Morgunn


Morgunn - 01.06.1956, Page 13

Morgunn - 01.06.1956, Page 13
MORGUNN 7 komst eins og geisli í grafarhúm kalt“, segir Stefán G. um vantrúna, — og þó að þetta sé ef til vill sjaldgæft, er ekki astæða til að efa orð skáldsins um reynslu sína. Það getur verið mikill andlegur léttir, að losna við þröngar og óskyn- samlegar kenningar, kenningar, sem gera lífið gleðisnauð- ara, tilveruna óskiljanlegri og ægilegri en annars myndi vera. Það er bót að losna við hjátrú og ótta við eilífa út- skúfun. Það er hugfróun að vera laus við hugmyndina um reiðan guð, sem þarf blóðfórna til að sefast og geta fyrir- gefið. Það eru eflaust margir, sem eru sárglaðir yfir að Vera lausir við kenningar kristinnar kirkju um þrenn- ingarlærdóminn, yfirnáttúrlegan getnað Jesú, syndafall- lð og friðþæginguna. Reyndar má leggja þessar kenning- kr þannig út, að þær verði að einhverju leyti sannar í óeiginlegri merkingu, og þær virðast lífsnauðsyn fyrir suma. Þess vegna er ef til vill heppilegt að láta þær ganga sér til húðar óáreittar, unz þróunin eyðir þeim smátt og smátt, og annað betra kemur í staðinn. Boðskapurinn um föðurkærleika guðs hlýtur að vera aðalatriði kristindóms- ins. Það er að vísu erfitt að trúa á hann út frá reynslu og gangi þessa heims, en því dásamlegri er vissa Jesú um þann ltærleika, um það, að tilveran sé í innsta eðli sínu góð °g kærleiksrík. Markús Árelíus Rómverjakeisari (161—180 e. K.), hinn Ugætasti maður, er í „Hugleiðingum“ sínum á báðum átt- um um það, hvort sé eðli tilverunnar, „guðirnir eða atóm- ln“, hvort heiminum ráði forsjón, gædd skynsemi og kær- leika, eða blind hending. En hann lifði í þeirri trú, að allt samverkaði til góðs, og þó hafði hann enga vissu né fasta trÚ á lífi eftir þetta. Dæmi hans sýnir, hve langt og hátt Uiá komast á möguleikanum einum saman, án stuðnings trá æðri opinberun. Að vísu er lífsskoðun hans göfug og kreystileg, hann sá fánýti allra veraldlegra hluta, en lifði þess að gera skyldu sína. En hugblær hans er dapur- legur, þar vantar hina björtu von. Þar vantar hina öruggu fullvissu, sem Jesús hafði til að bera, — hið einfalda,
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.