Morgunn - 01.06.1959, Blaðsíða 58
52
MORGUNN
Ég fjölyrði ekki um það hér, í hverri þakkarskuld fé-
lagið stendur við þessa ágætu menn. En ég vil biðja alla
þá, sem hér eru staddir, að heiðra minningu þeirra og
þakka þeim með því að rísa úr sætum.
Forvígismenn Sálarrannsóknafélags Islands hafa að
eðlilegum lögmálum lífs og dauða horfið frá jarðneskum
störfum hver af öðrum. Aðrir menn hafa komið í þeirra
stað. Nú um áramótin hef ég gegnt störfum forseta í 20
ár, og áreiðanlega koininn tími til, að annar taki þar
við. Af þeim, sem nú sitja í stjórninni hafa þau starfað
þar lengst, ritari félagsins, frú Soffía Haraldsdóttir og
varaforsetinn, sra Sveinn Víkingur. Þá hef ég annazt
ritstjórn Morguns í 19 ár.
Eins og sjá má af framsöguræðu Einars Kvarans á
stofnfundinum og fyrstu lögunum, sem nokkuru síðar
voru sett og samþykkt, átti höfuðmarkmið félagsins að
vera það að sjá um, að fræðsla um málið væri tiltækileg
öllum þeim mönnum í landinu, sem hennar óskuðu.
Ég held að ekki verði annað sagt en að mikið hafi
verið unnið í þessa áttina. Fyrirlestrar og erindi hafa
verið flutt um málið svo hundruðum skiptir. Tímaritið
Morgunn hefir verið gefið út í 39 ár. Margar bækur
hafa komið út, ýmist fyrir tilstuðlan félagsins eða bein-
línis gefnar út af því. Sú starfsemi hefir veriö aukin á
síðustu árum og mun væntanlega verða aukin enn til
muna. A. m. k. sumir forystumanna félagsins nú líta svo
á, að markmiði sínu, að breiða málið út og kynna það
sem flestum, nái félagið bezt með því, að félaginu verði
breytt í þá áttina, að það vorði í framtíðinni í ríkara
mæli en enn er orðið bókafélag um sálarrannsóknir og
andleg mál, og að til þess beri félaginu fyrst og fremst
að verja arðinum af eigum sínum, sem eru talsverðar.
I öðru lagi vakti það fyrir stofnendum, að gera til-
raunir með miðla og gefa félagsmönnum tækifæri, eftir
því sem aðstæður leyfðu hverju sinni, til þess að sitja