Böving
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Ég er leikhúsmaður (-kona) og vinna mín krefst þess að ég geti sagt sögur. Ekki
bara sannar sögur, heldur líka sögur á
mörkum sannleikans. Það hefur mér alltaf
þótt erfitt.
SEM barn var ég feimin og mér datt ekki í
hug að segja ósatt. Ég var alveg nógu tauga-
trekkt samt. Tilhugsunin ein gerði mig ótta-
slegna og mér fannst ég með slíku myndi
grafa mína eigin gröf. Þegar ég var tíu ára
tók ég meðvitaða ákvörðun um að hætta
þessari feimni og vandi mig á að horfa beint
í augun á fólki sem ég talaði við. Um svipað
leyti fór ég að rannsaka heim lyginnar. Á
þeim tíma sagði ég mína fyrstu lygasögu.
ÉG var í sumarbústað með vinkonu. Hún
var einbirni og mér þótti hún fá allt sem
maður mögulega gat óskað sér. Meðal ann-
ars var mamma hennar heimavinnandi og
hafði alltaf tíma til að baka. Í þetta skipt-
ið hafði hún bakað græna bananaköku. Ég
átti ekki til orð. Ég kannaðist við venju-
legar brúnar bananakökur, en græn var
eitthvað alveg nýtt og stórmerkilegt.
„HEFURÐU smakkað græna ban-
anaköku?” spurði vinkona mín
„JÁ“ svaraði ég.
„NÚ? Hvenær?“ spurði hún forvitin.
„EKKI fyrir svo löngu, heima hjá umsjónar-
kennaranum.“
ÞETTA vakti aðdáun hennar. Við vorum öll
svo hrifin af umsjónarkennaranum, sem
var ung, falleg og góð. Að vera boðið heim
til hennar hlaut að vera einstakt.
„ÉG sat í eldhúsinu hjá henni og borðaði
græna bananaköku með börnunum hennar
tveimur … Rosa góð kaka!“
„Á hún börn?“ spurði vinkonan.
„JÁ, hún á strák og stelpu,“ svaraði ég
brött, „það var svaka kósí.“
„MAMMA,“ kallaði vinkona mín og hljóp
til mömmu sinnar, sem sat í stofunni með
vinkonu sinni, drakk kaffi úr fínum post-
ulínsbolla og borðaði græna bananaköku.
„Á Pia, umjónarkennarinn okkar, börn?“
„NEI. Af hverju?“
„LOTTE segir að hún hafi borðað græna
bananaköku heima hjá Piu og börnunum
hennar tveimur.“
ÞÆR horfðu allar á mig. En nýfundni hæfi-
leiki minn að horfa beint í augun á fólki var
horfinn. Það var þá sem ég ákvað að sleppa
lygum. Sannleikurinn getur aldrei verið
verri en það þegar upp kemst um lygina.
Sannleikurinn er sagna bestur
Fjórða hæð,
takk fyrir.
Þarftu
einhverja
hjálp?
Taktu
þennan,
takk
kærlega.
Ég þarf
að sækja
drasl.
Segðu mér,
færðu ekki öll
vítamínin sem
þú þarft, Zlatan?
Nei, þetta
er Slade og
Smokie á
kasettum.
Þetta er
þungt
maður!
Það er svo margt
í gangi í mínu lífi
sem ég skil ekki.
Ég er uppfullur af
spurningum, efa,
ráðleysi og tilfinningum
sem ég þarf að tala um.
Ef þú vilt
hlusta?
Kannski.
Leyfðu
mér að
hjálpa
þér, ég
get
þetta!
Bað Hannes
nokkurn
tímann um
hjálp með
plásturinn?
Líf mitt snýst
um sjálf-
boðavinnu.
1. Matsalur
2. Manchester
3. Snyrtivörur
4. Blekprentarar
5. Barnaföt
6. Heimilistæki