Morgunn


Morgunn - 01.06.1959, Blaðsíða 78

Morgunn - 01.06.1959, Blaðsíða 78
72 MORGUNN eitt og sama málefni, eins og hinir frjálsu söfnuðir eru. Og þó hefir kirkjan þau mál ein með höndum, sem eng- inn getur látið afskiptalaus, þegar reikningsskilin eru gerð við guð og samvizkuna. En þótt trúin sé ein að formi til, þá er það jafnvitanlegt, að skoðanir manna í þeim efnum eru mjög breytilegar, enda þótt þeim þyki ekki þess vert, að hverfa frá félagsskap þjóðkirkjunnar. Af þessum sökum verður starf þjóðkirkjunnar örðugra en ella. Hún hefir í raun réttri skyldur við alla. Hún stendur öllum opin, en það er ekki nóg, hún þarf iað vera þess megnug að vekja öllum gleði, þegar þeir koma til hennar. Slíkt gerir miklar kröfur til þeirra, sem þar standa fyrir málum, og því miður hefir sú þróun orðið sífellt meiri og meiri, að söfnuðurinn hefir litið á sig sem þiggjandann. Og vér vitum fullvel, að mörgum manni er svo farið, að þeir sjá enga nauðsyn þess að koma saman til guðsþjónustu, þar sem jafnvel sumt, sem fram fer, er þeim ógeðfellt, heldur kjósa þeir miklu fremur að ræða við guð sinn í einrúmi. Eins og guðsþjónustu er nú almennt háttað og hefir lengi verið, er hún að langmestu leyti þjónusta orðsins. Slíkt gerir miklar kröfur til prestanna ekki sízt á þeirri gagnrýnu upplýsingaröld, sem vér nú lifum á. Af þeim sökum er hætt við, að orðið staðni í skýringum ritning- anna einna saman, skýringum, sem ekki ná eyrum fjöld- ans. Skoðanirnar eru misjafnar, lífsviðhorfin ólík, og þegar vér hlýðum fluttu orði, verðum vér annaðhvort með eða móti, ef það á annað borð snertir oss nokkuð. Ég nefndi áðan sem dæmi viðhorfið til sálarrannsóknanna. Enn eru skoðanir manna svo skiptar um það, að hætt er við, að prestur, sem tekur afstöðu með þeim eða móti, hljóti andstöðu og jafnvel óvild einhvers hluta safnað- arins. Og þó cr honum það nauðsyn, því að háifvelgjan er verst. En þá er spurningin, er unnt að ná til hjartna fólksins á annan hátt en mcð boðun orðsins einni saman. Er hægt að færa menn nær guði sínum og beina hugum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Morgunn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.