Morgunn - 01.06.1943, Blaðsíða 35
MORGUNN
29
gjörn, þrá og ósanngjörn úr hófi fram, en sjálfstæðan
vilja á hún þó ekki. Ég myndi ekki öfunda þann, er kvænt-
ist henni.
Ég verð vör við ýmsa menn í kringum hana, hún gefur
þeim undir fótinn, en hverflyndi hennar veldur því, að
ekkert verður úr neinu. Hún giftist samt um síðir, ég sé
að hún á eftir að eignast dreng. Vinstúlka hennar leitast
við að koma henni í hjónaband.
Hún á systir, sem er gagnólík henni. Móðir hennar er
hugsjúk og raunamædd vegna dóttur sinnar, hún er fá-
orð og hæglát og segir ekki mikið. Hún á eftir að hljóta
margar mæðustundir vegna dóttur sinnar.
Fyrr eða síðar kemst hún í vanda vegna ævintýra dótt-
ur sinnar, sem er hverflynd og óhemjuleg í siðgæðismál-
um, en það veldur henni margskonar óþægindum og
árekstrum. Framtíð hennar er dökkum rúnum dregin,
mér lízt ekki á hana. Sálarlíf hennar er torráðinn leyndar-
dómur. Góðum og göfugum tilfinningum bregður þó stund-
um fyrir í sálarlífi hennar, en því miður visna þær um
leið og þær verða til. Hún blundar öðru hvoru, en nýtur
aldrei raunverulegs svefns. Hún er undarleg með köflum.
Karlmenn, daður, munaður og nautnir er lífsáhugamál
hennar, hún er hættuleg eins og eiturslanga.
Hún horfir á yður opnum augum og sljóum svip. Hún
er munaðar- og nautnasjúk kona. Þetta stafar þó ekki frá
óeðlilegri starfsemi taugakerfisins. Hún ímyndar sér við- n
burði, hugsar upp ævintýri og nýtur þeirra betur í ímynd-
unum sínum en veruleikanum. Hún leitar sí og æ að
mannsefni. Hún er kona, sem þyrfti að lúta eiginmanni
sínum, jafnvel löðrungur gæti verið henni nauðsyn“.
Umsögn dr. Osty’s:
Ég er sannfærður um, að þótt eitthvað mætti leggja upp
úr umsögn ungfrú Berley, þá væri hún að minnsta kosti
firrum og öfgum blandin og vitanlega væri sjálfsagt að
nota staðhæfingar hennar með ýtrustu varfærni, ef þá