Morgunn - 01.06.1943, Side 65
MORGUNN
59
lag við ójarðneskar verur og taka leiðsögn þeirra. Sé sú
staðreynd ekki höfð í huga, er engan skynsamlegan dóm
hægt að leggja á þá, líf þeirra og störf.
Þegar þessir miklu feður ísraelsþjóðarinnar voru liðn-
ir, hófust niðurlægingartímar í lífi þjóðarinnar, sem bein-
h'nis má sjá að stafað hefir af því, að þá virðast hinar
sálrænu gáfur hafa fjarað út um hríð, enginn sýnist þá
um skeið hafa haft þær í svo ríkum mæli, að hann gæti
tekið að sér forystu þjóðarinnar. Þess vegna verður þá
lægð í lífi hennar, unz sá maðurinn kemur fram, sem ber
af öllum, sem áður höfðu verið höfðingjar í ísrael, enda
er hann einn af stórkostlegustu miðlunum, sem mannkyn-
ið hefir þekkt, einn af voldugustu kraftaverkamönnum
allra tíma, sem það er sjálfur
MÓSES.
Hið mikla köllunarverk hans var, að leysa þjóð sína úr
ánauðinni í Egyptalandi, sem hún hafði fallið í, eftir að
andagáfurnar þurru og enginn gat orðið leiðtogi, enginn
orðið miðill fyrir þá handleiðslu, sem þjóðinni stóð til
boða frá þeim æðri máttarvöldum, er höfðu leitt hana
áður með hjálp þeirra Abrahams, ísaks, Jakobs og Jósefs.
Köllun sína fær Móses með sálrænum hætti. Hann er að
gæta sauða tengdaföður síns, þegar honum birtist anda-
vera í þyrnirunni, sem logar en brennur þó ekki. Eldinn,
sem logar en brennur ekki, þekkjum vér af sálrænum
fyrirbrigðum enn í dag. Móse veit ekki, hvað er að gerast
og hann vill ganga nær, en veran í ljósinu kallar til hans,
að það megi hann ekki. Þetta þekkjum vér einnig enn, að
menn mega ekki koma of nálægt, eða snerta andaveru,
sem er að holdgast. Þessi vera segir Móse nú, að hún sé
hin sama, sem hafi birzt feðrum hans, þeim Abraham,
Isak og Jakob, og boðar honum allt, sem æðri völd hafi
kjörið hann til að vinna fyrir þjóð sína.
Og nú hefst ævistarf Móse, sem er þrungið sálrænum