Morgunn - 01.06.1959, Page 21
MORGUNN
15
megin tjaldsins, hlyti sú vitneskja að vera það, sem
heimurinn þarfnaðist mest á þessum þrengingarárum.
Þegar Conan Doyle hafði, fyrir eigin rannsóknir, öðl-
azt fulla sannfæringu um, að sambandið væri mögulegt
og að spiritistar byggðu kenningar sínar á staðreyndum,
stóð ekki á honum að standa við þessa sannfæringu sína.
Árið 1916 gaf hann í tímaritinu ,,Light“ opinbera
yfirlýsingu um, að hann væri sannfærður um raunveru-
leik hinna spiritisku fyrirbrigða. Og nú tók hann þá
ákvörðun, sem gerbreytti lífi hans. Hann ákvað að verja
öllum starfskröftum sínum, það sem eftir væri ævinnar,
til þess að útbreiða þessi sannindi. Hann kallaði mál-
efnið mikilvægasta málið í heimi. Var honum sjálfum
Ijóst, hve mikil áhrif einmitt hann gat haft, maður, sem
allur heimurinn þekkti og myndi vilja hlusta á. Nú var
hann sannfærður um, að allt líf hans til þessa hefði að-
eins verið undirbúningur að þessu mikilvæga hlut-
verki. Gjörði hann sér fulla grein fyrir því, hverju hann
myndi þurfa að fórna. Um þessar mundir voru honum
boðnir 10 sh. fyrir hvert orð sem hann skrifaði; og þeg-
ar við hugsum um verðgildi peninga árið 1916, sjáum
við livílíkar feiknaupphæðir Conan Doyle hefir hlotið að
fá fyrir ritstörf sín. Hann var að vísu mjög auðugur
maður, en fáir hefðu fórnað allri hagnaðarvon, eins og
hann gjörði. Sárast fannst honum að hugsa til þess,
að vinirnir myndu nú, að minnsta kosti margir, snúa við
honum bakinu. Átti hann fjölda vina á meðal hinna gáf-
uðustu og menntuðustu manna, ekki aðeins í Englandi,
heldur einnig víða um lönd. Það reyndist líka svo, að
margir vinanna gátu elcki skilið afstöðu hans, og hann
láði þeim það ekki. Um þetta leyti hafði hann fyrir
löngu verið aðlaður, í viðurkenningarskyni fyrir sín
margvíslegu afrek. Eftir að stríðinu lauk, hafði komið
til orða, að sæma hann æðstu tign, sem enska ríkið getur
sæmt þegna sína, en afskifti hans af spiritismanum ollu