Morgunn - 01.06.1928, Qupperneq 139
MORQUNN
133
neina hugmynd um, að væru látnir. Þann veg lítur og pró-
fessor Richet á málið — ])ó að hann verjist annars spíri-
tistisku skýringunni á dularfullum fyrirbrigðum af
fremsta megni. Hann kannast við það, að þessi fyrirbrigði,
sem hér er um að tefla, verði skiljanlegri eftir andahyggju
skýringunni, en eftir nokkurri annari skýringu, og hann
tekur svo djúpt í árinni, að af öllum staðreyndum, er
menn hafi borið fyrir sig sem sannanir fyrir öðru lífi,
séu þessar staðreyndir örðugastar viðureignar fyrir efnis-
hyggjumenn.
Sögurnar eru einstaklega hugnæmar og bókin kostar
ekki nema 3 sh. og 6 pence.
,T. Artliur Hill: Pron» AK'iioKticÍNiu to
licllcf. An Account of Further Evidence
for Survival. Methuon &. Co. Ltd. London.
Höf. er einn af hinum merkustu sálarrannsókna-
wönnum Englendinga, með afbrigðum gætinn í ályktun-
um sínum og óvenjulega hugnæmur, víðsýnn og sann-
rnentaður rithöfundur. Eins og titill bókarinnar ber með
sér, byrjaði hann sem ákveðinn efasemdamaður. Oss virð-
!st sem henni verði ekki betur lýst í stuttu máli en með
oi’ðum höf sjálfs í formálanum. Hann segir þar m. a.:
„Bókin lýsir leið minni til trúar frá sannfæringunni
Um, að ekkert sé unt að vita um andlegan heim og annað
Wf. Það var árangur sálarrannsóknanna, sem gerði mér
^®rt að komast þessa leið; en einkum rannsóknir sjálfs
mín.“
„Eg býst ekki við því að snúa neinum til minnar trú-
ar- Mig langar jafnvel ekki til þess að gera það; því
trú í slíkum efnum ætti að vera hægfara gróður,
sem athugaður er vandlega við og við, eftir ]>ví sem
neynslan vex. Rannsóknarmenn ættu að kanna vöru-
birgðir sínar, ef svo mætti að orði komast, með eins
ars eða tveggja ára fresti, afla sér rólega yfirlits yfir
Mt sem komið hefir í sannanáttina, og reyna að hug^a