Morgunn - 01.06.1959, Page 27
MORGUNN
21
inn án þess að geta um nafn sitt, og gaf að sjálfsögðu
engar upplýsingar um tilgang sinn. Þegar platan var
framkölluð kom fram mjög skýr og auðþekkjanleg mynd
af Conan Doyle fyrir ofan höfuðið á Mrs. Caird-Miller.
Jafnvel þetta nægði ekki Lady Doyle; hún krafðist
frekari sannana. Og loks tókst manni hennar að koma
með sönnun, sem hún tók gilda. Nú liðu nokkrir dagar,
en einn morgun fann Mrs. Caird-Miller lykil, sem lá á
svæfli í svefnherbergi hennar. Lykillinn gekk ekki að
neinum dyrum í íbúð hennar í London. Á meðan hún
starði undrandi á lykilinn, heyrði hún rödd Conan Doyles,
sem sagði: Þetta er lykillinn minn; hann gengur að hurð-
inni í skrifstofu minni í Crowborough, sem alltaf er læst.
Sendið eftir Denis syni mínum“.
Mrs. Caird-Miller símaði strax til Denis í Crow-
borough í Sussex og sagði honum frá því, er fyrir hana
hafði komið. Hann lagði strax af stað í bílnum sínum
og ók til hennar eins hratt og honum var unnt. Hann
fór með lykilinn til Crowborough og símaði þaðan, að
þetta væri vissulega lykillinn að skrifstofu föður síns.
Flutningur lykilsins um 50 km. veg, sannfærði Lady
Doyle urn að hér myndi vera sá miðill, sem maöur henn-
ar myndi geta notað til þess að komast í samband við
fjölskyldu sina. Síðan hélt fjölskyldan marga árangurs-
í’íka fundi með Mrs. Caird-Miller.
Soffía Haraldsdóttir.