Fréttablaðið - 11.09.2010, Page 16

Fréttablaðið - 11.09.2010, Page 16
16 11. september 2010 LAUGARDAGUR FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is greinar@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 B ót, baráttusamtök gegn fátækt í landinu, hélt fjölmenn- an fund í Ráðhúsi Reykjavíkur í vikunni. Þar kom meðal annars fram hörð gagnrýni á ríkisstjórnina að hafa ekki tryggt betur hag bótaþega, aldraðra og öryrkja, sem marg- ir hverjir búa óumdeilanlega við fátækt og eiga ekki fyrir brýnustu nauðsynjum. Umræðan um fátækt lendir stundum á villigötum, einkum og sér í lagi þegar farið er að ræða um svokallaða hlutfallslega fátækt, en þá teljast allir fátækir sem eru með minna en t.d. helming af miðgildi tekna í landinu. Eðli málsins samkvæmt er aldrei hægt að útrýma fátækt sem er skilgreind svona, sama hversu rík þjóðin verður. Nær er að horfa á hvað fólk þarf sér til lífsviðurværis og reyna að miða lágmarksbætur við það. Guðbjartur Hannesson, verðandi velferðarráðherra, kom inn á þetta í viðtali hér í blaðinu fyrir réttri viku og sagði að setja þyrfti markmið um að tryggja öllum lágmarksframfærslu, þannig væri hægt að eyða fátækt. Ráðherrann benti hins vegar réttilega á að það væri ekki einfalt að finna einn framfærslugrunn, því að fólk lifði mjög ólíku lífi. Guðbjartur sagði að þetta hefði í raun verið gert þegar lágmarks- bætur öryrkja voru settar í 180 þúsund krónur, sem væri fyrir ofan bæði atvinnuleysisbætur og lægstu laun. Það telja margir öryrkjar samt augljóslega ekki nóg og á borgarafundinum voru nefnd mörg dæmi af fólki, sem aðeins á fáeina tugi þúsunda eftir þegar greidd hefur verið húsaleiga og önnur föst útgjöld á mánuði. Núverandi ríkisstjórn kallar sig stundum norræna velferðarstjórn. Meðal annars með vísan til þess er hún gagnrýnd fyrir að hafa ekki tryggt hag aldraðra og öryrkja og séð til þess að lægstu laun dugi fólki til framfærslu. En hvar á að finna peningana? Ríkissjóður er rekinn með gífurlegum halla og mörg fyrirtæki í landinu eru í mjög erfiðri stöðu og hafa takmarkaða möguleika á að borga hærri laun. Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar Íslands, skrifaði áhuga- verða grein í Fréttablaðið í vikunni, þar sem hann segir að í saman- burði Íslands við önnur norræn ríki sé oft einblínt á velferðarkerfið og málaflokka, sem tengjast því. „Sjaldnar er talað um að Norður- löndin byggja í raun á tveimur stoðum, annars vegar á velferðarkerf- inu og hins vegar á vel skipulögðum og öguðum markaðsbúskap sem er aflvélin sem knýr áfram velferðarkerfið,“ skrifar Þórður. Hann bendir á að Ísland sé á eftir frændþjóðunum í þessum efnum. Pólitísk afskipti af markaðnum leiði til sérlausna og jafnvel upptöku samninga, sem gerðir hafi verið í góðri trú. Ráðamenn þvælist fyrir fjárfestingum, til dæmis Magma-málinu og Helguvíkurverkefninu. Sjávarútvegurinn sé í óvissu vegna endurskoðunar kvótakerfisins. Gífurleg höft séu á erlendum fjárfestingum og eingöngu meiri í Kína af 48 löndum, sem voru skoðuð í nýlegri úttekt OECD. Þetta mætti „norræna velferðarstjórnin“ gjarnan hafa í huga þegar hún útlistar markmið sín um að eyða fátækt í landinu. Hvorki laun né bætur munu hækka án þess að hér sé öflugur einkageiri sem býr við agað rekstrarumhverfi. Þaðan koma verðmætin til að útrýma fátækt. Í kosningunum boðaði ríkis-stjórnin að útgerðir og smá-bátasjómenn yrðu sviptir veiðiheimildum í áföngum. Sá fyrsti átti að koma til framkvæmda í þessum mánuði. Jafnframt fylgdi loforð um réttláta endurúthlutun. Engin skilgreining fylgdi þó í hverju réttlætið væri fólgið. Fyrstu breytingar ríkisstjórnar- innar í átt til þess réttlætis sem hún ber fyrir brjósti leiddu til mikilla deilna. Ríkisstjórnin tók þá ákvörð- un um að halda kerfisbreytingum áfram í smáum skömmtum eftir fyr- irmyndum Evrópusambandsríkja en skipa jafnframt sáttanefnd með fulltrúum allra flokka og hags- munasamtaka. Sáttanefndin skilaði niður- stöðum í vik- unni. Þær fela í sér miklar breyt- ingar. Mark- miðin um sjálf- bæra nýtingu og hagkvæmni eru grundvöllur þeirra. Frá sjónarhóli almannahagsmuna ætti það að vera gott og gilt. Hvað gerist þá? Formaður sáttanefndarinnar segir að niðurstaðan sé engin sátt því að hann hafi ekki haft umboð til að semja fyrir ríkisstjórn- ina. Sjávarútvegsráðherra segir að sáttatillagan geti hugsanlega komið til skoðunar eins og aðrar leiðir. Þingmenn stjórnarflokkanna keppast við að skýra út fyrir þjóð- inni að fyrsta verk þeirra verði að henda sáttinni aftur fyrir sig eins og þeir séu syndarar á samkomu hjá Hernum. Með öðrum orðum: Sáttin fór í upplausn á fyrsta degi. Sáttin sett í upplausn SPOTTIÐ ÞORSTEINN PÁLSSON AF KÖGUNARHÓLI ÞORSTEINS PÁLSSONAR Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is SKOÐUN Hvers vegna er þessi þraut svo þung? Í leit að svari við þessari spurningu er rétt að gæta að því að hugmyndir manna um réttlæt- ið eru afar fjölbreytilegar. Þegar til á að taka rekast margar þeirra á. Vegna náttúrulegra takmarkana er ekki unnt að fullnægja öllum óskum um réttlæti. Núverandi kerfi er arðsamt og skattborgararnir þurfa ekki að styrkja útgerðina eins og í flest- um ríkjum Evrópusambandsins. Á kerfinu voru færri göt en eru í reglum Evrópusambandsríkjanna og því tiltölulega auðvelt að ná markmiðinu um sjálfbæra nýtingu. Minnihluti þjóðarinnar lítur svo á að þessi atriði þjóni almannahags- munum og því sé kerfið skynsam- legt og jafnvel réttlátt. Stjórnarflokkarnir sjá réttlætið í öðru ljósi eins og þorri almenn- ings. Með því að auðlindin er þjóð- areign felst réttlætið í því að fjölga bátum, fiskiskipum, sjómönnum, fiskvinnslustöðvum og fiskverka- fólki. Ekki er unnt að bera á móti því að þetta er á sinn hátt réttlátt fyrir þá sem fá viðbótarstörfin. Frá öðru sjónarhorni er þetta þó gæsla sérhagsmuna í þágu þeirra sem fá þau. Vandinn er sá að auðlindin er takmörkuð. Ný fjárfesting og fjölg- un starfa eykur því ekki heildar- tekjur en gerir kostnaðinn miklu meiri. Skattgreiðendurnir, hinir raunverulegu eigendur auðlind- arinnar, verða þá að borga brús- ann fyrir réttlætið eins og í Evr- ópusambandinu. Þeir eru til sem finnst það óréttlátt. Sumir stuðningsmenn Samfylk- ingarinnar fallast á rök minni- hluta þjóðarinnar um hagkvæmni og sjálfbæra nýtingu ef þeir sem afnotaréttinn hafa greiða skyn- samlegt gjald fyrir. Sjálfstæðis- flokkurinn og margir hagsmuna- aðilar í sjávarútvegi féllust á þetta sjónarmið í sáttanefndinni og kröf- una um gleggri afmörkun á nýting- arréttinum. Niðurstaðan er að því leyti merkileg. Þegar gildishlaðin stóryrðin hafa verið tekin út úr umræðunni blas- ir við að kjarni deilunnar snýst um félagsleg markmið fleiri atvinnu- tækifæra eða kröfur um arðsemi. Flestir vilja þó ganga bæði í aust- ur og vestur. Eftir lögmáli nátt- úrunnar enda þeir með að snúast í hring. Þess vegna er erfitt að ná niðurstöðu. Réttlætið Ríkisstjórnin bauð til við-ræðna um breiða sátt í sjávarútvegsmálum. Þegar hún liggur fyrir getur stjórnin ekki samþykkt sáttina vegna innbyrðis ágreinings. Hnútum er svo hent í þá sem að sáttinni stóðu. Ríkisstjórnin bað aðila vinnu- markaðarins um stöðugleikasátt- mála. Hún gat ekki efnt sinn hluta vegna ágreinings í eigin röðum. Þá réðist fyrrverandi félagsmálaráð- herra á forseta Alþýðusambands- ins og bar honum á brýn stéttasam- vinnu. Það er versta skammaryrðið í orðabók stéttastríðshugmyndafræð- innar. Ríkisstjórnin hefur tvívegis gert samninga við Breta og Hollendinga um lausn á Icesave. Í hvorugt skiptið hefur hún haft styrk til að ljúka mál- inu. Eftir breytingar á ríkisstjórn- inni er sú staða óbreytt. Þá kallar nýr efnahagsráðherra á samstöðu með stjórnarandstöðunni. Meirihluti Alþingis fól ríkisstjórn- inni að sækja um aðild að Evrópu- sambandinu. Áhrifaríkari stjórn- arflokkurinn vinnur svo af öllu afli gegn þeirri ákvörðun. Eftir því gildismati sem fyrrum ríkti í stjórnmálum voru vinnubrögð af þessu tagi ekki viðurkennd; svo ekki sé tekið dýpra í árinni. Slík háttsemi er aftur á móti eftir nýju gildismati á Alþingi skilgreind sem hæsta stig lýðræðis. Enn eru þeir þó til sem finnst að þessi skilgreining á lýðræðisþroska byggist á gildismati sömu upphafn- ingar og leiddi til hruns krónunnar og bankanna. Hæsta stig lýðræðis? Glæsilegt ósamsett hús til sölu. 170 m² innflutt sumarhús. Húsið afhendist í gámum og fylgja innréttingar, plankaparket á gólf og panell á veggi. Vandað og gott hús Upplýsingar : Þórhallur sími 896 8232. Er hægt að útrýma fátækt á Íslandi? Hvar verða verðmætin til?
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.