Fréttablaðið - 11.09.2010, Qupperneq 22
22 11. september 2010 LAUGARDAGUR
FRAMHALD Á SÍÐU 24
Á
lfheiður Ingadótt-
ir tók við embætti
heilbrigðisráðherra
1. október 2009. Hún
segir það hafa verið
stórt skref fyrir sig
persónulega enda tímapunkturinn
viðkvæmur í fleiri en einum skiln-
ingi. Kallið kom með litlum fyrir-
vara og verkefnin risavaxin.
Eru það ekki vonbrigði að hafa
aðeins setið í tæpt ár í stóli heil-
brigðisráðherra?
„Nei, í sjálfu sér ekki. Þetta var
óvænt tækifæri. Ég datt þarna inn
um miðja nótt við mjög sérkenni-
legar og erfiðar aðstæður. Ekki
bara í samfélaginu vegna efna-
hagshrunsins heldur líka innan
flokksins. Ögmundur hafði sagt
sig frá þessum verkum og úr rík-
isstjórn. Þess vegna var þetta erf-
itt og óvænt en einnig mikið tæki-
færi. Ég er sátt þegar ég lít yfir
þetta ár. Ég hefði viljað halda
áfram verkefnanna vegna en ég
veit að þau eru í góðum höndum.
Svo eru verkefnin líka ærin utan
ráðuneyta fyrir þingmenn ríkis-
stjórnarinnar.“
Hvar er heilbrigðisþjónustan
stödd?
„Mér finnst við hafa náð að
halda sjó í heilbrigðisþjónust-
unni og miðað nokkuð áfram,
þrátt fyrir erfiða tíma. Það er
verið að byggja upp til framtíðar
þrátt fyrir niðurskurð, til dæmis
með nýjum Landspítala. Það er ég
ánægð með og eins kom það mér
þægilega á óvart hvað stefnumál
mín og Vinstri grænna eiga mik-
inn hljómgrunn innan heilbrigðis-
þjónustunnar.
Samfélagið allt hefur breyst
og kröfurnar um leið. Einkavæð-
ingaráformin, sem voru hluti
af frjálshyggjunni og haldið
var hátt á lofti, ristu ekki djúpt
innan heilbrigðisþjónustunnar.
Þessi áhersla lá hjá stjórnmála-
mönnunum. Stefna míns flokks
um samfélagslega ábyrgð stend-
ur hins vegar styrkum stoðum
meðal þeirra sem starfa innan
þessa geira. Ég get nefnt áhersl-
una á að styrkja heilsugæsluna
og gera hana þverfaglega; að það
verði ekki bara læknar og hjúkr-
unarfræðingar heldur líka aðrar
heilbrigðisstéttir sem komi þar
að. Þetta er nokkuð sem ég setti
í nýjan farveg og nefnd sem ég
stofnaði gerir tillögur meðal ann-
ars um tilvísanakerfi, forvakt
og öfluga heilsugæslu og heima-
þjónustu. Eins eru allir sammála
um að styrkja þarf heilsugæslu í
skólunum, tannvernd get ég líka
nefnt og fleira. Efling heilsugæsl-
unnar er mjög brýn, ekki síst hér
á höfuðborgarsvæðinu, en það
er staðreynd að heilsugæslan er
miklu betri víða út um land. Ég
nefni Akureyri þar sem sveitar-
félagið annast heilsugæsluna.
Það er fyrirkomulag sem hefur
verið á stefnuskrá okkar lengi og
menn eru nú tilbúnir að ræða í
víðara samhengi. Það sama á við
um tilvísanakerfið sem var bann-
orð fyrir ekki löngu. Nú hafa við-
horfin breyst, sama við hvern er
rætt, allir eru tilbúnir – ekki bara
að ræða málin, heldur koma með
tillögur og leggja drög að slíku
kerfi. Í þessu samhengi verður þó
að muna að það er ómögulegt að
taka upp tilvísanakerfi öðruvísi
en að efla heilsugæsluna veru-
lega.“
Hvernig er mögulegt að ef la
heilsugæsluna?
„Með því meðal annars að fjölga
heilsugæslulæknum og styrkja
svokallaða fjölskylduhjúkrun. Það
hefur komið fram að stétt heilsu-
gæslulækna eldist hratt og lítið
var sótt í námið. Hins vegar hefur
einnig orðið viðhorfsbreyting þar.
Fimm námsstöður voru auglýst-
ar í vor og nítján sóttu um. Það
er skylda stjórnvalda að bregðast
við þessum áhuga. Námsstöðurn-
ar voru komnar niður í átta, við
gátum fjölgað þeim upp í tólf en
tillögur í áfangaskýrslu vinnu-
hóps frá því í sumar eru að þær
verði 25 á ári. Það þarf átak til að
manna heilsugæsluna upp á nýtt
og ég trúi að því hafi nú verið ýtt
úr vör.“
Hefur ekki allt of mikil áhersla
verið lögð á sjúkrahúsþáttinn
í rekstri heilbrigðisstofnana á
kostnað heilsugæslunnar?
Jú, það er mín skoðun. Það er
mögulegt að spara mikla fjármuni
og veita jafngóða eða betri þjón-
ustu með breyttum áherslum og
veita hana á viðeigandi stað í kerf-
inu. Það þarf líka að laga þjónust-
una að breyttum tímum. Menn
lifa núorðið lengi, jafnvel árum og
áratugum saman eftir að hafa bar-
ist við illvíga sjúkdóma eða lang-
vinna eins og til dæmis sykursýki.
Í stað þess að rétta fólki staf er
skipt um mjaðmarlið. Það þarf
að koma til móts við þessa þróun,
styrkja heilsugæslu, göngudeild-
ir og þjónustu við króníska sjúk-
linga. Góð heilbrigðisþjónusta
snýst ekki bara um það að leggja
fólk inn heldur einnig um forvarn-
ir og þjónustu utan spítalanna,
meðal annars með heimahjúkrun
og í skólunum.“
Hvaða skoðun hefur þú á þeirri
pólitík að fimm heilbrigðisráð-
herrar hafa komið og farið á mjög
stuttum tíma, sennilega á jafn
mörgum árum. Standa svo tíð
mannaskipti ekki árangri fyrir
þrifum?
„Eflaust er erfitt fyrir starfs-
menn ráðuneytanna að setja
sífellt nýja menn inn í málin og
átta sig á því hver persónuleiki
viðkomandi er og pólitísk afstaða.
En fyrst og fremst er þetta erfitt
þegar um stór pólitísk álitamál er
að ræða. Þegar ég kom að ráðu-
neytinu höfðu pólitískir stórsjóir
gengið yfir það aftur og aftur. Í
stjórn Sjálfstæðisflokks og Sam-
fylkingar, með Guðlaug Þór Þórð-
arson á ráðherrastóli, sveif einka-
væðingarstefnan yfir öllu, þó
margt hafi verið vel gert. Það átti
að útvista stórt sem smátt og það
voru átök um þessa markaðsvæð-
ingu innan heilbrigðisþjónustunn-
ar eins og annars staðar í samfé-
laginu. Markaðurinn átti að ráða
för, skipulagi og gæðum þjónust-
unnar. Sjúkratryggingastofnun
Íslands, sem sett var á stofn með
mjög sérstökum hætti árið 2008,
var liður í þessari þróun. Þegar
Ögmundur kom þarna inn 1.
febrúar 2009 og ég svo um haustið
verður pólitísk kúvending í ráðu-
neytinu, pólitísk kúvending sem
varð reyndar í samfélaginu öllu.
Pólitísk kúvending átti sér stað
Álfheiður Ingadóttir segist stíga sátt upp úr stóli heilbrigðisráðherra en saknar þess þó að ná ekki að leiða nokkur mál til lykta.
Hún segir það vissan létti að vakna án þeirrar ábyrgðar sem heilbrigðisráðherra ber á herðum sér dag frá degi. Mikilla breytinga
er að vænta í heilbrigðismálum, eins og Svavar Hávarðsson komst að. Sumar verða óvinsælar, aðrar gríðarleg réttarbót.
Ég datt þarna inn um miðja nótt við mjög sérkennilegar
og erfiðar aðstæður. Ekki bara í samfélaginu vegna efna-
hagshrunsins heldur líka innan flokksins. Ögmundur
hafði sagt sig frá þessum verkum og úr ríkisstjórn. Þess
vegna var þetta erfitt og óvænt en einnig mikið tækifæri.
SÁTT VIÐ NÝFENGIÐ FRELSI Álfheiður Ingadóttir fékk heilbrigðisráðuneytið í fangið með litlum fyrirvara. Hún stendur stolt upp úr stóli en sér fram á miklar breytingar. Sumar verða óvinsælar að hennar sögn, aðrar breyt-
ingar varða leiðréttingu á réttindamálum sem lengi hafa verið í umræðunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI