Morgunn - 01.06.1956, Qupperneq 17
MORGUNN
11
úr hverju blómi, og- þennan frið og fögnuð fylla sálina,
það veitir manni aukna lífsgleði og bjartsýni, sem jafnvel
hinar ömurlegu sýnir, sem stundum ber fyrir augu mín,
geta ekki skyggt á. Ég hefi alltaf, jafnhliða tilfinningunni
um raunveruleik þessara vansælustaða, fundið og séð, að
tjáningar þeirra, sem dvelja á dimmum tilverustigum,
eru tímanlegar, og fara smáminnkandi eftir því, sem löng-
unin vex eftir meiri þroska og fullkomnun, og sálin hreins-
ast af sora og eygir möguleika sína til æðra lífs. En að
líðanin á þessum stöðum er ekki góð, leynir sér ekki, því
Þar er allt að mestu hulið rökkri eða gráleitri móðu, bæði
menn og umhverfi. Þar virðist kyrrstaðan vera aðalein-
kennið, allt er eins og staðnað, tíminn virðist standa kyrr.
Kæruleysi, kuldi og jafnframt vonleysi andar á móti
manni, — og ef um virka illsku eða áreitni virðist vera
að ræða frá einhverri af þessum vansælu verum, þá fyll-
ist maður svo mikilli ógn og skelfingu, að það líkist ekki
Ueinum ótta, sem grípur hugann við að mæta mannvonzku
hérna megin grafar. Þegar ég hefi verið að reyna að skil-
greina þessa miklu óttatilfinningu, þá hefir sú niðurstaða,
sem ég hefi komizt næst, verið sú, að á jarðsviðinu getur
maður bjargað sér úr bráðri hættu, ef maður kemur lík-
amanum undan, en í þessu ástandi mínu, sem ég hefi lýst,
eru engar fjarlægðir til, og ég þekki ekki nógu vel lögmál
bess að vera líkamalaus, til þess að geta varizt, og hefir
Því endirinn verið sá, ef ill áhrif hafa beinzt að mér, að
ég hefi í ofboði leitað hælis í líkamanum og fundið þar
öruggt skjól.
En þegar ég hefi getað verið rólegur athugandi þessara
rölckursviða, þá hefi ég séð og fundið, að þessi vansæla er
tiltölulega skammvinn, að þessi dvalarstaður er umkringd-
Ur æðri verum, sem bíða færis að hjálpa, og að sálirnar
opni sig fyrir og veiti viðtöku kærleika þeirra og ástúð,
Því að út frá hinum dimmu stöðum sé ég rofa til í rökkr-
mu. Þar utar er bjart og þar eru geislandi verur á hreyf-
mgu. Ég finn að það eru andlega sterkar verur, sem eru